Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 5. júlí 2026 13:32 Lambið mun svelta ef enginn kemur því til bjargar. aðsend Teiti Þorkelssyni leiðsögumanni brá í brún í morgun þegar hann lagði leið sína að Krýsuvíkurbjargi. Þar tók á móti honum hið vanalega mávagarg og önnur fuglahljóð en hann furðaði sig á því þegar hann heyrði jarm óma um kletta og björg.
Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að þar væri lítið lamb komið í sjálfheldu á bjarginu innan um fugla og jurtir. „Ég kom þarna með manneskju sem ég er með á leiðinni út á flugvöll, þá heyrir maður þetta vanalega fuglahljóð en síðan allt í einu heyrir maður hávært jarm. Þetta var eins og í íslensku ævintýri þegar einhver hefur gengið í björg. Hátt og skrælt hljóð. Það er lítið lamb þarna sem mænir upp á mann og jarmar og jarmar,“ segir Teitur í samtali við fréttastofu. Hann telur að lambið hafi verið í leit að æti og gengið lengra og lengra með bjarginu þangað til það var búið að koma sér í klandur. Lítið sé hægt að gera fyrir lambið nema aðilar með þar til gerðan búnað mæti á svæðið. Tugi metra fall blasir við fyrir neðan klettasylluna sem lambið stendur á. Teitur vonast til þess að eigendur komi lambinu til bjargar.Aðsend „Það verður bara að sitja þarna og drepast nema einhver komi og bjargi því. Þetta væri gott tækifæri til að framkvæma sigæfingu þarna á bjarginu fyrir björgunarsveitina til dæmis,“ segir Teitur og bætir við að hann hafi gert lögreglunni viðvart. Hann segir ómögulegt að meta hve lengi lambið hafi verið fast á umræddu svæði en telur að það hafi verið þar í þó nokkurn tíma enda engar aðrar kindur í grenndinni. Hann tekur fram að hann hafi rekist á hóp kinda nokkru frá sem eru eflaust frá sama eiganda. „Kindurnar sem ég hitti eru langt frá,“ segir Teitur sem telur þessar kindur vera fjölskyldu lambsins.aðsend „Mamman og hin lömbin hafa farið eitthvað annað eftir að hafa jarmast þarna á í einhvern tíma. Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur. Vonandi endar þessi lambasaga vel,“ segir hann og hvetur fólk til að ana ekki út í neina vitleysu til að bjarga lambinu enda gæti það orðið hættulegt. Hann vonast innilega til að eigendur eða viðbragðsaðilar bregðist við og komi lambinu í var.
Dýr Hafnarfjörður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira