Formúla 1

Sá fyrsti í sögu For­múlu 1

Aron Guðmundsson skrifar
Vel skipaður verðlaunapallur. Ungstirnið Antonelli með verðandi goðsögnum í sögu Formúlu 1. Lewis Hamilton og Max Verstappen, margföldum heimsmeisturum
Vel skipaður verðlaunapallur. Ungstirnið Antonelli með verðandi goðsögnum í sögu Formúlu 1. Lewis Hamilton og Max Verstappen, margföldum heimsmeisturum Vísir/Getty

Ítalska ungstirnið Kimi Antonelli heldur áfram að skrifa söguna í Formúlu 1 mótaröðinni. Hann er fyrsti ökuþórinn til þess að vinna fyrstu fjórar keppnir sínar í Formúlu 1 allar í röð.

Antonelli kom, sá og sigraði í Kanada kappakstrinum í gær eftir virkilega harða baráttu við liðsfélaga sinn hjá Mercedes, George Russell. 

Þegar að það virtist ætla upp úr að sjóða milli liðsfélaganna, aftur, innan brautar sá bilun í bíl Russell til þess að Bretinn féll úr leik. 

Antonelli sigldi heim sínum fjórða sigri í röð, þeim fjórða á Formúlu 1 ferlinum, á undan tveimur af bestu ökuþórum Formúlu 1 sögunnar í þeim Lewis Hamilton hjá Ferrari og Max Verstappen hjá Red Bull Racing. 

Antonelli er nú með 43 stiga forskot á stoppi stigakeppni ökuþóra og er hann fyrsti ítalski ökuþórinn frá árinu 1952 til þess að vinna fjórar keppnir í röð. Alberto Ascari gerði það síðast. 

Þá náði Antonelli einhverju sem enginn ökuþór í sögu Formúlu 1 hefur afrekað áður. Að vinna fyrstu fjórar keppnir sína í mótaröðinni allar í röð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×