Viðskipti innlent

Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst fé­laga

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Þórdís Lind Leiva er forstöðumaður Líf- og heilsutrygginga hjá Verði.
Þórdís Lind Leiva er forstöðumaður Líf- og heilsutrygginga hjá Verði. Vörður

Vörður hefur bætt frjósemisvernd við hefðbundnar sjúkdómatryggingar. Er það í fyrsta sinn á Íslandi sem tryggingavernd tekur á þessum vanda. Frjósemisverndin hefur það að markmiði að vera stuðningur við fólk ef það greinist með ófrjósemi og þarf að gangast undir frjósemismeðferð. Umræða um frjósemisvanda hefur aukist mjög á síðustu árum og er talið að einn af hverjum sex glími við ófrjósemi.

Nýja verndin felur annars vegar í sér fjárhagslegar bætur ef einstaklingar eða pör glíma við ófrjósemi og þurfa að fara í frjósemismeðferð. Vörður hafði nýlega bætt stuðningsleyfi fyrir þolendur ofbeldis inn í sjúkdómstryggingu. Þá er neyðaraðstoð fyrir þolendur ofbeldis nú er hluti af heimilistryggingum Varðar.

,,Við erum ákaflega stolt af þessari viðbót við núverandi sjúkdómatryggingar okkar, enda er markmið okkar að vera til staðar fyrir fólk þegar mest á reynir. Það á svo sannarlega við þegar einstaklingar glíma við ófrjósemi. Markmiðið er að draga úr fjárhagslegu álagi og auka svigrúm fyrir fólk svo það geti einbeita sér að því sem skiptir það mestu máli“, segir Þórdís Lind Leiva, forstöðumaður Líf- og heilsutrygginga hjá Verði, í tilkynningu til Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×