Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Jakob Bjarnar skrifar 21. maí 2026 12:59 Íslenska landsliðið í fótbolta spilar golf á Korpunni. Mikla fjölgun meðal kylfinga má meðal annars rekja til þess að vinsældir íþróttarinnar hafa rokið upp meðal ungra karlmanna. Þar skiptir YouTube-golf miklu máli svo sem rás Brysons DeChambeau sem nýtur mikilla vinsælda. vísir/vilhelm Einar Lyng Hjaltason er rekstraraðili golfvallarins í Hveragerði og honum féllust hreinlega hendur í gær og var kominn á fremsta hlunn með að loka vellinum. Svo slæm var umgengnin. „
Umgengnin er orðin skuggalega léleg. Það er lítið sem ekkert rakað í glompum, flatirnar eru eins og gatasigti og völlurinn allur í kylfuförum. Það eru tofusneplar á víð og dreif. Mér féllust hendur,“ segir Einar en hann hefur verið rekstarstjóri Golfvallarins í Hveragerði nú í tíu ár. Þegar Vísir heyrði í honum stóð hann í ströngu og meðan á samtalinu stóð birtist laus hestur sem hljóp inn á völlinn og spændi upp 2. flöt. Það telst nú grund í aðgerð. Einar fórnar höndum. Flatirnar eins og gatasigti og dósir út um allt Golfsprengingin sem hefur staðið yfir undanfarin fimm ár eða svo er sannarlega farin að koma í bakið á þeim sem standa í rekstri golfvalla. Golfforystan hefur rekið stanslausan áróður fyrir því að nú eigi allir að koma í golfið en lítið hefur farið fyrir fyrirhyggjusemi. Einar opnaði völlinn á mánudaginn fyrir viku. Þar áður var völlurinn opinn fyrir félagsmenn eingöngu í tvær vikur og Einar segir muninn sláandi. Einar Lyng segir stóra hópa sem nú koma inn á vellina ekki hafa fengið nokkra tilsögn í umgengni; flatirnar eru eins og gatasigti, torfusneplar á brautum og fáum ef nokkrum dettur í hug að raka glompur. Víða erlendis verða menn að sýna fram á að þeir hafi lágmarksskiling á golfíþróttinni, svo sem að hafa vallargaffal á sér, áðu en þeim er hleypt út á völl.vísir/aðsend „Það var fullt hjá mér í gær, tvö hundruð manns,“ segir Einar sem rekur hina hroðalegu umgengni til þess að engin tilsögn er í boði fyrir nýliða innan hreyfingarinnar, engar hömlur. Margir klúbbar bjóðupp á ódýra aðild að kerfinu en engin tilsögn er áskilin. „Þetta er ekki bara svona hér,“ segir Einar sem vitaskuld er í sambandi við kollega sína í golfklúbbum víðs vegar í nágrenni við höfuðborgarsvæðið sem eru nú að taka affallið. Og þeim ber flestum saman: Virðing þeirra sem mæta nú til leiks er ekki mikil á mörgum bæjum. Ekki bara eru flatirnar illa leiknar, brautir í slæmu ásigkomulagi og rakstur á sandgryfjum heyrir til undantekninga, heldur hendir fólk dósum og drasli hvar sem því sýnist. Fólki skóflað í hreyfinguna án skilyrða Einar telur að illri umgengni fólks á golfvellinum megi kenna því að alltof margir koma á völlinn til hans sem hafa ekki fengið neina tilsögn í umgengni og umhirðu golfvalla. Á Spáni, svo dæmi sé nefnt, þá þarft þú að geta sýnt fram á að þú hafir farið tíu sinnum til kennara áður en þú færð að fara út á völl. Í Svíþjóð og Noregi eru svokölluð græn kort höfð til marks um að þú hafir hlotið einhverja leiðsögn. Og svo framvegis. En á Íslandi virðast menn búnir að missa tökin. Þar skiptir ef til vill sköpum að stórir hópar ungra karlmanna flykkjast í golfið greinilega undir miklum áhrifum frá YouTube-golfi og virðast sem í eigin heimi úti á velli. „Í GR þá mæta eflaust þar til leiks 99 prósent sem eru félagsmenn. Ef ill umgengni kemur upp er tekið á því innan klúbbsins. Hjá mér voru þetta tvö hundruð manns í gær og sextíu prósent þeirra eru ekki í klúbbnum. Og það verður að segjast að þeir ganga miklu verr um en félagsmaðurinn,“ segir Einar sem stendur í ströngu. Einar Lyng stendur í ströngu. Golfsprengjan er að koma illilega í bakið á þeim sem reka velli; umgengnin er skelfileg og svo virðist sem stórir hópar séu mættir til leiks sem hafa enga tilfinningu fyrir mynd/aðsend Golfklúbbur Hveragerðis er úti í náttúrunni og Einar gengur í öll störf, hann smalar kindum, fælir ref frá tjaldinum og nú er það laust hross sem hljóp um 2. flötina. Hömlulaus golfsprengingin leggst ofan á þessi verk sem Einar þarf að sinna. „Þeir eru vissulega til sem reyna að sporna við þessu með því að gera að og laga til fyrir aðra – en þeir mega sín ekki mikils.“
Golf Golfvellir Hveragerði Mest lesið Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira