Mannréttindi þarf ekki að endurhugsa — þau þarf að virða Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar 29. júní 2026 13:02 Umræðan um notendastýrða persónulega aðstoð, NPA, er á hættulegum villigötum. Enn á ný er rætt um að „endurhugsa“ þurfi fjármögnun NPA. Að kerfið þarfnist endurskoðunar. Að ríki og sveitarfélög þurfi að setjast yfir málið. Að þetta sé flókið. En staðan gagnvart notendum er ekki flókin. Hún er skýr. NPA er lögbundinn réttur. Sveitarfélög bera ábyrgð á þjónustunni. Þau bera ábyrgð á framkvæmd hennar. Þau bera ábyrgð á kostnaði vegna hennar og er skylt að fjármagna hana. Þetta eru ekki óljós eða óútkljáð atriði heldur gildandi lög sem sett eru til samræmis við samninga sem sveitarfélögin og ríkið hafa sjálf gert sín á milli. Þegar einstaklingur hefur fengið rétt sinn til NPA viðurkenndan en fær samt ekki þjónustuna vegna þess að sveitarfélagið hefur ekki fjármagnað hana er vandinn ekki sá að réttarástandið sé óljóst. Vandinn er sá að lögin eru ekki virt. Þetta er kjarni málsins. NPA er ekki greiðvikni eða valkvætt gæluverkefni sem sveitarfélög veita þegar vel árar. NPA er sú leið sem Alþingi hefur valið til að tryggja fötluðu fólki með miklar og langvarandi stuðningsþarfir rétt þess til sjálfstæðs lífs. Þessi réttur er hluti af lögfestum mannréttindum fatlaðs fólks hér á landi. Með lögum nr. 80/2025 hefur samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verið veitt lagagildi hér á landi. Í 19. gr. samningsins er viðurkenndur jafn réttur alls fatlaðs fólks til að lifa í samfélaginu og eiga valkosti til jafns við aðra. Þar er sérstaklega kveðið á um að fatlað fólk skuli hafa aðgang að þeirri samfélagslegu stuðningsþjónustu, þar á meðal persónulegri aðstoð, sem er nauðsynleg til að það geti lifað án aðgreiningar í samfélaginu og komið í veg fyrir einangrun. Það er nákvæmlega það sem NPA á að tryggja og gerir með ákvæðum laga nr. 38/2018. Þess vegna er rangt að tala um NPA líkt og um sé að ræða óútkljáð fjárhagslegt tilraunaverkefni. NPA felur í sér framkvæmd lögbundinna mannréttinda. Þegar þjónustan er samþykkt en ekki veitt er ekki verið að fresta valkvæðu verkefni. Það er verið að brjóta lög og þau mannréttindi sem lögunum er ætlað að tryggja. Framtíðarhugmyndir stjórnmálamanna um breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga breyta því ekki að sveitarfélög bera samkvæmt gildandi lögum ábyrgð gagnvart notendum á því að NPA þjónusta sé veitt. Það er ekki hægt að svara ábendingum um lögbrot með því að segjast ætla að endurhugsa hvort fara þurfi að lögum. Það eru samt sem áður þau svör sem fatlað fólk fær í dag. Á meðan sveitarfélögin endurhugsa hvort þau ætli að fara eftir gildandi lögum er fatlað fólk látið bíða. Ef sveitarfélög telja að ríkið þurfi að koma í auknum mæli að fjármögnun lögbundinnar þjónustu geta þau átt það samtal við ríkið. Þau geta hins vegar ekki notað það samtal til að koma sér hjá því að fara að gildandi lögum og virða lögbundnar skyldur sínar gagnvart fötluðu fólki. Lögin gilda á meðan þeim hefur ekki verið breytt. ÖBÍ réttindasamtök sætta sig ekki við að lögbundin mannréttindi fatlaðs fólks séu sett á bið á meðan stjórnmálamenn tala um að endurhugsa þurfi kerfið. Við sættum okkur ekki við að sveitarfélög viðurkenni réttindi á pappír en neiti að fjármagna framkvæmd þeirra. Við sættum okkur ekki við að opinberir aðilar vísi hver á annan á meðan einstaklingar bera afleiðingarnar í eigin lífi og eigin líkama. Við krefjumst þess einfaldlega að farið verði að lögum og að lögbundin réttindi fatlaðs fólks séu virt. Ekki einhverntímann síðar heldur strax. Höfundur er formaður ÖBÍ réttindasamtaka. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alma Ýr Ingólfsdóttir Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar