Formúla 1

Fyrsti sigur Leclerc í tvö ár

Andri Broddason skrifar
Charles Leclerc sigraði breska kappaksturinn en þetta er fyrsti sigur hans í tvö ár.
Charles Leclerc sigraði breska kappaksturinn en þetta er fyrsti sigur hans í tvö ár. Formula 1

Charles Leclerc vann sína fyrstu keppni í tvö ár eftir dramatískan breska kappakstur í Formúlu 1. Mikil dramatík var í keppninni en bíll Kimi Antonelli bilaði undir lok kappakstursins ásamt því að þurfti að senda út öryggisbíl.

Kimi Antonelli, ökumaður Mercedes, byrjaði kappaksturinn fremstur en hann missti báða Ferrari ökumenn fram úr sér sem byrjuðu í öðru og þriðja sæti. Lewis Hamilton hjá Ferrari var hins vegar klaufi og hreyfði sig áður en hann mátti fara af stað og fékk fimm sekúndna refsingu.

Þrátt fyrir slæma byrjun var Antonelli kominn í góða stöðu og náði að keyra lengi á hörðu dekkjunum sem hann byrjaði á. Eftir að Ferrari-bílarnir tóku þjónustuhlé var Antonelli orðinn fremstur.

Þegar Antonelli tók sitt þjónustuhlé var eitthvað að bílnum hans en Mercedes vissi ekki hvað það var. Antonelli keyrði mjög hægt og tók tvö önnur þjónustuhlé þar sem liðið reyndi að komast að því hvað var bilað. Þeir fundu ekki út úr því og Antonelli datt óvænt úr forystunni úr stigasætum.

Undir lok keppninnar var Charles Leclerc með forystuna og Lewis Hamilton annar og Max Verstappen þriðji.

Dramatíkin var þó ekki búin því upp úr þurru missti Max Verstappen stjórn á Red Bull-bíl sínum og endaði fastur í mölinni. Öryggisbíllinn kom út en Ferrari-ökumennirnir sóttu sér ný dekk til þess að klára keppnina á þegar keppnin hæfist aftur.

Leclerc náði að halda fyrsta sætinu en þjónustuhlé Lewis Hamilton var hægt og missti hann George Russell fram úr sér. Russell tók áhættu með því að setja ekki ný dekk undir bílinn en hann myndi vera mun hægari í endurræsingunni.

Það tók hins vegar brautarstarfsmenn aðeins lengri tíma að fjarlægja bíl Max Verstappen en búist var við og náði keppnin ekki að fara af stað aftur. Kappaksturinn kláraðist fyrir aftan öryggisbíl og Leclerc gat rúntað rólega í mark. Þetta var fyrsti sigur Leclerc síðan í bandaríska kappakstrinum árið 2024. Liðsfélagi hans hjá Ferrari, Lewis Hamilton, má vera svekktur yfir því að hafa misst Russell fyrir framan sig eftir að hafa tekið ný dekk.

George Russell náði því að minnka forskot Kimi Antonelli í heimsmeistarakeppni ökumanna niður í 25 stig og getur hann náð forystu heimsmeistaramótsins í næsta kappakstri. Hamilton er aðeins sjö stigum fyrir aftan Russell og því er toppslagur heimsmeistaramótsins mjög jafn. Charles Leclerc náði með sigrinum í dag að hoppa yfir Lando Norris í fjórða sæti heimsmeistaramótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×