Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar 16. júlí 2026 09:32 Ímyndum okkur að Ísland væri gosdrykkur á alþjóðlegum markaði. Þetta væri sérstakur drykkur. Hann væri framleiddur í takmörkuðu magni, úr einstökum hráefnum og hefði sterka ímynd. Margir hefðu heyrt um hann, séð myndir af honum og jafnvel sett hann á listann yfir vörur sem þá langaði einhvern daginn að prófa. En markaðshlutdeildin væri aðeins um 0,15%. Af hverjum 10.000 gosdrykkjum sem seldust á heimsmarkaði væru aðeins um 15 frá Íslandi. Og þetta hefur haldist í stað frá 2018. Hvernig myndi skynsamlegt fyrirtæki bregðast við þeirri stöðu, bregðast við því að markaðshlutdeild væri lág og hefði staðið í stað í 8 ár? Myndi það ákveða að varan væri orðin svo fyrirferðarmikil á markaðnum að rétt væri að hækka álögur á hana, gera hana dýrari og draga úr kynningarstarfi? Eða myndi það verja stöðu vörunnar, byggja áfram upp vörumerkið og leita markvisst að þeim viðskiptavinum sem væru tilbúnir að greiða gott verð fyrir hana? Svarið ætti að vera augljóst. Lítil hlutdeild á risastórum markaði Það þarf vissulega að gæta varúðar við beinan samanburð á þessum tölum. Þær gefa okkur samt ágæta mynd af stærðargráðunni. Hlutdeild Íslands í alþjóðlegri ferðaþjónustu er um 0,15%. Við erum því lítil sérvara á gríðarlega stórum og síbreytilegum markaði. Vissulega er Ísland vel þekkt. Margir hafa séð myndir af norðurljósunum, Bláa lóninu, íslenskum fossum og eldgosum. En að þekkja vöru er ekki það sama og að kaupa hana. Ferðaþjónustan skapar þó gríðarlega mikil verðmæti fyrir íslenskt samfélag. Bein hlutdeild hennar nam um 8,8% af landsframleiðslu árið 2025 og útgjöld erlendra ferðamanna hér á landi voru rúmlega 540 milljarðar króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Til að setja það í samhengi eru þetta að meðaltali tæplega 1,5 milljarðar króna á hverjum einasta degi ársins. Af þessum útgjöldum koma svo skattar og gjöld, atvinna tugþúsunda einstaklinga og öll þau óbeinu áhrif sem ferðaþjónustan hefur á aðrar atvinnugreinar. Þarna liggur svolítil þversögn. Ferðaþjónustan er ein stærsta útflutningsgrein landsins, en starfar á alþjóðlegum markaði þar sem Ísland hefur örlitla hlutdeild og ferðamenn geta valið á milli nánast óteljandi áfangastaða, sem sumir hverjir hafa margt það sama og Ísland uppá að bjóða. Ferðamaðurinn sér heildarverðið Þegar stjórnvöld leggja ný gjöld á gistingu, bílaleigur, baðlón eða aðra ferðaþjónustu greiðast þau ekki úr einhverjum ótæmandi sjóði fyrirtækjanna. Á endanum gerist annað af tvennu. Annaðhvort hækkar verðið til ferðamannsins eða framlegð fyrirtækjanna minnkar. Oft gerist hvort tveggja. Ferðamaður sem ber Ísland saman við Noreg, Skotland, Finnland eða Kanada skoðar ekki sérstaklega hvaða hluti verðsins rennur í skatta, laun, fjármagnskostnað eða annan rekstur. Hann sér bara heildarverðið. Og við verðum að hafa í huga að Ísland er og hefur verið dýr áfangastaður. Það stafar meðal annars af háu launastigi, háum vöxtum, smæð markaðarins, fjarlægð frá öðrum löndum, sveiflukenndu gengi og háum innlendum kostnaði. Við getum ekki gengið að því sem vísu að ferðamenn haldi áfram að koma til Íslands óháð verðinu. Markaðssetning er ekki ríkisstyrkur Opinbert markaðsstarf fyrir Ísland er stundum rætt eins og um ríkisstyrk til einstakra ferðaþjónustufyrirtækja sé að ræða. Enginn einstakur gististaður, veitingastaður, bílaleiga eða afþreyingaraðili getur byggt upp vörumerkið Ísland á alþjóðlegum vettvangi. Fyrirtækin geta markaðssett sína eigin þjónustu en áður en ferðamaðurinn