Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 23. júlí 2026 09:12 Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, er kát yfir niðurstöðum skoðanakönnunarinnar. Vísir/Vilhelm Formaður Sjálfstæðisflokksins segist mjög sátt með þróun fylgis flokksins sem mældist með mesta fylgið í nýrri skoðanakönnun. Aukið fylgi stafi bæði af óvinsældum ríkisstjórnarinnar og samtakamætti Sjálfstæðisflokksins. Flokksmenn sem hurfu annað séu að snúa aftur. „
Ég er vitaskuld mjög sátt við þessa þróun, vitaskuld er þetta skoðanakönnun. Ég er búin að segja það í marga mánuði, við höfum líka fengið lélega könnun sem var 13,5 prósent í upphafi árs,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn mældist með mesta fylgi allra flokka í nýrri könnun Maskínu með 25 prósent fylgi. Samfylkingin kom þar á eftir með 24,4 prósent. Þetta er í fyrsta sinn í hálft annað ár sem Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur. Í viðtali í Bítinu á Bylgjunni segir Guðrún þróunina endurspegla þann samtakamátt sem hún sjálf hafi fundið fyrir í flokknum. „Við sjáum það líka í sveitarstjórnarkosningunum þar sem við sáum risastóra bláa bylgju ferðast yfir landið og sáum besta árangur flokksins í 20 ár.“ Horfnir félagar snúa aftur í raðir flokksins Guðrún telur aukið fylgi að einhverju leyti vera vegna óánægju með ríkisstjórnina sem samanstendur af Samfylkingunni, Viðreisn og Flokki fólksins. Það skýri samt sem áður ekki alla þróunina né góðan árangur í sveitarstjórnarkosningunum. „Þetta er árangur Sjálfstæðisflokksins, þetta er árangur okkar fólks hringinn í kringum landið. Við eigum alveg gríðarlega öflugan mannauð í Sjálfstæðisflokknum og ég er alveg ótrúlega stolt af því að fá að standa í stafni Sjálfstæðismanna, þessa stóra skips. Þetta er að mínu mati langstærsta og sterkasta pólitíska afl á landsvísu og hefur verið það í áratugi.“ Guðrún segist finna fyrir því að margir sem hurfu úr röðum flokksins séu að snúa aftur. „Ég auðvitað bauð mig fram á landsfundi á síðasta ári, þar sem ég lagði mjög mikla áherslu á að við myndum sameinast sem Sjálfstæðismenn um grunngildi okkar og grunnstefnu okkar. Að við færum aftur í ræturnar,“ segir hún. Gaman í stjórnarandstöðu „Það er auðvitað ekki hægt að líta fram hjá því að niðurstöður kosninga árið 2024 urðu okkur mikil vonbrigði. Það var versta niðurstaða flokksins í sögu hans í kosningum,“ segir Guðrún og bætir við að þjóðin hafi „aðeins verið að rassskella“ flokkinn. Hún segist samt sem áður vera einstaklega jákvæð manneskja og lítur svo á að flokkurinn hafi gott af því að vera í stjórnarandstöðu. „Mér finnst gaman að vera í stjórnarandstöðu. Það er allt öðruvísi hlutverk.“ Hlusta má á viðtalið við Guðrúnu í heild sinni hér fyrir neðan.
Sjálfstæðisflokkurinn Bylgjan Bítið Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Fleiri fréttir Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Sjá meira