Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Birgir Olgeirsson skrifar 1. júní 2026 15:33 Icelandair hefur tapað 80 milljörðum frá 2018. Þar vegur þungt tap tengt svokölluðum faraldursárum árið 2020 og 2021 sem nam 60 milljörðum króna. Vísir/Vilhelm „Ég deili vissulega áhyggjum af þeirri stöðu sem er uppi hjá Icelandair og erfiðum horfum hjá félaginu framundan, sbr. umfjöllun í fjölmiðlum undanfarna daga,” segir Davíð Rúdólfsson, framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins Gildis, sem er næststærsti hluthafi flugfélagsins Icelandair.
Á dögunum færði Viðskiptablaðið þær fregnir að mikil óánægja væri hjá hluthöfum Icelandair vegna stöðunnar sem er uppi vegna kjaradeilna við flugmenn. Viðskiptablaðið hafði það eftir heimildum að hluthafar skoði grundvallarbreytingu á rekstri Icelandair í ljósi stöðunnar vegna flugmanna. Ein leiðin væri að sameina félagið við erlent flugfélag, önnur leiðin að flytja allan rekstur félagsins út fyrir landsteinana og sú þriðja að leysa félagið upp. Davíð segir Gildi lífeyrissjóð ekki hafa tekið þátt í slíku samtali, en vel sé hins vegar fylgst með félaginu og áhyggjur séu af stöðunni sem sé uppi og horfum. „Sjálfbær og arðsamur rekstur er grundvallarforsenda fyrir félagið og mikilvægt að það finni góðar lausnir til að tryggja farsæla starfsemi sína til framtíðar. Óbreytt staða er í raun ekki valkostur,” segir Davíð í svari við fyrirspurn Vísis. Davíð Rúdólfsson er framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins Gildis, sem er næst stærsti hluthafi flugfélagsins Icelandair. Aðsend/Vilhelm Frá árinu 2018 hefur Icelandair tapað um 80 milljörðum króna, þrátt fyrir hagnað árið 2023 og mettekjur í fyrra. Þar vegur þungt tap tengt svokölluðum faraldursárum árið 2020 og 2021 sem nam 60 milljörðum króna. Stærsti einstaki hluthafi Icelandair er bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Bain Capital með 17,2 prósenta hlut. Lífeyrissjóðir eru áberandi meðal tuttugu stærstu hluthafa Icelandair Group. Þar eru níu lífeyrissjóðir sem fara samanlagt með 21,25 prósenta hlut í félaginu. Stærstur þeirra er Gildi lífeyrissjóður með 4,76 prósent, þá Almenni lífeyrissjóðurinn með 3,75 prósent, Brú lífeyrissjóður með 3,73 prósent og LSR með 3,61 prósent. Birta lífeyrissjóður fer með 1,74 prósenta hlut, Lífeyrissjóður verzlunarmanna með 1,36 prósent, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja með 0,87 prósent, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda með 0,82 prósent og Frjálsi lífeyrissjóðurinn með 0,61 prósent. Gerður Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins Brúar, segir almenna stefnu sjóðsins að tjá sig ekki um rekstur eða málefni einstakra félaga eða umræður sem kunna að vera í gangi hverju sinni. Lögð sé áhersla á ábyrga eignastýringu og að fylgjast með þróun mála í félögum sem sjóðurinn á hlut í í samræmi við hlutverk sjóðsins sem fjárfestis. Því muni sjóðurinn ekki tjá sig um þau atriði sem nefnd voru í frétt Viðskiptablaðsins.
Kjaramál Icelandair Vinnumarkaður Tengdar fréttir Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Flugmenn hafa lagt til svokallaða fleytilausn í kjaradeilunni við Icelandair sem hefur ekki náð flugi í samningaviðræðunum. Markmiðið væri að skapa til friðar meðan á sumarvertíð Icelandair stendur. 1. júní 2026 11:52 Mest lesið Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Fleiri fréttir Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Sjá meira
Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Flugmenn hafa lagt til svokallaða fleytilausn í kjaradeilunni við Icelandair sem hefur ekki náð flugi í samningaviðræðunum. Markmiðið væri að skapa til friðar meðan á sumarvertíð Icelandair stendur. 1. júní 2026 11:52