velur hótel, bílaleigubíl eða hvalaskoðun þarf hann fyrst að velja Ísland. Ísland þarf að komast inn í huga ferðamannsins áður en einstök fyrirtæki fá tækifæri til að selja honum eitthvað. Markaðssetning Íslands er því ekki styrkur til ferðaþjónustu-fyrirtækja. Hún er hluti af útflutningsstarfi þjóðarinnar. Við myndum ekki hætta að kynna íslenskan fisk á erlendum mörkuðum vegna þess að fólk hefði þegar heyrt um íslenskan fisk. Við myndum ekki heldur gera ráð fyrir að íslensk tæknifyrirtæki eða hugverk seldu sig sjálf um alla framtíð. Sama lögmál gildir um ferðaþjónustuna. Sterkt vörumerki þarf stöðuga rækt. Ef Ísland dregur úr sýnileika sínum fylla aðrir áfangastaðir einfaldlega tómarúmið. Álögur þurfa að hafa skýran tilgang Þetta þýðir ekki að ferðaþjónustan eigi að vera undanþegin skattlagningu eða að atvinnugreinin eigi ekki að taka þátt í uppbyggingu innviða. Auðvitað á hún að taka þátt og er að gera það. En það þarf að gera greinarmun á langtímastefnu og skammtímaleit að tekjum fyrir ríkissjóð. Gjöld sem lögð eru á greinina þurfa að vera fyrirsjáanleg og hófleg. Þau þurfa líka að byggja á mati á því hvaða áhrif þau hafa á samkeppnishæfni Íslands. Ferðaþjónustufyrirtæki gera samninga og verðleggja þjónustu langt fram í tímann. Hótel getur verið búið að gera samninga við erlendar ferðaskrifstofur eitt eða tvö ár fram í tímann þegar stjórnvöld ákveða að bæta við nýjum skatti eða hækka gjald. Það er því ekki alltaf hægt að setja hækkunina strax út í verðið og þá stendur fyrirtækið eftir með reikninginn. Einnig þarf að vera sýnilegt að tekjur af sértækum ferðatengdum gjöldum renni til verkefna sem tengjast ferðaþjónustunni og gagnast samfélaginu. Til dæmis til uppbyggingar innviða, náttúruverndar, öryggismála, salernisaðstöðu, samgangna og markaðssetningar, annars verður til sú hættulega þróun að stjórnvöld líti fyrst og fremst á ferðaþjónustuna sem auðveldan skattstofn. Það er auðvelt að leggja gjald á erlendan ferðamann. Hann hefur ekki kosningarétt á Íslandi og getur ekki mótmælt hækkuninni en hann getur hins vegar kosið með veskinu og farið eitthvað annað. Vörumerkið Ísland selur sig ekki sjálft Ísland hefur sterka stöðu í hugum margra ferðamanna. En sterk ímynd er ekki það sama og trygg sala. Eldgos, veður, flugsamgöngur, gengi krónunnar, efnahagsástand og alþjóðleg umfjöllun geta breytt eftirspurninni hratt. Það ættum við að þekkja vel eftir síðustu ár. Samkeppnislöndin sitja heldur ekki auðum höndum. Þau fjárfesta í markaðssetningu, flugsamgöngum og uppbyggingu nýrra áfangastaða. Noregur er gott dæmi. Erlendar gistinætur þar jukust um 14% árið 2025 og voru aldrei fleiri. Norska hagstofan nefnir meðal annars markaðsstarf landsins sem eina mögulega skýringu á aukningunni. Þeir eru með öðrum orðum að stækka sinn bita af kökunni. Og þá komum við aftur að gosdrykknum. Ísland er vara með um 0,15% markaðshlutdeild á alþjóðlegum markaði. Enginn ábyrgur stjórnandi slíkrar vöru myndi segja að hún væri orðin svo sjálfsögð að óhætt væri að gera hana sífellt dýrari og draga um leið úr auglýsingum. Hann myndi spyrja hvernig mætti styrkja vörumerkið, auka sýnileikann og ná til þeirra viðskiptavina sem meta vöruna mest. Íslensk stjórnvöld ættu að nálgast ferðaþjónustuna með sama hætti. Ekki sem ótæmandi skattstofn, heldur einmitt sem verðmæta en viðkvæma útflutningsvöru á einum samkeppnisharðasta markaði heims. Höfundur er ferðamálafræðingur og starfar í ferðaþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Skoðun Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun