Viðskipti innlent

Lauf­ey nýr sér­fræðingur hjá Lands­bankanum

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Laufey Rún Ketilsdóttir
Laufey Rún Ketilsdóttir Landsbankinn

Laufey Rún Ketilsdóttir hefur verið ráðin sérfræðingur í samskiptum og miðlun hjá Upplýsingamiðlun Landsbankans, nýrri deild bankans, og hefur þegar hafið störf. 

Í tilkynningu segir að deildin gegni lykilhlutverki í að efla samræmda og stefnumiðaða upplýsingamiðlun bankans.

„Laufey Rún er lögfræðingur að mennt frá Háskólanum í Reykjavík (ML) og Háskóla Íslands (BA). Hún hefur víðtæka reynslu af upplýsinga-, kynningar- og samskiptamálum. Undanfarin ár var Laufey Rún upplýsingafulltrúi hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, verkefnastjóri og aðstoðarmaður þingflokks á Alþingi, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og blaðamaður á Morgunblaðinu,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×