Upp­gjör: Ís­land - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala

Árni Jóhannsson skrifar
Tryggvi var í villuvandræðum gegn Ítalíu en náði samt að troða harkalega á þá.
Tryggvi var í villuvandræðum gegn Ítalíu en náði samt að troða harkalega á þá. Vísir / Anton Brink

Ísland mætti Ítalíu í næst síðasta leik liðsins í undankeppni HM 2027 í körfubolta. Eftir jafnvægi í upphafi þá sigldu Ítalir hægt og rólega framúr. Hittni þeirra var ógurleg og það var alveg sama hvað Ísland reyndi þá hittu Ítalirnir ótrúlega vel. Lokatölur 83-102 og Ísland þarf að vinna Breta til að komast áfram.

Vísir / Anton Brink

Leikurinn hófst í miklu jafnvægi. Ítalía átti fyrsta högg en Ísland náði að svara, komast yfir og svo skiptast á höggum gegn ítalska liðinu. Martin Hermannsson var frábær fyrir Ísland í fyrsta leikhluta og skoraði 13 stig og manni fannst þau öll skipta máli í því að Ísland hélt í við Ítali sem vor feti framar í upphafi. 

Kristinn Pálsson á leið að körfunni.Vísir / Anton Brink

Dómarateymið fannst flestum ekki byrja leikinn vel en Tryggvi Snær Hlinason var kominn með þrjár villur í lok fyrsta leikhluta og þurfti hann að setjast niður og passa sig það sem eftir lifði leiks. Ítalía nýtti það ekki til fulls og Elvar Már Friðriksson setti niður þrjú víti í lok leikhlutans til að minnka muninn í tvö stig 25-27. 

Almar Atlason kom inn á og setti niður þrist til að koma Íslandi yfir 28-27 en svo syrti í álinn fyrir íslenska liðið. Ítalía hitti ótrúlega vel í kvöld og þegar annar leikhluti var hálfnaður var staðan orðin 36-45 og Ítalirnir komnir í sinn besta gír. Ísland náði á móti ekki að grípa þau tækifæri sem þeir fengu og áfram héldu gestirnir að fá villur en þeir enduðu á að taka 20 víti í fyrri hálfleik og setja niður 15 af þeim. 

Eitthvað hefur pirrað Bjarna Guðmann á þessum tímapunkti.

Staðan í hálfleik var 46-58 fyrir gestina en það var enn von á því að Ísland kæmist á sprett til að draga Ítalina nær sér. Sá sprettur kom ekki.

Nico Mannion sem hafði skorað fjögur stig í fyrri hálfleik setti Ítalina á bakið og sallaði niður átta stigum í upphafi seinni hálfleiks og áður en við var litið var staðan orðin 46-64 og orkan engin í liði Íslands. Íslenska liðið skoraði ekki nema fjögur stig fyrstu fimm mínútur hálfleiksins og gestirnir frá Ítalíu gengu á lagið. Ítalir juku forskot sitt jafnt og þétt og var það komið yfir 20 stigin þegar um fjórar mínútur lifðu af þriðja leikhluta. 

Lokað á Jón Axel. Lýsandi fyrir upphaf seinni hálfleiksins.Vísir / Anton Brink

Ísland hélt áfram að glutra tækifærunum sínum niður og til dæmis um það er hægt að líta á sóknarfrákasta baráttuna. Ítalía tók einu sóknarfrákasti meira en Ísland en skoraði úr þeim 14 stigum fleira en heimamenn. 4-18 var staðan í þeim flokki og lýsandi dæmi um gang leiksins.

Fjórði leikhluti var svo formsatriði fyrir gestina en Ísland náði aldrei að ógna forskotinu. Ítalía vann leikinn 83-102 og var sigurinn sanngjarn. Hittni gestanna var frábær og hittu þeir úr 80% tveggja stig skota sinna á löngum kafla í leiknum. Ísland réði ekki við þá og Ítalir betra liðið í dag.

Ítalía var ofan í baráttunni oft og tíðum.Vísir / Anton Brink

Ísland þarf því að vinna Bretland á sunnudaginn til að komast áfram og eru strákarnir því á leiðinni í úrslitaleik í Manchester á sunnudaginn kl. 14. Við vitum að þeir eiga að geta unnið breska liðið og nú mæta þeir með bakið upp við vegg.

Atvik leiksins

Áhlaupið sem Ítalía hóf í upphafi seinni hálfleiks var undirstrikað með frábærri troðslu Nico Mannion yfir Tryggva sem réði ekkert við leikstjórnandann sem komst á flug.

Stjörnur og skúrkar

Martin Hermannsson var stigahæstur í liði Íslands og skoraði 22 stig í leiknum. Sóknarleikur Íslands var kannsk ekki vandamálið í kvöld en varnarleikurinn hefði kannski getað verið betri en það skipti eiginlega ekki máli hvað var reynt því Ítalía hitti úr öllu.

