Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Freyja Þórisdóttir skrifar 23. júní 2026 20:36 Sandra segist telja að langflestir gestir Smáralindar muni geta heimsótt verslanamiðstöðina án þess að spá nokkuð í gjaldskyldunni. vísir/vilhelm/bjarni Forsvarsmenn Smáralindar hafa ákveðið að taka upp gjaldskyldu á bílastæðum við verslunarmiðstöðina en uppbygging á svæðinu og aðsókn í húsið eru meðal þess sem spilaði inn í ákvarðanatökuna að sögn markaðsstjóra Smáralindar.
Fréttamaður Sýnar kynnti sér málið í kvöldfréttum en þar kom meðal annars fram að gjaldskyldan muni bara taka gildi ef lagt er við Smáralind lengur en í fjóra klukkutíma. Ekki nein áhrif á langflesta viðskiptavini „Það hefur átt sér stað mikil uppbygging hérna á svæðinu í kringum Smáralind á síðustu árum og samtímis hefur aðsókn í húsið aukist alveg verulega og við höfum verið að finna fyrir auknum þrýstingi á bílastæðin hérna,“ segir Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar, og bætir við að það sé sérstaklega mikill þrýstingur sem skapist af bílum sem eru lagðir við verslunarmiðstöðina til langs tíma. „Þannig að til þess að tryggja það að okkar viðskiptavinir hafi greiðan aðgang að bílastæðunum og að húsinu, þá erum við að bregða til þessa ráðs,“ segir hún einnig og ítrekar að það verði áfram frítt að leggja við Smáralind í fjórar klukkustundir, „þannig að þetta mun eiginlega ekki hafa nein áhrif á langflesta okkar viðskiptavini“. Innheimtar verða 450 krónur á klukkustund en líkt og þegar hefur komið fram verður bara rukkað fyrir þær mínútur sem telja umfram fjórar klukkustundir. Sandra segir heimsókn í verslanahöllina, þar sem gestir geta meðal annars farið að sjá bíómynd eða farið út að borða í mathöllinni, myndi alla jafna rúmast innan þessa fría tímabils. „Það verður stuðst við bara alla nýjustu tækni í þessum málum, myndavélagreiningar og greiðslukerfi. Fólk getur í rauninni komið hérna og keyrt að og ef það er styttri en fjórar klukkustundir gerir það ekki neitt, bara keyrir í burtu og finnur ekkert fyrir þessu,“ segir hún en að það sé ekki búið að ákveða endanlega dagsetningu fyrir upphaf gjaldtöku. „Það er ekki komin dagsetning á það, en þetta verður í haust,“ segir Sandra.
Smáralind Kópavogur Bílastæði Neytendur Bílar Mest lesið Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Sjálfskaparvíti Venesúela: Sósíalíska draumaríkið sem kollvarpaðist í martröð Viðskipti erlent Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó Atvinnulíf Óvissa með umboð lækkar skuld Costco um fleiri milljónir Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Ein og hálf milljón í sekt vegna leyfislausrar Airbnb útleigu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Arion banki hækkar gjöld Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Kalla inn fæðubótarefni Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Vekja athygli á innköllun leikfangs Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Kalla inn súkkulaðibitakökur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Thule lækkar í prósentu Sjá meira