Spurningunni breytt – en ekki forsendunum Erna Bjarnadóttir skrifar 19. maí 2026 09:00 Það tók ekki langan tíma fyrir nýtt orðalag þjóðaratkvæðaspurningarinnar að rekast á eigin forsendur. Eftir gagnrýni frá Feneyjanefndinni, Landskjörstjórn, Carl Baudenbacher og fjölmörgum innlendum umsagnaraðilum ákvað meirihluti utanríkismálanefndar að breyta orðalagi þjóðaratkvæðaspurningarinnar. Í stað þess að tala um að „halda áfram“ aðildarviðræðum við Evrópusambandið skyldu kjósendur nú greiða atkvæði um að „hefja viðræður að nýju“. Þessi breyting á augljóslega að mæta þeirri gagnrýni að fyrra orðalagið fæli í sér ákveðna stjórnskipulega samfellu sem ekki væri sjálfgefið að almenningur sæi með sama hætti. Feneyjanefndin og Landskjörstjórn töldu orðalagið ekki hlutlaust og Carl Baudenbacher gekk svo langt að tala um „manipulation“ — eða stjórnun með orðalagi. En síðan birtist nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar. Og þar stendur þetta: „Þar sem aðildarumsókn Íslands frá 2009 telst enn í gildi myndi erindi stjórnvalda fela í sér beiðni um að halda áfram viðræðum og að stjórnvöld færu þess á leit við ESB að vera aftur meðhöndluð sem umsóknarríki.“ Þarna rifnar gríman af breytingunni á orðalaginu. Því þótt þjóðinni sé nú sagt að hún eigi aðeins að greiða atkvæði um að „hefja viðræður að nýju“, byggir nefndarálitið sjálft enn á sömu samfelluhugsun og gagnrýnd var frá upphafi. Umsóknin er sögð „enn í gildi“. Talið er um að „halda áfram viðræðum“. En um leið er sagt að Ísland þurfi að verða „aftur meðhöndlað sem umsóknarríki“. Þessi síðasta setning er sláandi. Ef Ísland þarf að óska eftir því að verða „aftur meðhöndlað sem umsóknarríki“, þá vaknar eðlilega spurningin hvort Ísland teljist í raun umsóknarríki nú þegar — eða hvaða stjórnskipulega stöðu sé þá í raun verið að lýsa. Er hér verið að lýsa einhvers konar „dormant“ eða óvirkri stöðu sem hvorki hefur verið skilgreind með skýrum hætti né virðist hafa notið sameiginlegs skilnings? Þess er hið minnsta hvergi getið í kennslubókum um ESB. Þrátt fyrir fullyrðingar um að umsókn Íslands hafi aldrei verið afturkölluð var Ísland engu að síður fjarlægt af öllum opinberum listum Evrópusambandsins yfir umsóknarríki. Umheimurinn fékk því skýr skilaboð um að Ísland teldist ekki lengur virkt umsóknarríki. ESB heldur enda ekki úti sérstökum flokki fyrir „dormant“ eða óvirkar umsóknir. Öll röksemdafærsla meirihlutans virðist þannig byggja á því að Ísland hafi árið 2015 ekki sent sérstakt formlegt afturköllunarbréf til ráðs ESB. Af því er síðan dregin sú ályktun að umsóknin lifi áfram. En það er ekki sjálfkrafa sama og að fyrir liggi skýr og sameiginleg stjórnskipuleg niðurstaða um stöðu umsóknarinnar. Stór hluti Íslendinga — og raunar margir þeirra sem komu að málinu utan Íslands, eins og sjá má af athugasemdum Carl Baudenbacher og Feneyjanefndarinnar — taldi að með bréfi utanríkisráðherra árið 2015 hefði Ísland ekki lengur stöðu sem umsóknarríki. Á sama tíma virðast stofnanir Evrópusambandsins hafa haldið ákveðinni stofnanalegri samfellu lifandi innan eigin stjórnsýslu. Það er nákvæmlega þessi merkingarárekstur sem umræðan um orðalag þjóðaratkvæðagreiðslunnar hefur snúist um síðustu mánuði. Það er því ekki undirliggjandi stjórnskipuleg hugsun meirihlutans sem hefur breyst heldur aðeins orðalag þjóðaratkvæðaspurningarinnar. Breytingin virðist fyrst og fremst hafa verið gerð til að mæta gagnrýni Feneyjanefndarinnar, Landskjörstjórnar, Carl Baudenbacher og fleiri umsagnaraðila. Sjálft umboðið sem þjóðaratkvæðagreiðslan á að veita er hins vegar enn skilgreint sem umboð til að halda áfram aðildarviðræðum á grundvelli umsóknarinnar frá 2009. Án sameiginlegs skilnings er vandinn enn til staðar Ef þessi umræða hefur sýnt eitthvað, þá er það hversu brothættur sameiginlegur skilningur getur orðið þegar stjórnskipulegar athafnir eru túlkaðar með ólíkum hætti af almenningi, stjórnvöldum og yfirþjóðlegum stofnunum. Þá verða orð ekki lengur formsatriði heldur hluti af þeirri stjórnskipulegu merkingu sem pólitískar ákvarðanir byggja á. Það er líklega ástæðan fyrir því að nýtt orðalag þjóðaratkvæðaspurningarinnar rekst nú svona bersýnilega á eigin forsendur. Því þótt orðunum hafi verið breytt lifir sama stjórnskipulega samfelluhugsunin áfram í nefndarálitinu sjálfu. Umræðan síðustu mánuði hefur hins vegar sýnt að enginn skýr sameiginlegur skilningur virðist hafa verið til staðar um stöðu aðildarumsóknarinnar eftir 2015. Nýtt nefndarálit upp á 55 blaðsíður breytir því ekki. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Icelandair – Tíminn til að bregðast við er núna Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Sjá meira
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun