Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Árni Sæberg skrifar 20. júlí 2026 14:06 Sveinn Sigurður Jóhannesson er framkvæmdastjóri Greenfish. Greenfish Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Greenfish og samtök evrópskra uppsjávarútgerða, Pelagic Freezer Trawler Association, eða PFA, hafa tekið höndum saman um þróun nýs gervigreindarlíkans sem ætlað er að spá fyrir um hvar líklegast sé að finna brynstirtlu, sem einnig er kölluð hrossamakríll, til veiða á evrópsku hafsvæði.
Í fréttatilkynningu þess efnis frá Greenfish segir að samstarfið sameini spátækni Greenfish og fiskveiðigögn og þá þekkingu sem PFA hafi safnað úr flota aðildarfyrirtækja sinna. Afraksturinn verði hagnýtt verkfæri, þróað í nánu samstarfi við evrópskar uppsjávarútgerðir, sem styðji við reynslu og sérþekkingu skipstjóra frystitogara og þá tækni sem þegar er til staðar um borð. PFA séu samtök átta fyrirtækja sem geri út uppsjávarfrystitogara í sex Evrópulöndum. Aðildarfyrirtækin séu Parlevliet & Van der Plas, Cornelis Vrolijk, W. van der Zwan & Zn., France Pélagique, Doggerbank Seefischerei, North Atlantic Fishing Company, Atlantex og Lithuanian Long Distance Fishery Association. Fá gögn frá 18 togurum Aðildarfyrirtækin geri samtals út 18 uppsjávarfrystitogara sem séu sumir meðal þeirra stærstu í heimi, eða allt að 144 metrar að lengd. Öll skipin muni taka þátt í gagnasöfnun með þeim mælitækjum sem skipin eru búin um borð og leggja þannig til viðbótargögn sem nýtast við vísindarannsóknir og líkanagerð. Greenfish muni nota gögn sem PFA hefur safnað til að þjálfa vélanámslíkan sem spái daglega fyrir um hvar mestar líkur séu á að brynstirtlu sé að finna. Skjáskot úr Greenfish-kerfinu.Greenfish Spárnar verði birtar sem dagleg hitakort í Greenfish-kerfinu. Þannig fái áhafnir skipanna skýrari mynd af líklegum fiskimiðum, bæði áður en lagt er úr höfn og á meðan skipin eru á sjó. Tíma- og eldsneytisfrekt verkefni Þá segir að það að leita að fiski sé bæði tíma- og eldsneytisfrekt verkefni. Nákvæmar spár geti stytt leitartíma, aukið rekstrarhagkvæmni og minnkað umhverfisfótspor skipanna. Markmið PFA sé engu að síður að meta hvernig verkfæri Greenfish geti stuðlað að því að minnka kolefnisspor á hvert landað tonn enn frekar. Jafnframt kunni verkefnið að skila nýrri þekkingu sem nýst geti við aðrar fiskveiðar þar sem við á. PFA muni einnig leiða vísindalega sannprófun líkansins. Við sannprófunina verði notuð staðsetningargögn frá veiðum sem ekki voru hluti af þjálfunargögnum líkansins, ásamt óháðum gögnum úr rannsóknaleiðöngrum.
Sjávarútvegur Nýsköpun Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira