Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar 15. júlí 2026 20:02 Þegar hart er í ári leggjast heimilin á eitt við að herða sultarólina og halda fastar utan um heimilisreksturinn. Þá fyllast samfélagsmiðlar af góðum ráðum frá fólki sem hefur náð tökum á listinni að láta hverja krónu endast aðeins lengur. Hvernig megi drýgja matarkörfuna, gera við gamlan fatnað og koma því sem ekki er lengur í notkun í í verð. Allt skal nýtt og engu skal hent. En það má ekki gleyma því að slíkur sparnaður verður ekki til af sjálfu sér. Að reka heimili af mikilli hagsýni krefst yfirsýnar, skipulags, fyrirhyggju og heilmikillar vinnu. Vinnu sem lendir oftar en ekki í höndum hinnar hagsýnu húsmóður. Fæstar konur eru þó heimavinnandi í dag og því bætist þetta ábyrgðarhlutverk ofan á launaða vinnu, umönnun og almennan heimilisrekstur. Það þarf að hafa yfirsýn yfir allan mat heimilisins - hvað er til, hvað hægt er að elda úr því og hvenær það rennur út. Það þarf að skipuleggja matseðla, smyrja nesti og undirbúa máltíðir fram í tímann. Það þarf að fylgjast með tilboðum, kaupa mat á síðasta séns, skipta honum niður og frysta. Það þarf að muna að nýta afganginn af soðnu ýsunni í plokkfisk daginn eftir. Það þarf að fara yfir barnafötin, þvo þau, flokka, verðleggja og setja upp bás á loppumarkaði. Það þarf að taka góðar myndir, skrifa auglýsingar, svara skilaboðum og koma gömlu dóti í verð. Það þarf að gera við rifnar buxur, sauma á tölur og búa til heimatilbúna öskudagsbúninga í stað þess að kaupa nýja dýrum dómi. Hvert þessara verka kann að virðast smátt. Saman mynda þau þó viðbótarstarf sem krefst tíma, orku og stöðugrar athygli. Við sjáum gjarnan árangur útsjónarseminnar í lægri útgjöldum og hrósum þeim sem tekst að láta hverja krónu endast lengur. Vinnan á bak við sparnaðinn verður hins vegar oft ósýnileg. Við sjáum krónurnar sem sparast - en sjaldnar tímann, orkuna og hugræna álagið sem þurfti til. Tími hefur líka verðmæti. Hvíld hefur verðmæti. Og hugræna vinnan við að halda utan um þarfir heillar fjölskyldu er vinna, jafnvel þótt afrakstur hennar sjáist ekki á bankayfirlitinu. Kannski ættum við því ekki aðeins að spyrja hvernig heimili geti sparað meira, heldur líka hvernig skuli skipta allri vinnunni sem sparnaðurinn krefst. Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 er nefnilega sjaldnast bara að spara peninga. Hún er að greiða mismuninn með tíma sínum. Höfundur er framkvæmdastjóri og meðstofnandi Heima Software ehf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjármál heimilisins Verðlag Mest lesið Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson Skoðun Skoðun Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Sjá meira
Þegar hart er í ári leggjast heimilin á eitt við að herða sultarólina og halda fastar utan um heimilisreksturinn. Þá fyllast samfélagsmiðlar af góðum ráðum frá fólki sem hefur náð tökum á listinni að láta hverja krónu endast aðeins lengur. Hvernig megi drýgja matarkörfuna, gera við gamlan fatnað og koma því sem ekki er lengur í notkun í í verð. Allt skal nýtt og engu skal hent. En það má ekki gleyma því að slíkur sparnaður verður ekki til af sjálfu sér. Að reka heimili af mikilli hagsýni krefst yfirsýnar, skipulags, fyrirhyggju og heilmikillar vinnu. Vinnu sem lendir oftar en ekki í höndum hinnar hagsýnu húsmóður. Fæstar konur eru þó heimavinnandi í dag og því bætist þetta ábyrgðarhlutverk ofan á launaða vinnu, umönnun og almennan heimilisrekstur. Það þarf að hafa yfirsýn yfir allan mat heimilisins - hvað er til, hvað hægt er að elda úr því og hvenær það rennur út. Það þarf að skipuleggja matseðla, smyrja nesti og undirbúa máltíðir fram í tímann. Það þarf að fylgjast með tilboðum, kaupa mat á síðasta séns, skipta honum niður og frysta. Það þarf að muna að nýta afganginn af soðnu ýsunni í plokkfisk daginn eftir. Það þarf að fara yfir barnafötin, þvo þau, flokka, verðleggja og setja upp bás á loppumarkaði. Það þarf að taka góðar myndir, skrifa auglýsingar, svara skilaboðum og koma gömlu dóti í verð. Það þarf að gera við rifnar buxur, sauma á tölur og búa til heimatilbúna öskudagsbúninga í stað þess að kaupa nýja dýrum dómi. Hvert þessara verka kann að virðast smátt. Saman mynda þau þó viðbótarstarf sem krefst tíma, orku og stöðugrar athygli. Við sjáum gjarnan árangur útsjónarseminnar í lægri útgjöldum og hrósum þeim sem tekst að láta hverja krónu endast lengur. Vinnan á bak við sparnaðinn verður hins vegar oft ósýnileg. Við sjáum krónurnar sem sparast - en sjaldnar tímann, orkuna og hugræna álagið sem þurfti til. Tími hefur líka verðmæti. Hvíld hefur verðmæti. Og hugræna vinnan við að halda utan um þarfir heillar fjölskyldu er vinna, jafnvel þótt afrakstur hennar sjáist ekki á bankayfirlitinu. Kannski ættum við því ekki aðeins að spyrja hvernig heimili geti sparað meira, heldur líka hvernig skuli skipta allri vinnunni sem sparnaðurinn krefst. Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 er nefnilega sjaldnast bara að spara peninga. Hún er að greiða mismuninn með tíma sínum. Höfundur er framkvæmdastjóri og meðstofnandi Heima Software ehf.
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun