Ekki ert þú nú mikill maður Kristján Loftsson Kristján Logason skrifar 8. júlí 2026 07:15 Það er ýmislegt sem mér þykir leitt í þessu þjóðfélagi og er eitt af því hrokagikkir sem vaða áfram og gera það sem þeim sýnist án tillits til annarra og skammast svo út í allt og alla ef þeir fá ekki að fara sínu fram óáreittir. Viðtalið við þig á vísi nú í vikunni fékk mig til að muna lag með Þursaflokknum sáluga. Þann teksta ættir þú kanski að lesa og taka til þín því hann segir töluvert mikið um framkomu þína við aðra og gæti hugsanlega gefið þér einhverja von Þú ert pínulítill karl. Þannig er nú það maður minn. Af því sem frá þér kemur er ekkert sem hefur innihald. Þú getur ekki varið veiðarnar þínar sem enginn skilur í á annann hátt en að gera fólki upp skoðanir og illvilja, sérstaklega ef fólk vill fara eftir þeim lögum sem í landinu eru og þú vilt gjarnan nota sem viðmið ef þú getur endurtúlkað þau þér í hag. Þú ert pínulítill karlÞú ert;Obbo, obbo Obbo, obbo,Obbo, obbo,Obbo lítill karl. Þú getur heldur ekki setið á þér loks þegar þú ert kominn með míkrófóninn í hönd og verður að nota tækifærið sem gefst til að uppnefna fólk sem mest þú mátt rétt eins og eineltisseggurinn á skólalóðinni. Eigi konur í hlut ferð þú í ham og verður enn orðljótari en áður rétt eins og þú hatir allt sem frá konum kemur. Uppnefni þín til kvenna gera þig bara.. Jafnvel minni,Minni, minni,Minni, minni… Konur með bein í nefinu sem þora að taka á litlum körlum og láta þá ekki vaða yfir allt og alla kallar þú Stalínista af því að það á að vera svo ljótt orð. Slík framkoma í garð ráðherra og annarra valdhafa af kvennkyni segir mér að.. Þú ert;Pínu-Pínu-, pínu-,Pínulítill karl. Jafnvel minni,Minni, minni,Minni en þú varst í gær Þér finnst þú kannski fyndinn af því að gamlir karlpungar í reykfylltu bakherbergi hafa hlegið í gegnum tíðina og því veður þú áfram án þess að muna að það er bæði hægt að hljægja að fólki og við fólki og að ekki eru allir viðhlæjendur vinir. Fyrir mér ert þú fyrst og fremst hlægilegur Pínu-, pínu-,Pínu-, pínu-,Pínulítill karl. Værir þú ekki í mínum huga eins og gamall geltandi hundur haltrandi á loka metrunum gæti síðustu tvö erindin átt við þig, en ég efa að það gangi upp því pínulitlir karlar geta ekki veifað einhverju stóru eins og einn starfsmaður þinn. Stórmennskuna til að iðrast orða sinna og biðja afsökunar á því að uppnefna og herma upp á fólk allskyns hluti hefur þú líklega ekki heldur. Til þess þyrftir þú að geta tekið á honum stóra þínum Leiðast af öllu þykir mér þó að þú skulir vera nafni minn því margan góðan Kristján þekki ég sem lagt hefur fram mikið til þjóðfélagsins og verið góður við bæði menn og málleysingja og borið virðingu fyrir konum jafnt sem öðrum. Þú ert pínulítill karl,Þú ert;Obbo, obbo Obbo, obbo,Obbo, obbo,Obbo lítill karl. Jafnvel minni,Minni, minni,Minni, minni Þú ert;Pínu-Pínu-, pínu-,Pínulítill karl. Jafnvel minni,Minni, minni,Minni en þú varst í gær Pínu-, pínu-,Pínu-, pínu-,Pínulítill karl.Pínu-, pínu-,Pínu-, pínu-,Pínulítill karl. Nema, nema,Nema, nema,Nema, nema, nema, nema, Þú takir á honum stóra þínum. Höfundur er ljósmyndari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hvalveiðar Mest lesið Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar