Viðskipti innlent

Verð­bólga eykst enn

Samúel Karl Ólason skrifar
Hagstofan segir að sumarútsölur hefðu haft lækkunaráhrif á verðbólguna.
Hagstofan segir að sumarútsölur hefðu haft lækkunaráhrif á verðbólguna. Vísir/Vilhelm

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,36 prósent á milli mánaða og er 693,2 stig. Ársverðbólga mælist nú 5,3 prósent, 0,1 stigi meiri en í síðasta mánuði.

Greiningaraðilar höfðu spáð 5,1 til 5,4 prósenta verðbólgu. Stóru viðskiptabankarnir þrír höfðu allir spáð 5,2 prósenta hækkun.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis hefur hækkað um 4,8 prósent á síðustu tólf mánuðum.

Sjá einnig: Hækkanir á komu­gjöldum í heil­brigðis­kerfinu munu ýta undir verð­bólgu í ágúst

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í júlí 2026, sem er 693,2 stig, gildir til verðtryggingar í september 2026.

Á vef Hagstofunnar er bent á að sumarútsölur séu víða í gangi og verðlækkun um 4,7 prósent á fötum og skóm hafi haft lækkandi áhrif á vísitöluna, upp á 0,16 prósent. Svipaða sögu sé að segja af ýmsum öðrum vöruflokkum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×