Íslensk dóttir á heimsleikunum í fyrsta sinn í þrjú ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júní 2026 08:00 Bergrós Björnsdóttir er að komast á heimsleikana fyrir tvítugt sem boðar heldur betur gott fyrir framtíðina. Vísir/Lýður Bergrós Björnsdóttir mun keppa á heimsleikunum í CrossFit í ár en þetta var loksins staðfest í gærkvöldi þegar CrossFit-samtökin gáfu út endanlega lokastöðu í síðasta undanúrslitamótinu sem fór fram í gegnum netið.
Bergrós endaði þar í sjöunda og síðasta sætinu sem gaf þátttökurétt á heimsleikunum sem fara fram í San Jose í Kaliforníu-fylki í Bandaríkjunum frá 24. til 26. júlí næstkomandi. Bergrós var lengi í níunda sæti en hækkaði upp um tvö sæti eftir að tvær fyrir ofan hana fengu á sig refsingu. Keppendur þurftu að skila myndböndum með æfingunum í gegnum netið og þau voru síðan yfirfarin. Hér má sjá staðfestingu á því að Bergrós Björnsdóttir náði sjöunda og síðasta sætinu sem gaf þátttökurétt á heimsleikunum.@crossfitgames Bergrós fékk allar sínar æfingar samþykktar en aðrir voru ekki í sömu sporum og mistök þeirra urðu til þess að heimsleikasætið rann þeim úr greipum. Bergrós verður því með á heimsleikum fullorðinna í fyrsta sinn á ferlinum en hún hefur keppt þrisvar á heimsleikum unglinga. Bergrós er nítján ára gömul og hefur tekið mörg risastór skref á síðustu árum á leið sinni í hóp bestu CrossFit-kvenna heims. Bergrós keppir nú á heimsleikunum seinna í þessum mánuði þar sem samkeppnin verður frá 29 öðrum CrossFit-konum en í kvennaflokki koma keppendur frá ellefu þjóðum. Ísland hafði ekki átt dóttur á síðustu tveimur heimsleikunum en þar á undan var íslensk dóttir á fimmtán heimsleikum í röð eða frá því að Anníe Mist Þórisdóttir keppti fyrst árið 2009. Frá 2009 til 2023 átti Ísland keppendur í kvennaflokki en flestar voru þær fimm á heimsleikunum árið 2019 þegar þar kepptu Anníe Mist, Katrín Tanja Davíðsdóttir, Þuríður Erla Helgadóttir, Sara Sigmundsdóttir og Oddný Eik Gylfadóttir. Þetta verða afmælisheimsleikar enda þeir tuttugu í sögunni. Það var vel við hæfi að þjóð sem á fjóra af nítján heimsmeisturum sögunnar ætti þar að minnsta kosti einn keppenda í kvennaflokki. View this post on Instagram A post shared by CrossFit Games (@crossfitgames)
CrossFit Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira