Hylltu Glódísi Perlu og liðsfélaga hennar Aron Guðmundsson skrifar 18. maí 2026 23:17 Glódís Perla með skjöldinn góða sem Bayern fékk fyrir sigur í þýsku úrvalsdeildinni. Með henni er Georgia Stanway, liðsfélagi Glódísar með bikarinn sem liðið fékk fyrir sigur í þýska bikarnum. Vísir/Getty Glódís Perla Viggósdóttir fyrirliði Bayern Munchen og liðsfélagar hennar, voru hylltar á stórri sigurhátíð í Munchen fyrr í dag.
Bayern stóð uppi sem tvöfaldur meistari í Þýskalandi eftir mikla yfirburði í þýsku úrvalsdeildinni, þar sem að liðið tapaði ekki leik, og eftir sigur í þýska bikarnum þar sem liðið lagði að velli Wolfsburg í úrslitaleiknum. Um sögulegt tímabil var að ræða fyrir Bayern Munchen sem varði í fyrsta sinn í sögunni félagsins titil sinn í bæði deild og bikar en Bayern Munchen varð einnig tvöfaldur meistari á síðasta tímabili. Okkar kona að gera magnaða hluti sem fyrirliði Bayern MunchenVísir/Getty Glódísi og hennar liðsfélögum var boðið til hátíðarmóttöku í húsakynnum borgarstjórans í Munchen og þar á eftir tók fjöldi fólks á móti liðinu á Marienplatz. Yfirburðir Bayern Munchen á nýafstöðnu tímabili í Þýskalandi voru gífurlegir. Liðið endaði á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar með 74 stig, 16 stigum meira en næsta lið á eftir. Bayern vann 24 af 26 leikjum sínum, gerði tvö jafntefli og tapaði ekki leik. Auk þess að vinna bæði deild og bikar komst Bayern alla leið í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu en laut þar í lægra haldi gegn Barcelona. Eintóm gleðiVísir/Getty Frábæru tímabili lokið hjá Glódísi og hennar liðsfélögum en þetta er fjórða tímabilið í röð sem Glódís verður Þýskalandsmeistari og annað tímabilið í röð sem hún verður þýskur bikarmeistari.
Þýski boltinn Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Sjá meira