Greinendur spá því að verðbólgan fari undir fimm prósent í fyrsta sinn á árinu
Gangi meðalspá fimm greinenda eftir mun tólf mánaða verðbólgan fara undir fimm prósent í fyrsta sinn á þessu ári, en það sem helst er talið að muni drífa áfram hækkun á vísitölu neysluverðs í júní eru meðal annars flugfargjöld og húsnæðisliðurinn. Skýr merki eru hins vegar um kólnun á vinnumarkaði með auknu atvinnuleysi og lausum störfum fækkar sem ætti að draga úr launaþrýstingi.
Tengdar fréttir
Áform um að vaxa út úr vandanum sögð bjartsýn eða í „versta falli hrein tálsýn“
Fyrirætlanir stjórnvalda um að hægt verði að ná tökum á ríkisrekstrinum með því að vaxa út úr vandanum eru „í besta falli bjartsýnar og í versta falli hrein tálsýn“, að mati greinenda Acro verðbréfa, en ófjármögnuð útgjaldaloforð hafa nú þegar valdið hækkun fjármagnskostnaðar á markaði. Án eignasölu verður nokkur bið á skuldalækkun ríkissjóðs og því er þeim varnarorðum beint að ríkisstjórninni að boðaður halli á lánsfjárjöfnuði næstu árin, sem er í sögulegu samhengi umtalsverður, gæti hæglega orðið jafnvel enn meiri.
Verðbólguþróunin í sumar mun ríða baggamuninn um næstu skref bankans
Ef mælingin núna í maí, sú fyrsta af þremur þangað til peningastefnunefnd kemur næst saman, verður yfir fimm prósent þá mun það halda annarri vaxtahækkun í ágúst opinni, að mati aðalhagfræðings Kviku. Sé litið á meðalspá fimm greinenda þá er útlit fyrir að tólf mánaða takturinn lækki eilítið en verði eftir sem áður rúmlega fimm prósent.