Afhverju X við P? Unnar Þór Sæmundsson skrifar 16. maí 2026 10:01 Í komandi borgarstjórnarkosningum stendur kjósandi sem lætur sig mannréttindi varða frammi fyrir einfaldri spurningu. Hvar nýtist atkvæðið best til að verja þau gildi sem skipta máli? Svarið er Píratar. Píratar hafa frá stofnun sett mannréttindi, gagnsæi og lýðræði í fyrsta sæti, ekki sem punt í stefnuskrá heldur sem grundvöll allra ákvarðana. Og það sem skiptir mestu máli er að Píratar hafa staðið með mannréttindum líka þegar það hefur verið óvinsælt. Þegar auðveldara hefði verið að þegja og þegar aðrir flokkar töldu kostnaðinn of mikinn þá stóðu Píratar fast á sínu. Þetta sést skýrast í baráttunni fyrir réttindum þeirra sem standa höllum fæti. Börn í viðkvæmri stöðu, börn sem kerfið hefur brugðist, börn sem þurfa raunverulega vernd en ekki bara falleg loforð eiga sér málsvara í Pírötum. Sama gildir um fólk af erlendum uppruna, hvort sem það eru flóttamenn, hælisleitendur eða innflytjendur sem hafa byggt líf sitt hér. Þegar talað hefur verið af hörku gegn þessum hópum, þegar mannúðin hefur verið sett til hliðar, hafa Píratar ekki gefið eftir. Og hinsegin samfélagið. Á tímum þegar bakslagið gegn réttindum hinsegin fólks er orðið áþreifanlegt um alla Evrópu og því miður líka hér heima skiptir máli hverjir standa föst á sínum gildum. Píratar hafa alltaf staðið skilyrðislaust með hinsegin samfélaginu. Þegar aðrir flokkar hafa tiplað á tánum og sumir gert trans fólk að pólitísku umræðuefni, þá hafa Píratar staðið stolt og aldrei gefið afslátt af mannréttindum. Staðfesta Pírata er vegna þess að flokkurinn er byggður upp af grasrót sem tekur ákvarðanir í opnum, lýðræðislegum ferlum. Engin reykfyllt bakherbergi, engin lobbýismi, engir fjársterkir styrktaraðilar sem þarf að þóknast. Þegar Píratar tala fyrir réttindum jaðarsettra hópa er það ekki vegna þess að það er vinsælt heldur vegna þess að það skipti máli. Og þá komum við að kjarna málsins. Samkvæmt nýjustu könnunum standa Píratar tæpt. Samfylkingin, Viðreisn og Vinstrið eru öll örugg inn. Einn fulltrúi til viðbótar hjá flokkum sem þegar standa sterkt breytir litlu um pólitíska litrófið eftir kosningar. Einn, hvað þá tveir Píratar inn í borgarstjórn breytir hins vegar öllu. Það breytir því hver situr við borðið þegar ákvarðanir eru teknar um réttindi barna í skólakerfinu, um aðbúnað og þjónustu við fólk af erlendum uppruna, um réttindi hinsegin fólks í borginni, um húsnæðismál þeirra sem standa höllum fæti. Það breytir því hvort mannréttindi séu rædd af alvöru eða afgreidd sem aukaatriði. Atkvæði til Pírata tryggir að í borgarstjórn Reykjavíkur sitji fulltrúar sem standa fast á mannréttindum, líka þegar það er óþægilegt, líka þegar það kostar. Mannréttindi þarf að verja og það gerist ekki að sjálfum sér og því þurfum við sterka og trúverðuga málsvara þeirra mála í borgarstjórn. Þess vegna mun ég setja X við P. Höfundur skipar 4. sæti á lista Pírata í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Píratar Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar