Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Agnar Már Másson og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 5. júlí 2026 17:57 Lambi hefur komið sér í sjálfheldu, nokkuð langt frá sinni hjörð. Samsett Mynd Björgunarsveitir halda nú að Krýsuvíkurbjargi þar sem lamb hefur komið sér í sjálfheldu. Björgunarsveitarmenn ætla þar að athuga hvort hægt sé að síga niður til lambsins og bjarga því, þar sem dýrið er fast í fuglabjargi. „
Við ákváðum að kíkja aðeins á aðstæður og taka stöðuna út frá því,“ segir Valdís Huld Jónsdóttir, formaður Björgunarsveitar Hafnarfjarðar, í samtali við fréttastofu. Fyrr í dag ræddi Vísir við Teit Þorkelsson leiðsögumann, en honum hafði brugðið verulega í brún í morgun er hann hafði lagt leið sína að Krýsuvíkurbjargi. Þar tók á móti honum hið vanalega mávagarg og önnur fuglahljóð en hann furðaði sig á því þegar hann heyrði jarm óma um kletta og björg. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að þar væri lítið lamb komið í sjálfheldu á bjarginu innan um fugla og jurtir. Valdís hjá björgunarsveitinni segir að björgunarsveitir séu á leiðinni á vettvang og að fyrsta skref verði að athuga hvort öruggt sé að síga niður að lambinu. Teitur leiðsögumaður náði myndskeiði af lambinu sem birtist hér á Vísi en Valdís telur erfitt að segja til um það út frá myndefninu einu hvort auðvelt sé að bjarga skepnunni. „Ég reikna með að við tökum með búnað og vonumst eftir því besta.“ Krýsuvíkurbjarg er á sunnanverðum Reykjanesskaga.
Björgunarsveitir Hafnarfjörður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin Sjá meira