19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar 19. júní 2026 10:31 Baráttudagur kvenna á Íslandi, kvenréttindadagurinn, er í dag 19. júní. Dagurinn sem Kristján X. danakonungur skrifaði undir lög sem veittu íslenskum konum 40 ára og eldri, kosningarétt og kjörgengi til Alþingis, árið 1915. Þetta er dagur sigra, seiglu og samstöðu. En þetta ætti líka að vera dagur þar sem við stöldrum við, dagur íhugunar. Því ef sagan kennir okkur eitthvað, þá er það að réttindi sem hafa áunnist eru ekki endilega varanleg. Okkur finnst óhugsandi á Íslandi að konur hafi ekki sama rétt og karlar í samfélaginu en þegar við horfum til þess sem hefur verið að gerast í alþjóðlegu samhengi þar sem við höfum orðið vitni að því að réttindi kvenna eru skert eða þeim ógnað þá er ljóst að mikilvægt er að standa vörð um réttindi allra í samfélaginu. Við þurfum að muna að það þurfti að berjast fyrir þessum réttindum, þau komu ekki af sjálfu sér, og það sem hefur unnist getur tapast aftur. Enn þann dag í dag, árið 2026, hefur ekkert land í heiminum náð fullu jafnrétti kynjanna, Ísland er þar ekki undanskilið. Við höfum undanfarin misseri orðið vitni að ákveðnu bakslagi í jafnréttismálum. Sumum finnst ýkt að tala um bakslag á Íslandi, samfélagi sem er álitið meðal þeirra sem hafa náð hvað mestum árangri á þessu sviði. Samfélag þar sem okkur finnst sjálfsagt að við séum öll jöfn, óháð kyni, stétt, stöðu eða öðrum þáttum. En það er einmitt þar sem hættan liggur, þegar við höldum að baráttunni sé lokið og hættum að vera á verði. En í hverju birtist þetta bakslag í jafnréttisparadísinni Íslandi? Við höfum verið að sjá aukna mótstöðu gegn femínisma og aðgerðum í jafnréttismálum, sem birtist sérstaklega í opinberri umræðu, á samfélagsmiðlum, í fjölmiðlum, hlaðvarpsþáttum og víðar. Þar hefur verið ákveðin tilhneiging til að gera lítið úr kerfisbundnu misrétti, að við séum komin svo langt á Íslandi að það þurfi ekki að tala um þetta og stundum sagt að jafnrétti sé komið of langt og að aukin réttindi kvenna hafi orðið til þess að ganga á eða draga úr réttindum karla. Á sama tíma sjáum við endurkomu staðalmynda um hlutverk kynjanna, ekki síst á samfélagsmiðlum. Mörg halda því fram að það sé komið fullt launajafnrétti á Íslandi, en staðreyndirnar og tölurnar segja aðra sögu því undanfarið hefur kynbundinn launamunur aukist á ný. Konur bera enn meirihluta umönnunarbyrði heimilanna og ofbeldi gegn konum er alvarlegt samfélagslegt mein þar sem kynbundið ofbeldi virðist þróast með samfélaginu; stafrænt kynbundið ofbeldi, áreitni og skaðleg og jafnvel hatursfull orðræða á netinu er orðið verulega umfangsmikið vandamál. Þessi orðræða er ekki saklaus; orðræða mótar skoðanir og raunveruleika. Við virðumst ekki vera á leiðinni í rétta átt. Kannski er stærsta áskorunin í dag ekki endilega augljóst misrétti, heldur einhvers konar hægfara þreyta gagnvart baráttunni. Hugmyndin um að við séum komin svo langt getur nefnilega orðið hættuleg þar sem hún dregur úr vilja okkar til að halda áfram. Verður til þess að við erum ekki vakandi fyrir því sem við þurfum ennþá að laga. En jafnréttisbaráttan hefur samt á sama tíma þróast og dýpkað. Með fjölbreyttara samfélagi verður augljósara að staða kvenna er mjög ólík eftir hópum. Þættir eins og þjóðernisuppruni, kynþáttur, fötlun, kynhneigð og efnahagur skipta máli og konur sem tilheyra jaðarhópum og viðkvæmum hópum samfélagsins verða oftar fyrir mismunun og þær mæta oft fjölþættum hindrunum. Ef við ætlum að tala heiðarlega um jafnrétti þá verðum við að horfast í augu við þennan veruleika. Jafnrétti er ekki og á ekki að vera sérstakt baráttumál eða einkamál kvenna. Jafnrétti skiptir okkur öll máli. Jafnrétti er mælikvarði á gæði samfélagsins og karlar eiga og þurfa að taka þátt í baráttunni fyrir jafnrétti okkar allra, til jafns við konur. Karlar gegna hér lykilhlutverki, bæði sem bandamenn og þátttakendur í breytingum. Spurningin sem við þurfum því að spyrja okkur í dag, 19. júní, er því ekki eingöngu um hvað hefur áunnist, heldur einnig: erum við raunverulega að standa vörð um árangurinn sem við höfum náð? Ef við gerum það ekki þá getur þróunin svo auðveldlega gengið til baka. Og það gerist ekki endilega með einhverjum látum, það getur nefnilega gerst hægt og hljótt, án þess að við tökum eftir því. Það getur gerst með orðræðu sem grefur undan jafnrétti og lýðræði, það getur gerst með aðgerðarleysi sem festir misrétti í sessi, það getur gerst með kæruleysi sem verður til þess að næsta kynslóð tekur skref aftur á bak. En það er að sjálfsögðu ástæða til bjartsýni líka. Ísland og íslenskt samfélag býr yfir mikilli og sterkri jafnréttishefð. Við erum í einstakri stöðu og við höfum séð hvað gerist þegar fólk stendur saman og krefst breytinga. Kosningaréttur kvenna, réttindabarátta kvenna, 19. júní, er lifandi vitnisburður um það. Sagan sem við minnumst í dag er ekki bara saga til að minnast og halda á lofti á tyllidögum – hún er áminning um að við þurfum að halda áfram og standa vörð um réttindin. Jafnrétti er ekki áfangastaður. Jafnrétti er ekki náð. Jafnrétti er stöðugt verkefni. Verkefni sem krefst árvekni, hugrekkis og ábyrgðar – af hálfu okkar allra. Raunverulegt jafnrétti krefst hugarfarsbreytingar. Höfundur er framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jafnréttismál Mest lesið Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun
Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson Skoðun
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun
Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson Skoðun