Tveimur refsað og Bergrós líklegast á leið á heimsleikana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júní 2026 08:30 Bergrós Björnsdóttir stóð sig vel á úrslitastundu og það virðist ætla að skila henni alla leið á heimsleikana. Vísir/Einar Ólán tveggja öflugra keppenda á undanúrslitamóti heimsleikanna virðist ætla að vera lán bestu CrossFit-konu Íslands í dag en Bergrós Björnsdóttir virðist vera að uppskera heimsleikadrauminn sinn.
Í fyrstu leit út fyrir að Bergrós myndi rétt missa af möguleikanum á að keppa á heimsleikunum í CrossFit þrátt fyrir frábæra frammistöðu á undanúrslitamótinu. Það eru tvær vikur síðan nethluta undanúrslita heimsleikanna lauk en síðan hafa yfirmenn CrossFit-samtakanna verið að yfirfæra myndbönd keppenda. Var níunda en er nú orðin sjöunda Það hefur haft sínar afleiðingar. Bergrós endaði í 9. sæti á undanúrslitamótinu en aðeins sjö sæti voru í boði á heimsleikunum. Þetta var síðasta tækifæri keppenda til að komast á heimsmeistaramótið en Bergrós hafði einnig verið nálægt því að komast beint inn á undanúrslitamótið þar sem hún keppti á staðnum. Þetta mót fór aftur á móti í gegnum netið þar sem keppendur skiluðu upptökum af æfingum sínum og þurftu jafnframt að vera með löggilda dómara á staðnum til að votta árangur sinn. Bið eftir endanlegri staðfestingu Nú hefur stöðutaflan verið uppfærð á heimasíðu CrossFit-samtakanna og Bergrós er komin upp í þetta eftirsótta sjöunda sæti. Hún hefur þegar fengið staðfestingu á því að myndbönd af öllum fimm greinum hennar hafa verið staðfest og eru fullgild. Bergrós á nú von á boði á CrossFit-leikana í San Jose ef stigataflan verður staðfest án frekari breytinga. Þær sem duttu niður listann voru annars vegar franski reynsluboltinn Claudia Gluck og hins vegar Jess Green sem hélt að hún væri komin inn á heimsleikana í fyrsta sinn. Jess Green fell úr fimmta sætinu alveg niður í 251. sæti en Claudia Gluck fell úr sjöunda sæti niður í sæti sautján. Féll úr 5. sæti niður í 251. sæti Stærsta breytingin varð hjá Jess Green, sem féll úr 5. sæti alla leið niður í 251. sæti á uppfærðri stigatöflu. Skor hennar í greinum 1, 3 og 4 eru nú skráð sem núll, breyting sem virðist tengjast misræmi í dómgæslu, þar sem nafn yfirdómara á vefsíðu leikanna passaði ekki við nafnið sem skrifað var á töfluna í myndbandi hennar. Niðurstaða Gluck í grein tvö var leiðrétt úr 10. sæti niður í 64. sæti, sem hafði keðjuverkandi áhrif á heildarstigafjölda hennar og færði hana niður í 17. sæti á stigatöflunni. Nú bíða allir spenntir eftir því hvenær CrossFit læsir stigatöflunni formlega og staðfestir þær sjö konur sem halda á CrossFit-leikana 2026. Bergós hefur aldrei keppt á heimsleikunum í flokki fullorðinna en náði frábærum árangri í unglingakeppninni, þar á meðal vann hún brons á heimsleikunum í flokki 16 til 17 ára sumarið 2023. View this post on Instagram A post shared by Bergrós Björnsdóttir (@bergrosbjornsdottir)
CrossFit Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Bónus-deild kvenna og umferðinni lýkur í Newcastle Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjá meira