Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 1. júlí 2026 12:57 Hvalur 8 kom með Langreyð í Hvalfjörð í gær. Vísir/Vilhelm Matvælastofnun rannsakar af hverju langreyður háði hálftíma dauðastríð eftir að hafa verið skotin af skyttum Hvals. Dýraverndarsamband Íslands krefst þess að veiðarnar verði stöðvaðar og leyfi Hvals afturkallað.
Samkvæmt skýrslu Matvælastofnunar, sem fer með eftirlit með hvalveiðum, varð atvikið þann 22. júní síðastliðinn. Dýrið var fyrst skotið klukkan sex mínútur yfir fimm, aftur tíu mínútum síðar og þá tvisvar sinnum og svo aftur ellefu mínútum síðar í fjórða sinn. Þrjátíu mínútur tók að aflífa dýrið. „Sem er náttúrulega lengri tími en kannski æskilegt er. Lög um velferð dýra og reglugerð um veiðar á langreyðum gera kröfu um það að dýrið skal aflífað með þeim skemmsta hætti og valda sem minnstum sársauka,“ segir Hrönn Jörundsdóttir forstjóri Matvælastofunar. Hrönn Jörundsdóttir forstjóri Matvælastofnun segir málið í rannsókn. Vísir Hún segir Matvælastofnun nú vera að rannsaka af hverju aflífunin tók þetta langan tíma. „Við erum með rannsókn í gangi og getum þar af leiðandi kannski lítið tjáð okkur nákvæmlega um þetta. Við erum að skoða það hvort að starfsmenn Hvals eða skipverjar hafi brugðist rétt við og gert allt í sínu valdi til þess að tryggja það að dýrið sé aflífað eins hratt og örugglega og hægt er.“ Sambærilegt atvik átti sér stað sumarið 2023 og voru veiðar Hvals hf. þá stöðvaðar tímabundið á meðan að atvikið var rannsakað frekar og fyrirtækinu gefinn kostur á að bæta ráð sitt. „Hvað við getum gripið til veltur náttúrulega á niðurstöðum rannsóknarinnar og árið 2023 stöðvuðum við tímabundið hvalveiðar út af atviki sem að okkar niðurstaða leiddi til þess að skipverjarnir hefðu getað brugðist betur við og kröfðumst þá fyrirtækið um ákveðnar úrbætur til að tryggja að slíkt kæmi ekki fyrir aftur. Ef niðurstaðan er sú að það er eitthvað sem fyrirtækið getur breytt eða gert betur, þá náttúrulega munum við væntanlega gera kröfur um slíkt en við þurfum bara að skoða hvað fór úrskeiðis þarna til þess að ákvarða hvernig við beitum okkur eða hvort við beitum okkur á einhvern hátt gagnvart fyrirtækinu.“ Óvíst er hvenær niðurstaða mun liggja fyrir. „Við munum náttúrulega flýta þessari rannsókn eins og mögulegt er en við viljum líka vanda þetta verk og reyna að tryggja það að við séum að skoða alla anga af þessu máli en að sjálfsögðu náttúrulega viljum við að niðurstaða komi sem fyrst. Þannig að ef það er eitthvað sem fyrirtækið þarf að breyta verði það gert til þess að tryggja það að meðan veiðum verði haldið áfram séu dýrin aflífuð á mannúðlegan hátt.“ Dýraverndunarsamband Íslands krefst þess að veiðarnar verði stöðvaðar og félagið verði svipt veiðileyfi. „Það er ljóst að það er ekki mögulegt að aflífa hvali á mannúðlegan og skjótan hátt og núna hefur þessi langreyður háð þrjátíu mínútna dauðastríð og er það algjörlega óásættanleg meðferð á dýrum. Við erum með dýravelferðarlög þar sem skýrt er kveðið á um að dýr skuli ekki líða og þau skuli vera aflífuð á skjótan hátt. Það er bara ekki hægt að tryggja það við þessar veiðar,“ segir Linda Karen Gunnarsdóttir formaður sambandsins.
Hvalveiðar Sjávarútvegur Matvælastofnun Tengdar fréttir Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Dómsmálaráðherra segir Landhelgisgæsluna vera búna að undirbúa viðbrögð við mismunandi sviðsmyndum vegna veru skipsins Bandero í lögsögu Íslands. Ógn felist í hótunum skipverjanna. 30. júní 2026 22:21 Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsforkólfur á Skaga, er afar ósáttur við ummæli Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra og hann segir að hún eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það. 1. júlí 2026 09:58 Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hefur tekið starfshætti vinnslustöðvar Hvals til skoðunar eftir að eftirlitinu barst tilkynning um mögulega yfirborðsmengun frá vinnslunni. Eftirlitið lítur málið grafalvarlegum augum og kemur til greina að beita þvingunarúrræðum ef ekki verður brugðist við tafarlaust. 30. júní 2026 20:31 Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Sérfræðingur í hafrétti segir hótanir einar og sér ekki nægja til að Landhelgisgæslan geti vísað Bandero úr íslenskri lögsögu. Aðra sögu sé að segja um landhelgina þar sem gæslan hafi auknar valdheimildir. 30. júní 2026 11:15 „Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Leiðangursstjóri Aðgerðar 86, sem er um borð í skipinu Bandero, biður Íslendinga afsökunar á því að hafa komið til landsins fyrir fjórum áratugum í skjóli nætur. Þá sökkti hann tveimur hvalveiðiskipum. Hópur fólks um borð í Bandero siglir nú innan lögsögu Íslands í því skyni að binda enda á hvalveiðar. 29. júní 2026 17:42 Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Inga segir já Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Sjá meira
Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Dómsmálaráðherra segir Landhelgisgæsluna vera búna að undirbúa viðbrögð við mismunandi sviðsmyndum vegna veru skipsins Bandero í lögsögu Íslands. Ógn felist í hótunum skipverjanna. 30. júní 2026 22:21
Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsforkólfur á Skaga, er afar ósáttur við ummæli Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra og hann segir að hún eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það. 1. júlí 2026 09:58
Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hefur tekið starfshætti vinnslustöðvar Hvals til skoðunar eftir að eftirlitinu barst tilkynning um mögulega yfirborðsmengun frá vinnslunni. Eftirlitið lítur málið grafalvarlegum augum og kemur til greina að beita þvingunarúrræðum ef ekki verður brugðist við tafarlaust. 30. júní 2026 20:31
Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Sérfræðingur í hafrétti segir hótanir einar og sér ekki nægja til að Landhelgisgæslan geti vísað Bandero úr íslenskri lögsögu. Aðra sögu sé að segja um landhelgina þar sem gæslan hafi auknar valdheimildir. 30. júní 2026 11:15
„Allir eru reiðubúnir að hætta á handtöku“ Leiðangursstjóri Aðgerðar 86, sem er um borð í skipinu Bandero, biður Íslendinga afsökunar á því að hafa komið til landsins fyrir fjórum áratugum í skjóli nætur. Þá sökkti hann tveimur hvalveiðiskipum. Hópur fólks um borð í Bandero siglir nú innan lögsögu Íslands í því skyni að binda enda á hvalveiðar. 29. júní 2026 17:42