Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Sigurgeir Þorkelsson skrifar 12. júní 2026 14:33 Eyjólfur Ármannsson er ráðherra samgöngumála. Vísir/Vilhelm Alþingi hefur samþykkt Samgönguáætlun fyrir árin 2026 til 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030. Atkvæði með voru þrjátíu og þrjú en tuttugu og þrír þingmenn sátu hjá. Samgönguáætlun forgangsraðar framkvæmdum hins opinbera til næstu fimmtán ára.
Fréttir bárust af því í morgun að samkomulag hefði náðst milli þingflokkanna um þinglok og má því búast við að þingmál fari næstu daga að renna í gegn, hvert af öðru, til samþykktar. Í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar komu stjórnarliðar í pontu til að mæra þetta mikilvæga skref. Með samþykktinni væri rofin kyrrstaða sem ríkt hefði í samgöngumálum og ný samgönguáætlun brygði frá hinum fyrri að því leyti að hún væri fullfjármögnuð. Stjórnarandstæðan reyndist ekki jafn ánægð, sagði það ekki standast að hún væri fullfjármögnuð eða að kyrrstaðan væri með þeim rofin. Til að mynda væru engin göng tilbúin til útboðs og því enn langt í að borinn yrði ræstur. Eyjólfur Ármannsson samgönguráðherra tilkynnti fyrst um að áætlunin yrði lögð fram í lok ágúst í fyrra. Samgönguáætlun skal að jafnaði vera uppfærð að þriggja ára fresti en það var síðast árið 2020 sem það var gert. Áætlunin var þó ekki kynnt fyrr en þriðja desember og reyndist strax gífurlega umdeild. Var ráðherra meðal annars sakaður um kjördæmapot fyrir að hafa forgangsraðað Fljótagöngum á norðanverðum Tröllaskaga sem leysa eiga af Almenninga og Strákagöng. Stærsta deilumálið voru Fjarðarheiðagöng. Fyrri áætlun hafði gert ráð fyrir göngum undir Fjarðarheiði, til Seyðisfjarðar, en með nýrri áætlun var þess í stað ákveðið að tengja Seyðisfjörð með tvennum göngum, þau fyrri yfir í Mjóafjörð og næstu þar áfram í átt að Norðfirði. Vísir greindi frá því fyrr í vor að 44 prósent landsmanna væru hlynntir forgangsröðuninni en 31,6 prósent væru andvíg, samkvæmt könnun Maskínu.
Samgöngumál Samgönguáætlun Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Um 44 prósent hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun Um 44 prósent eru hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun og 31,6 prósent eru andvíg. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu en töluvert hefur verið rætt um forgangsröðun í samgönguáætlun og þá sérstaklega í tengslum við jarðgangagerð. 17. mars 2026 11:05 Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Stjórnarmeirihlutinn í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis leggur til í nefndaráliti um samgönguáætlun að staðið verði við þá forgangsröðun jarðganga að Fljótagöng verði í fyrsta sæti en Súðavíkurgöng og Fjarðagöng í öðru til þriðja sæti. Talsmaður meirihlutans segir kaflaskil framundan í samgöngumálum á Íslandi. 2. júní 2026 23:05 Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fleiri fréttir „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Sjá meira
Um 44 prósent hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun Um 44 prósent eru hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun og 31,6 prósent eru andvíg. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu en töluvert hefur verið rætt um forgangsröðun í samgönguáætlun og þá sérstaklega í tengslum við jarðgangagerð. 17. mars 2026 11:05
Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Stjórnarmeirihlutinn í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis leggur til í nefndaráliti um samgönguáætlun að staðið verði við þá forgangsröðun jarðganga að Fljótagöng verði í fyrsta sæti en Súðavíkurgöng og Fjarðagöng í öðru til þriðja sæti. Talsmaður meirihlutans segir kaflaskil framundan í samgöngumálum á Íslandi. 2. júní 2026 23:05