Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Jón Þór Stefánsson skrifar 21. júlí 2026 16:22 Valli er eigandi Pizza 107. vísir/vilhelm Brotist var inn á veitingastaðinn Pizza 107 í vesturbæ Reykjavíkur um aðfaranótt mánudags og peningum stolið. Það er í annað skipti sem brotist er inn á staðinn á skömmum tíma.
Valli Gunnlaugsson, eigandi staðarins, var í fríi úti á landi þegar þetta kom upp, og þurfti að stytta fríið og bruna í bæinn. „Það var brotist inn, rúðurnar brotnar, og allir peningarnir teknir úr kassanum okkar, og farið beint út,“ segir Valli. Hann telur að þjófarnir hafi haft með sér á brott 80 til 100 þúsund krónur. Síðast þegar brotist var inn var vínflöskum stolið. Síðan var sett upp þjófavarna- og myndavélakerfi. „Það skiptir engu. Þeir passa bara að það sjáist ekki í andlitið á þeim. Þeir fara bara inn og út.“ Pizza 107 er lítill pizzustaður í verslunarkjarna sem oft er kallaður Úlfarsfell. „Það er rosa leiðinlegt að það sé verið að stela frá litla manninum á horninu,“ segir Valli. „Þó svo að í stóra samhenginu eru þetta ekki háar upphæðir þá skiptir þetta máli fyrir okkur. Það voru engar milljónir teknar, en tíuþúsundkallarnir skipta okkur litla manninn máli.“ Hann segist átta sig á að þeir sem fremji verknað sem þennan séu ekki á góðum stað í lífinu. Þá bendir hann á innbrotsalda virðist nú vera í gangi, sérstaklega í miðbænum.
Reykjavík Veitingastaðir Lögreglumál Tengdar fréttir Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Karlmaður á fertugsaldri var úrskurðaður í gæsluvarðhald í dag vegna tengsla sinna við hluta innbrota sem séu í rannsókn hjá lögreglu. Yfir sextíu innbrot hafa verið tilkynnt á höfuðborgarsvæðinu frá mánaðarmótum og lögregla segir greinilegan topp vera í innbrotum. 14. júlí 2026 19:46 Áfram geisar innbrotahrinan Tilkynnt var um „óvelkominn aðila“ í Hlíðahverfi Reykjavíkur, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Málið var leyst með því að lögregla skipaði manninum að hafa sig á brott. Þá var einnig tilkynnt um þjófnað og innbrot miðsvæðis í borginni og er málið í rannsókn. 19. júlí 2026 17:57 Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Innlent Fleiri fréttir „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sjá meira
Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Karlmaður á fertugsaldri var úrskurðaður í gæsluvarðhald í dag vegna tengsla sinna við hluta innbrota sem séu í rannsókn hjá lögreglu. Yfir sextíu innbrot hafa verið tilkynnt á höfuðborgarsvæðinu frá mánaðarmótum og lögregla segir greinilegan topp vera í innbrotum. 14. júlí 2026 19:46
Áfram geisar innbrotahrinan Tilkynnt var um „óvelkominn aðila“ í Hlíðahverfi Reykjavíkur, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Málið var leyst með því að lögregla skipaði manninum að hafa sig á brott. Þá var einnig tilkynnt um þjófnað og innbrot miðsvæðis í borginni og er málið í rannsókn. 19. júlí 2026 17:57