Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar 28. maí 2026 15:30 Nú að loknum sveitarstjórnarkosningum hefur umræða um möguleg áhrif aðildar Íslands að ESB tekið sig upp aftur og er matvælaverð algengt stef í orðræðu aðildarsinna síðustu daga. Ýmist fullyrða þeir að matvælaverð muni lækka um tugi prósenta við inngöngu í sambandið eða gefa það sterklega í skyn, en algengasta fullyrðingin er sú að matvælaverð geti lækkað hér um ein 25%. Eðlilega vekja fullyrðingar sem þessar athygli fólks, enda er um einfalda og aðlaðandi sögu að ræða. Flest okkar myndu taka fagnandi fjórðungslækkun á matarkörfu heimilisins, en því miður er fátt sem styður þessa draumkenndu sýn á framtíð Íslands innan ESB. Ég hef engan áhuga á því að rífast um prósentur í þessu sambandi, enda skiptir það engu máli hvort lofað sé fjórðungslækkun matvælaverðs eða helmingslækkun þess. Við í Bændasamtökum Íslands höfum skoðað þessi mál ítarlega og lengi og þekkjum engin raunveruleg dæmi fyrir svo mikilli lækkun matvælaverðs, en vissulega væri áhugavert að sjá útreikninga þeirra sem þessu halda fram. Við vitum hins vegar fyrir víst að matvælaverð lækkaði um 10% í Finnlandi við aðild að ESB. Það munar alveg um slíka lækkun en lækkunin verður einhvern veginn ómerkilegri þegar haft er í huga að afurðaverð til finnskra bænda lækkaði um ein 40% á sama tíma. Ekki græddu finnskir bændur á inngöngunni og lækkunin til bænda skilaði sér ekki nema að litlu leyti til finnskra neytenda. Hvað varðar íslenskan raunveruleika þá verður að hafa í huga að langstærstur hluti innfluttra matvæla hér á landi er nú þegar tollfrjáls. Hátt í 90% tollskráðra landbúnaðarvara eru tollfrjálsar og innflutningsverð þeirra mun ekki lækka um eina krónu við inngöngu okkar í ESB. Það þarf mjög barnslega trú á góðvild íslenskra heildsala til að ætla þeim að lækka verð á þessum tollfrjálsu vörum frá því sem nú er við það eitt að Ísland gangi í ESB. Raunar gæti verð á matvælum frá löndum utan ESB hækkað við inngönguna ef tollar eru lagðir á þær vörur samkvæmt reglum ESB. Að því gefnu að Ísland taki upp gildandi reglur ESB í landbúnaðarmálum þá myndi innganga okkar hins vegar leiða til þess að markaðsvernd íslenskra landbúnaðarvara félli á brott við óheftan innflutning matvæla frá ESB. Án áður óþekktra mótvægisaðgerða myndi samkeppnisstaða íslenskra bænda skekkjast mjög og geta þeirra til að keppa við innfluttar mjólkurafurðir, ófrosið kjöt og aðra matvöru, yrði skert til mikilla muna. Þegar haft er í huga hversu viðkvæmur rekstur margra býla er nú þegar ætti engan að undra að margir bændur eru mjög uggandi yfir þessari tilhugsun. Þau sem búin eru að gera upp hug sinn og vilja að Ísland gangi í Evrópusambandið þurfa að gera miklu betur en þau eru að gera nú til að slá á áhyggjur okkar bænda. Erfitt er að sjá hvernig koma eigi í veg fyrir að við þessar nýju aðstæður yrði íslenskri matvöru ýtt út af markaðnum, með fyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir íslenskan landbúnað, íslenska bændur og íslenskan matvælaiðnað. Ég hef áður lýst því yfir að ég er efahyggjumaður þegar kemur að aðild Íslands að Evrópusambandinu, en Bændasamtökin ákváðu á Búnaðarþingi í vor að leggjast í ítarlega greiningarvinnu og meta þar kosti og galla við inngöngu í sambandið. Sú vinna stendur yfir og verður kynnt á aukabúnaðarþingi í haust. Ákvarðanirnar um aðildarviðræður og aðild eru stórar, flóknar og erfiðar. Þær kalla á yfirvegaða umræðu þar sem allt er skoðað og allt er rætt. Umræðu sem byggir á staðreyndum og raunhæfum forsendum. Órökstuddar yfirlýsingar um fjórðungslækkun matarkörfunnar eru ekki innlegg í þá umræðu, heldur ódýr kosningaloforð. Ég hef ekki trú á því að matvælaverð muni lækka við inngöngu í ESB í neinu samræmi við óskhyggju aðildarsinna. Hins vegar er það alveg kýrskýrt að ef til lækkunar matvælaverðs kæmi yrði hún aðeins fengin með því að lækka afurðaverð til bænda, lækka tekjur bænda og fjölskyldna þeirra og hygla innfluttum landbúnaðarvörum á kostnað innlendra. Ef það er hin rósrauða framtíð sem aðildarsinnar sjá fyrir sér þá þætti mér drengilegra ef þeir töluðu bara íslensku og segðu það hreint út. Höfundur er formaður Bændasamtaka Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Trausti Hjálmarsson Matvælaframleiðsla Landbúnaður Verðlag Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar