Höfum staðreyndir á hreinu áður en við kjósum Geir Finnsson skrifar 15. maí 2026 17:53 Í þessari kosningabaráttu hafa skipulags- og samgöngumál verið áberandi í umræðunni. Það kemur mér lítið á óvart því ákvörðun sem er tekin í dag tekur langan tíma í framkvæmd og hefur síðan áhrif á samfélagið til næstu áratuga. Að því sögðu hefur ýmislegt verið fullyrt um þessi mál sem mér þykir vert að fara sérstaklega yfir og hafa í huga þegar við göngum til kosninga á morgun: ● Reykjavík og höfuðborgarsvæðið er ansi dreifbýlt svæði nú þegar, í raun mun dreifbýlla en sambærileg svæði í nágrannaríkjum okkar. Almennt búa milljónir manns í borgum sem eru svipaðar að flatarmáli og Reykjavík. Allt tal um einhvers konar „ofurþéttingu“ á sér því ekki stoð í veruleikanum. ● Til að geta staðið undir nærþjónustu þá þarf ákveðið mikið af fólki að búa á ákveðnum radíusi. Með því að þétta byggð byggjum við hverfi þar sem við þurfum ekki að ganga lengur en í korter til að sækja alla helstu þjónustu, auk þess að búa í grennd við hágæða almenningssamgöngur sem koma okkur hratt og örugglega á milli staða. ● Við þéttum líka byggð til þess að almenningssamgöngur og aðrir virkir samgöngumátar virki almennilega en það hefur verið umkvörtunarefni margra í langan tíma. Þannig verðum við ekki öll föst í umferð á háannatímum við að komast til og frá vinnu og skóla, skutla og sækja börnum þvers og kruss, sækja nauðsynlega þjónustu, komast á fótboltaleikinn og svo framvegis. ● Ef við gerum ráð fyrir einu til jafnvel tveimur bílastæðum fyrir hvert einasta heimili á höfuðborgarsvæðinu þá verður lífið hér ekkert skárra en í menguðustu bílaborgum heimsins, þar sem nánast enga þjónustu er hægt að sækja án þess að sitja fastur í umferð klukkutímum saman. ● Um leið og við brjótum nýtt land og dreifum byggð enn frekar þá vinnum við GEGN jákvæðum áhrifum þéttingar byggðar. Þegar flokkar tala um að vilja gera bæði (þ.e.a.s að þétta byggð og að dreifa henni samtímis) þá er einfaldlega ekkert gagn í þeirri stefnu. ● Fá verkefni hafa verið jafn vel undirbúin og Borgarlínan, sem er veigamikill þáttur í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Verkefnið var sett á laggirnar í kjölfar þess að fremstu umferðar- og skipulagssérfræðingar voru fengnir til þess að ákvarða hvers konar samgönguframkvæmdir væru æskilegastar fyrir höfuðborgarsvæðið. Einhverjir flokkar vilja „endurskoða“ Borgarlínuna, þrátt fyrir að búið sé að gera það nú þegar, með tilheyrandi töfum. Framkvæmdir eru þegar byrjaðar og því leiðir allt tal um endurskoðun til þess að við þurfum að bíða enn lengur eftir nauðsynlegum úrbótum í samgöngum. Það mun kosta sitt. ● Það er skiljanlegt að fólk kvarti yfir skorti á grænum svæðum og útsýni í þéttri byggð. Aftur á móti vil ég benda á að flestir nýir þéttingarreitir eru í grennd við græn og falleg útivistarsvæði, auk þess sem þar má víða finna stóra inngarða með leiksvæðum fyrir börn. Gleymum því síðan ekki að verið er að byggja marga af þessum reitum á bensínstöðvarlóðum. ● Þétting byggðar er að sjálfsögðu ekki gallalaust fyrirkomulag og nefni ég sérstaklega birtuskilyrði. Það má hins vegar bæta töluvert með góðri hönnun og skipulagi og vænti ég þess að nýir kjörnir fulltrúar geri kröfur um nákvæmlega það að kosningum loknum. Annars óska ég ykkur öllum gleðilegra kosninga og góðrar helgar. Höfundur er kennari og fyrrverandi varaborgarfulltrúi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geir Finnsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar