„Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 18. júlí 2026 15:03 Sigurður Ágúst Sigurðsson segir eldri borgara skorta úrræði. Vísir/Vilhelm Formaður Félags eldri borgara í Reykjavík segir mál sjötugs manns sem missti aleiguna til fjárkúgara einungis vera toppinn á ísjakanum. Nýr veruleiki blasi við eldri borgurum á Íslandi og ljóst sé að mikil þörf sé á sérstökum Umboðsmanni eldri borgara sem komi þeim til aðstoðar.
Greint var frá því í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær að sjötugur maður hefði nýlega misst aleiguna til fjárkúgara. Hann hafi greitt hópi fólks ríflega hundrað og átta milljónir króna sem hafi höfðað til góðmennsku hans en einnig hótað honum ofbeldi og því að ljúga upp á hann öllu illu ef hann neitaði að borga. Maðurinn sagði fjölskyldu og vinum ekki frá málinu fyrr en systkini hans urðu vitni að því að honum var hótað ofbeldi en maðurinn lýsti því að hafa óttast að fara til lögreglunnar vegna skammar og hræðslu við að fólkið myndi þá tvíeflast. Það hafi svo tekið fjórar tilraunir til að fá lögreglu til að taka málið upp, það hafi ekki gerst fyrr en eftir að maðurinn hafði útvegað sér lögmann. „Þetta er bara enn eitt dæmið sem við lesum um í fréttum varðandi eldri borgara og ofbeldi sem eldri borgarar lenda í. Það er dapurlegt að heyra þetta en enn og aftur staðfestir þetta að þessi mál eru mjög útbreidd en vandamálið er, líkt og kemur fram hjá þessum þolanda, að hann vildi ekki kalla til lögreglu, vegna þess að þetta væri svo mikil skömm í hans huga,“ segir Sigurður Ágúst Sigurðsson formaður Félags eldri borgara í Reykjavík. Hann segir eldri borgara sárlega þurfa á úrræði að halda sem geti nýst þeim í slíkum aðstæðum. Lögregla sé að öllu leyti reiðubúin til að aðstoða en ljóst sé að eldri borgarar veigri sér við að fara til lögreglu og segir Sigurður hægt að setja á fót Umboðsmann eldri borgara sem geti veitt ráð og aðstoðað í slíkum málum. „Að það sé einhver aðili sem er hægt að leita til með því að taka upp símann og hringja, því að þetta fólk er ekki mjög tölvuvænt. Þannig að það sé allavega aðgengi að slíkri aðstoð og að það sé miklu betra heldur en það er í dag.“ Hefurðu heyrt um viðlíka mál? Þarna er talað um 108 milljónir, aleiga mannsins sem er hreinlega hirt af honum? „Já, já. Við erum búin að vera að heyra þetta og það hefur líka verið í fréttum. Á síðasta ári voru fréttir af tugmilljóna svindli sem lögregla upplýsti um, allt upp í marga tugi milljóna. Ég hef ekki heyrt um hundrað milljónir áður en svona er þetta bara í dag, veruleikinn. Eldri borgarar eru svo auðtrúa og trúa ekki neinu illu upp á fólk og vilja allt fyrir alla gera en átta sig ekki á því að þeir eru að eiga við glæpagengi.“ Hann óttast að mál líkt og þessi séu mun fleiri. Telur það raunar líklegt. „Við höfum töluverðar áhyggjur af því að þetta er miklu dýpra á þessum málum heldur en við sjáum. Þetta er bara toppurinn á ísjakanum.“
Eldri borgarar Lögreglumál Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Sjá meira