Skoðun

Upp­lýsingaóreiða for­manns utan­ríkis­mála­nefndar

Erna Bjarnadóttir skrifar

Formaður utanríkismálanefndar, Pawel Bartozsek, hefur gert matvælaverð og mögulega lækkun þess að umræðuefni við ESB aðild að umtalsefni á sínum samfélagsmiðlum undanfarið. Þar hefur einna hæst borið þá fullyrðingu hans að verð á skyndibitum eins og vefjum af tilteknum veitingastað geti lækkað um 25% gerist Ísland aðili að ESB.

Sem áhugamanneskja um matvælaverð til áratuga ákvað ég að ráðast í sjálfstæða rannsókn á þessari fullyrðingu á grundvelli þeirra gagna sem tiltæk væru og ganga þannig skrefi lengra en Pawel og byggja á tölulegum staðreyndum og skoðun á innihaldi í slíkum vefjum.

Í þessum tilgangi lagði ég leið mína á veitingastaðinn Saffran við Dalveg mánudagskvöldið 23. júní. Það keypti ég eina hunangshollustuvefju á 2.590 kr. Þjónustan var til fyrirmyndar og vefjan stóðst allar mínar væntingar svo það sé sagt, starfmenn aðstoðuðu við að nota pöntunarviðmótið á staðnum. Þau upplýstu mig aðspurð um að í vefjunni væru 120 g af kjúklingakjöti og það væri kjöt af kjúklingaleggjum sem notað er í vöruna.

Þegar vefjan var komin á diskinn minn skoðaði ég innihaldið lauslega. Ég kom ekki auga á að neitt annað hráefni í henni gæti flokkast undir landbúnaðarvörur sem bera tolla. Grænmeti, sósur, hrísgrjón og vefjan sjálf er allt tollalaust í innflutningi en þar innan um voru líka íslenskar afurðir. Það á sannarlega við um VAXA salatið í vefjunni og mjög líklega agúrkuna þó ekki sé unnt að fullyrða það. Það breytir þó engu um að tollar hafa engin áhrif á innkaupsverðið til veitningahússins, í þessu tilviki Saffran.

Til að fylla inn í myndina var því aðeins nauðsynlegt að fá hugmynd um hvað kjúklingakjötið í hana gæti kostað í innkaupsverði. Til að gera langa sögu stutta þá gæti innkaupsverð á þessum 120 grömmum legið á bilinu 280 – 290 krónur. Hér er átt við fulleldað beinlaust kjöt af kjúklingaleggjum sem rýrnar um ca. 20% við eldun.

Pawel fullyrðir að við ESB – aðild geti verðið lækkað um 25% eða úr 2.590 kr/stk í 1942.50 kr/stk.

Mismunurinn 647,50 kr er 2,25 falt það sem bara kjúklingurinn í vefjuna kostar miðað við þessar forsendur. Ef kjúklingakjötið lækkar um 25% sem er enginn getur þó fullyrt einu orði um hvorki til né frá, nemur lækkunin á hráefniskostnaðinum 72 krónum og vefjan lækkar því úr 2.590 kr í 2.518 krónur eða um 2,8%.

Er Pawel að gefa í skyn að ESB borgi með kjúklingakjöti í skyndibita við ESB aðild eða hvernig fær hann sína niðurstöðu út?

Með öðrum orðum, formaður utanríkismálanefndar ber á borð fyrir alþjóð hreina upplýsingaóreiðu sem flokkur hans sjálfs gumar iðulega af að berjast gegn.

Má þetta bara?

Höfundur er hagfræðingur.




Skoðun

Skoðun

Hver þorir næst?

Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar

Sjá meira


×