Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Birgir Olgeirsson skrifar 1. júní 2026 11:52 Kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra flugmanna miðar hægt. Enginn fundur hefur verið boðaður í deilunni. Vísir/Vilhelm Flugmenn hafa lagt til svokallaða fleytilausn í kjaradeilunni við Icelandair sem hefur ekki náð flugi í samningaviðræðunum. Markmiðið væri að skapa til friðar meðan á sumarvertíð Icelandair stendur.
Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra flugmanna funduðu síðast hjá ríkissáttasemjara á föstudag. Viðræður eru sagðar þungar og þokast lítið áfram. Enginn fundur hefur verið boðaður í vikunni. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur samninganefnd Félags íslenskra flugmanna lagt fram tilboð um skammtímasamning sem er ætlað að skapa starfsfrið yfir sumarvertíð Icelandair. Með skammtímasamningunum yrðu stór deiluefni sem styr hefur staðið um lögð til hliðar og sett skýr verkáætlun um þau á samningstímanum. Samninganefnd Icelandair í húsakynnum ríkissáttasemjara í Borgartúni. Vísir/Vilhelm Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir slíkar hugmyndir hafa verið reifaðar við samningsborðið en þær hafi ekki náð flugi. Stóru málin sem styr hefur staðið um varða fyrirætlanir Icelandair um kaup á 49% hlut í félaginu Play Europe sem er með flugrekstrarleyfi á Möltu. Þar stendur deilan á því hversu stór hluti af rekstri Icelandair fer þar undir og hvort notast verði við stéttarfélagsbundna flugmenn. Annað stórt atriði sem deilt er um er vinnuframlag flugmanna sem jókst um 22% við undirritun kjarasamninga árið 2020 og var liður í endurreisn félagsins. Nýting fór úr 525 flugtímum á ári í 640 flugtíma á ári en flugmenn vilja meina að sú nýting hafi aukist á samningstímanum. Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari.Vísir/Vilhelm Þá er einnig deilt um að Icelandair fái auknar heimildir til að stunda svokallaða blautleigu, þar sem félagið myndi leigja flugvél ásamt áhöfn af öðru flugfélagi til að sinna áætlunarflugi fyrir Icelandair. Heimild er til þess innan kjarasamninga í undantekningartilvikum í dag. Kjaradeilan er því sem stendur á erfiðum stað og hefur tekið sinn toll á flugáætlun Icelandair frá því henni var vísað til sáttasemjara. Icelandair hefur aflýst tuttugu áætlunarferðum síðasta mánuðinn vegna mönnunarvanda. Þrátt fyrir aflýsingarnar komust um 98 prósent ferða Icelandair á áfangastað í maí samanborið við 99 prósent í maí fyrra. Stundvísi félagsins var um 80 prósent í mánuðinum, samanborið við 84 prósent á sama tíma í fyrra. Icelandair hefur sagt það stafa af samstilltum aðgerðum flugmanna sem neiti að selja frídaga sem gert sé ráð fyrir innan kjarasamninga. Það hafi ekki gerst síðan 2014 þegar flugmenn og Icelandair deildu um kaup og kjör. Flugmenn hafna því og segja ábyrgðina liggja hjá Icelandair. Félagið hafi lagt upp með flugáætlun sem stæði og félli með því að hægt væri að kaupa frídaga af flugmönnum.
Icelandair Kjaramál Flug Tengdar fréttir Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Ferð Icelandair til Zürich í Sviss var aflýst í morgun þar sem ekki tókst að manna hana flugmönnum. Flugfélagið hefur nú þurft að aflýsa tuttugu brottförum frá Keflavík síðasta mánuðinn vegna þess að flugmenn fást ekki til þess að selja frídaga sína. 1. júní 2026 08:53 Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ „Maður mjólkar ekki dauða kú“ segir Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku í innsendri grein í Morgunblaðið um stöðu Icelandair. Félagið hefur verið til mikillar umfjöllunar síðustu vikur, hlutabréfaverð er í ládeyðu og niðurfellingar hafa flugferða hafa verið tíðar. Hafa niðurfellingar verið tengdar við óformlegar aðgerðir flugmanna félagsins sem eiga nú í kjaraviðræðum við Icelandair. Marinó fullyrðir að félagið sé mikilvægasta fyrirtæki landsins. 29. maí 2026 13:37 Mest lesið Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira
Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Ferð Icelandair til Zürich í Sviss var aflýst í morgun þar sem ekki tókst að manna hana flugmönnum. Flugfélagið hefur nú þurft að aflýsa tuttugu brottförum frá Keflavík síðasta mánuðinn vegna þess að flugmenn fást ekki til þess að selja frídaga sína. 1. júní 2026 08:53
Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ „Maður mjólkar ekki dauða kú“ segir Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku í innsendri grein í Morgunblaðið um stöðu Icelandair. Félagið hefur verið til mikillar umfjöllunar síðustu vikur, hlutabréfaverð er í ládeyðu og niðurfellingar hafa flugferða hafa verið tíðar. Hafa niðurfellingar verið tengdar við óformlegar aðgerðir flugmanna félagsins sem eiga nú í kjaraviðræðum við Icelandair. Marinó fullyrðir að félagið sé mikilvægasta fyrirtæki landsins. 29. maí 2026 13:37