Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Bjarki Sigurðsson skrifar 12. júlí 2026 12:53 Ingólfur Bender er aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Vísir/Arnar Atvinnulausum í byggingariðnaði og mannvirkjagerð fjölgar um tæp fjörutíu prósent milli ára. Aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir þetta mikið áhyggjuefni og að áform ríkisstjórnarinnar geri illt verra.
Tæplega tólfhundruð einstaklingar í byggingariðnaði og mannvirkjagerð voru atvinnulausir í júní samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Á sama tíma í fyrra voru þeir 860 sem gerir fjölgun upp á tæp fjörutíu prósent. Atvinnuleysi í greininni mælist 6,3 prósent. Samtök iðnaðarins hafa ítrekað vakið athygli á kulnun greinarinnar en Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur samtakanna, segir tölurnar sýna svart á hvítu að eitthvað þurfi að breytast. „Þetta er alvarlegt. Greinin veltir um sjö hundruð milljörðum króna. Í henni starfa um tuttugu þúsund manns. Greinin er um átta prósent af hagkerfinu, skattsporið er um 190 milljarðar. Þar af áttatíu milljarðar í beinum sköttum. Um leið og það dregur úr finnur hagkerfið fyrir. Svo sinnir greinin mjög mikilvægum þáttum í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis, atvinnuhúsnæðis og innviða. Við erum með mikla innviðaskuld,“ segir Ingólfur. Samdrátturinn sé mestur við uppbyggingu á íbúðarhúsnæði. Ýmsar skýringar séu á ástandinu en það þurfi að bregðast við. „Almennt er búið að hægja á hagkerfinu og hægur hagvöxtur. Því til viðbótar hefur verið mikil hækkun á opinberum gjöldum og sköttum, sem dregur úr vilja til að byggja íbúðir,“ segir Ingólfur. Þá séu ekki endilega bjartari tímar framundan. „Til þess að bæta gráu ofan á svart ætla stjórnvöld að gera það enn dýrara að byggja. Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem var lögð fram í sumar kemur fram að fyrirhugað sé að lækka enn frekar endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna á verkstað. Ef menn fara niður í núllið eru þetta tvær og hálf til þrjár milljónir á hverja íbúð. Það leggst á annan kostnað við uppbyggingu íbúða. Það dregur enn frekar úr uppbyggingu og skapar samdrátt. Þetta eru mjög neikvæð tíðindi ofan í þessar fréttir af samdrætti í greininni,“ segir Ingólfur.
Byggingariðnaður Vinnumarkaður Fasteignamarkaður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Stjórnsýsla Mest lesið Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Sjá meira