„Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar 4. júlí 2026 15:31 Ég hef fylgst með umræðunni um Evrópusambandið undanfarna mánuði… lesið greinar frá fólki sem vill að Ísland gangi í sambandið og frá fólki sem vill standa utan þess. Ég hef verið sammála sumu og ósammála öðru. En eftir því sem ég hugsa meira um þetta, þeim mun meira sannfærist ég um að mikilvægasta spurningin er ekki hvort við eigum að segja já eða nei… Mikilvægasta spurningin er hvort við séum að spyrja réttu spurninganna. Undanfarið hef ég verið að velta fyrir mér hugtakinu heimsmynd… Kannski hljómar það svolítið fræðilegt. En í raun er það mjög einfalt. Heimsmynd er það sem mótar hvernig við sjáum veruleikann. Hún svarar spurningum eins og: Hvað er satt? Hvað er að? Hver er maðurinn? Hvað gefur lífinu tilgang? Hvað getur raunverulega leyst vandann? Allir hafa heimsmynd, hvort sem þeir gera sér grein fyrir því eða ekki. Enginn horfir á heiminn án gleraugna. Spurningin er bara hvaða gleraugu við erum með. Við verðum öll mótuð. Enginn sleppur við það. Spurningin er ekki hvort við verðum mótuð heldur af hverju og hverjum... og hvort við gerum okkur grein fyrir því. Því...Fjölskyldan mótar okkur. Skólinn mótar okkur. Háskólinn mótar okkur. Fjölmiðlar móta okkur. Samfélagsmiðlar móta okkur. Menningin mótar okkur. Kirkjan mótar okkur. Allt sem við hlustum á og lesum kennir okkur, smátt og smátt, hvernig við eigum að skilja heiminn. Þess vegna hef ég verið að hugsa um það sem ég kalla heimsmyndarrannsóknarstofu… Alls ekki vegna þess að ég tel mig hafa öll svörin. Heldur vegna þess að mig langar að læra að spyrja betri spurninga. Ég vil skilja áður en ég dæmi. Ég vil ekki gera þá sem eru mér ósammála að vondu fólki… ekki búa til strámann sem auðvelt er að fella. Ég vil geta lýst skoðun annarra svo sanngjarnt að þeir sjálfir segðu: „Já, þetta er nákvæmlega það sem ég meina.“ Og þá spyr ég fyrst: Hvaða forsendur liggja undir þessari niðurstöðu? Hvaða sögu er verið að segja? Hvað er talið vera vandamálið? Hver á að leysa það? Hver hefur endanlegt vald? Hvers konar samfélag mun þessi hugsun móta ef hún fær að vaxa? Þessar spurningar eiga jafnt við um kirkjur… stjórnmál… hugmyndafræði og Evrópusambandið. Þess vegna finnst mér umræðan á Íslandi stundum verða of grunn. Við heyrum slagorð á borð við. „Segjum já til að sjá.“ „Kíkjum í pakkann.“ „Opnum matseðilinn.“ En þjóðir taka ekki stærstu ákvarðanir sínar út frá slagorðum… heldur út frá sannfæringu. Og sannfæring verður ekki til nema við séum tilbúin að spyrja erfiðra spurninga. Þegar ég hlusta á umræðuna tek ég líka eftir því að fólk er stundum að tala um sama málið en út frá gjörólíkum forsendum. Sumir líta fyrst og fremst á Evrópusambandið sem efnahagslegt verkefni. Aðrir sem stjórnskipulegt verkefni. Enn aðrir sjá það sem leið til að breyta valdajafnvægi innan íslensks samfélags. Þess vegna finnst mér mikilvægt að við spyrjum ekki aðeins: „Styður þú aðild eða ekki?“ Heldur líka: „Hvaða vandamál telur þú að aðild eigi að leysa?“ Vegna þess að margir gera ráð fyrir að meiri áhrif innan kerfis sé betra en meira sjálfstæði utan kerfis. Og það þarf að rökstyðja. Svarið við þeirri spurningu skiptir máli. Því lausnin ræðst næstum alltaf af greiningunni. Þess vegna vil ég skilja greininguna áður en ég tek afstöðu til lausnarinnar. Ég velti líka fyrir mér sögu okkar… Baráttunni fyrir sjálfstæði… Þorskastríðunum… Icesave… Þetta eru ekki bara kaflar í sögubókum. Þetta eru atburðir sem mótuðu skilning okkar á sjálfstæði, ábyrgð og fullveldi. Þess vegna finnst mér eðlilegt að spyrja: Ef við tökum ákvörðun í dag vegna þess að við viljum auðvelda börnum okkar framtíðina… lægri vexti… stöðugri gjaldmiðil eða betri efnahagsleg tækifæri… hvaða framtíð erum við þá jafnframt að afhenda þeim? Hvaða ákvarðanir munu þau geta tekið sjálf? Hvaða ákvarðanir verða teknar í sameiginlegum stofnunum utan Íslands? Er það ásættanlegt? Mögulega. Er það óásættanlegt? Kannski. En áður en við svörum þeirri spurningu eigum við að vera sammála um að hún sé þess virði að spyrja. Og þetta eru ekki hræðsluspurningar… Þetta eru lýðræðisspurningar. Ég trúi því að margir sem vilja aðild að Evrópusambandinu vilji Íslandi vel. Og ég trúi því líka að margir sem vilja standa utan þess vilji Íslandi vel. En góð fyrirætlun leysir okkur ekki undan skyldunni til að hugsa skýrt. Fyrir mér snýst þetta því ekki fyrst og fremst um Evrópusambandið. Það snýst um hvernig við hugsum. Hvort við leyfum bara slagorðum að hugsa fyrir okkur… Eða hvort við höfum þolinmæði til að rekja hverja niðurstöðu aftur að rótum hennar. Ég hef komist að því að markmið dómgreindar er ekki fyrst og fremst að afhjúpa villur annarra. Markmið dómgreindar er að verða sú manneskja sem elskar sannleikann