Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Freyja Þórisdóttir skrifar 25. júlí 2026 07:59 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörgu að snúast í nótt. Vísir/Vilhelm Meðal þess helsta á lista lögreglustöðvar eitt, sem sinnir verkefnum í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi, var tilkynning um líkamsárás þar sem aðila var fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss. Þeir sem fleygðu honum fram af fundust skammt frá vettvangi og voru handteknir en árásarþoli var fluttur á slysadeild til aðhlynningar með minniháttar áverka. Málið er enn í rannsókn.
Er þetta meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglu frá klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00 í morgun en listinn er í lengri kantinum eftir nóttina. Að minnsta kosti sex manns gistu í fangageymslu lögreglu í nótt og voru alls hundrað tuttugu og eitt mál bókað í kerfi lögreglunnar á tímabilinu. Reyndist vera eftirlýstur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann fyrir of hraðan akstur í nótt en hann hafði farið yfir hámarkshraða á stofnbraut. Við nánari athugun reyndist ökumaðurinn vera eftirlýstur og var hann handtekinn á vettvangi og færður á lögreglustöð þar sem hann var vistaður í fangaklefa. Lögreglu barst tilkynning um aðila „í haldi dyravarða“ við skemmtistað í miðborg Reykjavíkur en málið var afgreitt á lögreglustöð. Þá barst lögreglu tilkynning um sölu fíkniefna úr íbúð á varðsvæðinu. Reyndist tilkynningin á rökum reist og var viðkomandi handtekinn á vettvangi með mikið magn fíkniefna og fjármuna í sinni vörslu. Lögreglan stöðvaði fjölda ökumanna um allt höfuðborgarsvæðið vegna of hraðs aksturs, aksturs undir áhrifum áfengis og/eða vímuefna, aksturs gegn rauðu ljósi og aksturs án ökuréttinda. Einn ökumaður reyndist hafa verið ítrekað stöðvaður fyrir að aka sviptur ökuréttindum. Líkamsárás á skemmtun ungmenna Tilkynning barst vakthafandi fulltrúum á lögreglustöð þrjú, sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti, en þá var látið vita af aðila sem ógnaði öðrum með hníf. Í dagbók kemur fram að hann hafi einnig staðið í hótunum um frekara ofbeldi en hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa fyrir rannsókn málsins. Á varðsvæði lögreglustöðvar fjögur, Grafarvogur, Mosfellsbær og Árbær, er mál í rannsókn eftir að tilkynning barst um líkamsárás af hálfu einstaklinga á skemmtun ungmenna. Ekki liggur fyrir hve margir voru að verki eða hve margir árásarþolar voru og hversu alvarlega áverka þeir hlutu. Á sama varðsvæði var leigubílstjóri í vandræðum með farþega sem neitaði að greiða fargjaldið en málið er enn í rannsókn.
Lögreglumál Ofbeldi barna Reykjavík Kópavogur Hafnarfjörður Garðabær Mosfellsbær Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira