Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júní 2026 19:15 Ásdís Karen Halldórsdóttir, fyrir miðju, fagnar marki í LSK-höllinni þar sem hún steig sín fyrstu skref sem atvinnumaður í fótbolta. LSK Kvinner/Björn Marström Kvennafótboltafélagið Lilleström stendur á barmi gjaldþrots. Ef annað félag tekur ekki yfir reksturinn segir stjórnin að gjaldþrot sé eina lausnin.
Þetta kemur fram bæði í Romerikes Blad og TV 2. „Einhver verður að taka yfir rekstur LSK Kvinner. Við erum með skammtímaskuldir upp á 3,5 milljónir norskra króna sem við getum ekki lengur staðið í skilum með,“ sagði framkvæmdastjórinn Erlend Eidhammer við Romerikes Blad. Líkur eru á að næsti leikur gegn Brann gæti orðið sá síðasti hjá félaginu í efstu deild. Innanhúss hefur verið tilkynnt að félagið sé að verða uppiskroppa með fjármagn. Allir leikmenn félagsins eru sagðir vera til sölu en liðið er eins og er í sjöunda sæti í norsku úrvalsdeildinni. Unnið er að því að finna einhvern sem vill taka yfir rekstur hins sigursæla kvennaliðs. „Helst viljum við finna félag á Romerike, þar sem saga LSK Kvinner liggur, en lestin er að fara,“ sagði Eidhammer. LSK Kvinner hefur áður lent í fjárhagsvandræðum en þá hefur tekist að leysa vandamálin. Félagið hefur boðað til aukaaðalfundar þann 23. júní. Stjórnin hefur lagt til að aðalfundurinn veiti stjórnarmönnum umboð til að semja við önnur félög um yfirtöku á sæti liðsins. Íslensku knattspyrnukonurnar Guðbjörg Gunnarsdóttir og Ásdís Karen Halldórsdóttir spiluðu á sínum tíma með liðinu en Ásdís Karen yfirgaf félagið árið 2024.
Norski boltinn Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Sjá meira