svo mikið að hún er sjálf tilbúin að láta sannleikann leiðrétta sig. Þetta er líka ástæðan fyrir því að ég er vongóður… Ekki vegna þess að ég tel að öll vandamál eigi auðveldar lausnir. Heldur vegna þess að ég trúi því að von kvikni þegar fólk hefur kjark til að horfast í augu við raunveruleikann og leita sannleikans saman. Samfélag sem elskar sannleikann þarf ekki að óttast erfiðar spurningar. Þvert á móti. Það getur tekist á um ágreining af virðingu, vegna þess að markmiðið er ekki að sigra hvert annað heldur að sjá skýrar. Kannski er það einmitt þar sem raunveruleg von byrjar. Kannski er það nákvæmlega sú umræða sem Ísland þarf mest á að halda núna. Ekki háværari umræða. Heldur dýpri. Því þegar við lærum að sjá ræturnar áður en við rökræðum greinarnar, þá eigum við meiri möguleika á að taka skynsamlegar ákvarðanir… ekki aðeins fyrir okkur sjálf, heldur líka fyrir þá kynslóð sem tekur við landinu á eftir okkur. Höfundur er guðfræðingur og iðnaðarmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Samningsmarkmið Haukur Eggertsson Skoðun Universities should not punish students for bureaucratic incompetence Colin Fisher Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson Skoðun Geðþóttaákvörðun barna- og menntamálaráðherra? Kristín Björnsdóttir Skoðun Evrópa eða Bandaríkin? Snorri Ásmundsson Skoðun Þegar sumarnámskeið eru ekki raunhæfur valkostur Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir Skoðun Beðið eftir Godot? 83 dagar, 179 tölvupóstar Einar Bárðarson Skoðun Sóknarfæri í fullvinnslu - Hvers vegna ESB-aðild gæti opnað nýjar dyr Halldór Jörgen Olesen Skoðun Nýtt mat AGS á upptöku evru fyrir Ísland Dagur B. Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Universities should not punish students for bureaucratic incompetence Colin Fisher skrifar Skoðun Samningsmarkmið Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson skrifar Skoðun Lækkum álögur og afnemum byggingarrétt af atvinnulóðum Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Sóknarfæri í fullvinnslu - Hvers vegna ESB-aðild gæti opnað nýjar dyr Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Beðið eftir Godot? 83 dagar, 179 tölvupóstar Einar Bárðarson skrifar Skoðun Evrópa eða Bandaríkin? Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Þegar sumarnámskeið eru ekki raunhæfur valkostur Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir skrifar Skoðun Já til að sjá er af og frá Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ísland er í 1. sæti heims á lífskjaravísitölu SÞ - yrði hagur okkar raunverulega betri innan ESB? Elísabet Gísladóttir skrifar Skoðun Nýtt mat AGS á upptöku evru fyrir Ísland Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun „Þúsund þorskar á færibandinu...“ Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Sjá hvað? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Geðþóttaákvörðun barna- og menntamálaráðherra? Kristín Björnsdóttir skrifar Skoðun Til hvers erum við að breyta námsmatinu? Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Komstu ekki með afmælisgjöf? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Sleggjudómar ráðherra Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Smæðin er samnefnarinn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Dauði eða upprisa Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þjóðin á síðasta orðið Erna Kaaber skrifar Skoðun Vangaveltur um ESB, smáríki og Sviss Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hernaðarástand í Fannborg Tryggvi Felixson skrifar Skoðun Um þöggun Hörður Torfason skrifar Skoðun Er of dýrt að sækja um aðild að ESB? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun EES vs. ESB - Hversu mörg störf missum við vegna tollanna? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Fjárhættuspil í barnaherberginu Alma Hafsteinsdóttir,Anný Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Ísland er í ESB Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Þurfum við enn eitt yfirvaldið? Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar Sjá meira
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun
Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson Skoðun
Skoðun Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson skrifar
Skoðun Sóknarfæri í fullvinnslu - Hvers vegna ESB-aðild gæti opnað nýjar dyr Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Ísland er í 1. sæti heims á lífskjaravísitölu SÞ - yrði hagur okkar raunverulega betri innan ESB? Elísabet Gísladóttir skrifar
Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson skrifar
Skoðun Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun
Hver er raunverulega ógnin við fullveldi Íslands? Vangaveltur um Evrópusambandið og framtíð okkar Már Másson Skoðun