Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Tómas Arnar Þorláksson skrifar 3. júlí 2026 13:07 Rod Coronado, leiðangursstjóra Bandero. vísir/vilhelm Bandero hefur enn ekki komist í grennd við hvalveiðibáta Hvals þrátt fyrir yfirlýsingar um að skip Paul Watson-samtakanna stefni nú hraðbyri í átt að hvalamiðum. Mast hefur nú að minnsta kosti þrjú atvik til rannsóknar þar sem grunur leikur á um að ekki hafi verið staðið með réttum hætti að veiðum.
Samkvæmt myndskeiði sem Paul Watson-samtökin birtu á samfélagsmiðlum hafa Hvalur 8 og Hvalur 9 nú yfirgefið Hvalfjörð og eru farnir aftur á veiðar á sjó úti eftir brælu síðustu daga. Þau segja Bandero nú vera á ferðinni í átt að hvalamiðum en skipið hefur verið á siglingu við tólf mílna landhelgi Íslands síðustu daga. Undirbúningur sé hafinn til að mæta skipum Hvals hf. Fréttastofa hefur reynt að ná sambandi við Kristján Loftsson forstjóra Hvals síðustu daga og vikur án árangurs. Þá hafa starfsmenn Hvals ekki gefið kost á viðtali en þeir hafa fengið þau fyrirmæli að ræða ekki við fréttamiðla. Samkvæmt heimildum fréttastofu sigldu hvalveiðibátarnir úr Hvalfirði í gær um hádegisbilið. Samkvæmt upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar er staðan óbreytt og Bandero enn fyrir utan landhelgi. Þór, varðskip gæslunnar, er enn í grennd við Bandero og fylgist grannt með för þess. Skipið sé ekki í nálægð við hvalveiðiskipin. Þóra J. Jónasdóttir, yfirdýralæknir Matvælastofnunar, segir í samtali við fréttastofu að rannsókn standi enn yfir á atviki þar sem hvalur háði hálftíma dauðastríð. Vonir eru bundnar við að rannsókn ljúki í næstu viku. Hún tekur fram að öll tilvik þar sem framkvæmd veiðanna uppfyllir ekki ákvæði reglugerðar um veiðar á langreyðum séu rannsökuð sérstaklega. Hún staðfestir að þrjú atvik séu til skoðunar. Eftirlitsmaður frá Matvælastofnun hefur verið um borð við veiðar á átta hvölum af þeim ellefu sem hafa verið veiddir hingað til. „Það eru allavega þrjú tilfelli til sérstakrar skoðunar hvað varðar framkvæmd veiðanna.“ Leiðangur Bandero er kenndur við Aðgerð 86 sem vísar til leiðangurs Sea Sheppard-samtakanna frá árinu 1986 þar sem búnaður Hvals var eyðilagður og tveimur hvalveiðibátum var sökkt. Rod Coronado sem tók þátt í skemmdarverkunum 1986 leiðir nú Aðgerð 86 um borð Bandero. Hann ítrekar í skriflegu svari til fréttastofu að ekki komi til greina að stefna lífi eða heilsu skipverja á hvalveiðiskipunum eða Þór í hættu. Hann telur Íslendinga skammast sín fyrir hvalveiðar og meðferð á dýrunum sem að hans mati einkennist af vanvirðingu. Hann segir stjórnvöld geta stöðvað för Bandero með því að stöðva hvalveiðar. Rætt verður nánar við Rod Coronado, leiðangursstjóra Bandero, í kvöldfréttum Sýnar.
Hvalir Hvalfjarðarsveit Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hvalveiðar Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Sjá meira