Martin Hermannsson fann sig vel í kvöld.Vísir / Anton Brink

Allir nem tveir leikmenn Ítalíu komust á blað í kvöld. Stigahæstir voru Stefano Tonut og Amedeo Tessitori með 15 stig. Tessitori naut þess lengi í hve miklum villuvandræðum Tryggvi var en hann t.a.m. setti niður fimm víti af sex.

Tonut var handfylli fyrir okkar menn í kvöld.Vísir / Anton Brink

Umgjörð og stemmning

Stappfulltí Laugardalshöllinni og létu íslensku áhorfendurnir vel í sér heyra lengi vel. Ítölunum gekk þó vel í að lækka í þeim róminn og drepa neistana sem mynduðust með hverri körfunni á fætur annarri.

Dómararnir

Leikur tveggja hálfleikja hjá dómurum leiksins. Eins og ég sagði áðan þá fengu Ítalir 20 vítaskot gegn sex í fyrri hálfleik og manni fannst halla á heimamenn. Dómgæslan lagaðist í seinni hálfleik en fimmta villan á Tryggva var ekki mikil villa en kostaði Tryggva heimildina til að spila.

Tryggvi naut ekki alltaf sanngirnis hjá dómaratríóinu í kvöld.Vísir / Anton Brink

Tryggvi: Við vorum leiðinlega flatir eiginlega í öllum leiknum

Tryggvi Snær Hlinason náði að skila 13 stigum á töfluna fyrir Ísland í kvöld. Verra var að hann lenti snemma í villuvandræðum og lauk leik með fimm villur þegar um fimm mínútur voru eftir. Var eitthvað sem Ísland gat gert betur í kvöld?

Tryggvi var í brasi í kvöld enda í villuvandræðum.Vísir / Anton Brink

„Já klárlega. Sóknarlega held ég að við höfum spilað góðan leik, stundum hittir maður eða hittir ekki. Að skora 83 stig er bara fínt en að fá á sig 102 er ekki í lagi. Við vorum leiðinlega flatir eiginlega í öllum leiknum.“

Tryggvi var spurður út í dómgæsluna enda lenti hann í villuvandræðum snemma.

„Já, þetta voru leiðinlegar villur að fá en þetta er bara partur af leiknum og stundum fer þetta illa. Meirihlutinn af þessum vafavillum féllu með þeim og það er leiðinlegt en dómararnir eru mannlegir og hlutir fara illa eða vel í þessum efnum. Það er ekkert upp á sig að hugsa um það. Við þurfum að setja fókusinn strax á Bretland og hugsa ekki lengur um þetta.“

Hvernig eru svo næstu dagar þegar úrslitaleikur á móti Bretum er annars vegar?

„Það er bara stemmning í liðið. Við þurfum að peppa hvorn annan upp sem ég veit að við munum gera. Það er bara ferðalag á morgun og ein leið áfram og það er yfir Bretland.“

Spilar það inn í að Ísland á harma að hefna gegn Bretum?

„Já já, við áttum dapran leik hérna heima gegn þeim í leik sem við teljum að við áttum að ná í en við erum góðir úti eins og heima. Þótt við höfum ekki sýnt það í dag þá erum við drullugóðir og ætlum að ná í sigurinn gegn Bretlandi.

Jón Axel: Flækjustigið helvíti mikið

Vísir / Anton Brink

Jón Axel Guðmundsson gat tekið undir með blaðamanni að erfitt væri að eiga við Ítali í þeim ham sem þeir voru í í kvöld. Jón Axel skoraði 12 stig í kvöld og hélt Íslandi inn í leiknum á kafla en það dugði ekki til.

„Það er erfitt þegar allt fer ofan í hjá þeim og Tryggvi lendir snemma í villuvandræðum. Þá verður flækjustigið helvíti mikið.“

Var eitthvað sem Ísland gat gert til að eiga möguleika í kvöld?

„Ég veit það ekki. Kannski að prufa eitthvað nýtt í vörninni en við vorum að reyna og reyna og reyna. Í körfubolta lifir þú ógeðslega mikið með pul-up skotum sem þeir voru að hitta í dag.“

Var Jón að finna sig vel í kvöld? Eins og áður segir hélt hann Íslandi á floti á köflum.

„Já þannig séð. Þetta er flókinn gluggi. Maður er þreyttur eftir tímabilið en á sama tíma margir búnir að vera frá í einhverjar vikur og þurfa að koma sér aftur inn í þetta. Maður er að reyna sitt besta en svo fara lappirnar kannski fyrr undan manni í seinni hálfleik.“

Það er mjög mikilvægur leikur á sunnudaginn gegn Bretum en hvernig þurfa menn að nálgast það verkefni?

„Þannig séð alveg eins og við gerðum í dag. Þegar maður er búinn að vera í pásu þá er fyrsti leikurinn erfiðari en annar leikurinn og ég held að það hafi verið gott að koma þessu frá okkur og svo verðum við ferskir á sunnudaginn.“

Er úrslitakeppnis bragur á þessum dögum?

„Þetta er allt öðruvísi gluggi en maður er vanur. Það er bara þannig og við verðum bara að taka á því.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira