Hugboð, tilfinningar eða upplýst afstaða – útgáfuréttur óviss Berglind Hilmarsdóttir skrifar 4. júní 2026 09:00 Það var einu sinni fólk sem fæddist fyrir internetið og bjó í plássinu, Hlíðunum eða Vestmannaeyjum. Svo kom sumardagurinn fyrsti með sumargjöf, ríkisútgáfan var bolti og strigaskór, alltaf jafn ferlega gaman að fá nýtt. Skrúðgöngur, lúðrasveit og íslenski fáninn, allir sáttir með það. Gamla fólkið (kallast í dag miðaldra) enn að tárast yfir að Ísland varð sjálfstætt ríki fjörutíu og fjögur. Stoltir Íslendingar löngu áður en við komumst í áttaliða úrslitin. Krakkarnir fengu pulsu. Jafnrétti var góð hugmynd, líka betri laun og fæðingarorlof. Áskrift að flokksblöðum frá hægri til vinstri og öfugt nauðsynleg ásamt sjöfréttunum. Það var gott að vera Íslendingur en þó málum blandið, sigldir lærðu erlendis, komu með strauma og þekkingu, bændur voru afdala og sjómenn hetjur, læknar og lögfræðingar stétt ofar, prestar gamlir og þingmenn líka, flestir. Svo kom internetið með dial-up, alltaf á tali hjá þeim sem voru framfarasinnaðir og notuðu netið mest. Síðan tengt framhjá með ADSL og amman gat talað í símann meðan krakkinn var á netinu. Google, ljósleiðari og AI og engar afsakanir fyrir því að mynda sér óupplýsta eða ekki skoðun. Ef það finnst ekki á skjánum þá er það ekki til. Svona svipað og að trúa á guð sem enginn hefur séð og enginn efast um að megi efast um. Um gildi upplýsinga má enginn efast. Þær eru grunnur að tilveru okkar, móta viðhorf og hegðun og þau grey sem um það efast tóra nánast eingöngu vegna hinna sem afla upplýsinga og miðla þeim. Það er alveg satt en svo kemur hið óumflýjanlega – hvað gerum við þegar vitneskjan ein og sér er ekki nóg? Allt í fokki eða hvað? Þá svindlum við bíræfið og látum vaða að nota hjarta, innsæi, tilfinningar og hugboð eða eitthvað álíka ólíffræðilegt (nema hjarta) ráða för og ákvörðun. Þurfum samt oftast að afsaka það í meðvirkni með internetinu sem skaffar upplýsingarnar. Samt ekki listafólk eða ástfangið fólk, nýbakað foreldri eða allt of örláti afinn. Og alls ekki barnið sem lætur allt ofangreint nema upplýsingar stjórna, oft með ágætum árangri, alla vega gildari reynslubanka. Ef maður leggur saman og deilir með tveimur upplýsingar og tilfinningar sama hvaðan þær koma þá verður útkoman óræð eftir stærð gagnagrunna beggja þátta. En hvort tveggja er jafngilt. Alveg eins og þegar Gunna Dís spurði í morgunútvarpi Rúv hvort viðmælendum fyndist vanta gráa, hlutlausa, upplýsta umræðu um ESB aðild, sem byggðist ekki á tilfinningum og Erna Bjarnadóttir svaraði af bragði: „Fullveldismál eru náttúrulega tilfinningamál, það er ekki reikningsdæmi eitt og sér, við skulum ekki gera lítið úr því“ Að loknu góðu og upplýsandi ferðalagi um internetið með efasemdum og sannfæringum á víxl, finnast varla sáttari nemendur í lífsins ráðgátum en þau sem ákváðu á endanum að láta hjartað og tilfinninguna ráða. Órökstudd - án leyfis eða útskýringa - tilfinning fyrir því að vilja eða vilja ekki kjósa, segja já eða nei, fara í sund eða fá sér bjór, er besta tilfinning í heimi. Upplýstir, sem eins og áður er sagt halda í okkur líftórunni, leiða okkur mildilega eða með tukti um heim vitneskju og þeim ber að þakka. Bæði er betra. Held ég láti sitt lítið af hvoru ráða för í ágúst og segja nei við ESB viðræðum. Útgáfuréttur upplýsinga og tilfinninga óviss, fæ að nota gjaldfrjálst. Höfundur er bóndi, kennari og amma barna á ýmsu rófi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar