Betri Hafnarfjörður Árni Stefán Guðjónsson skrifar 14. maí 2026 12:03 Uppbygging í Hafnarfirði hefur verið allt of sveiflukennd undanfarin ár. Fyrir fáeinum árum voru framkvæmdir nærri frostmarki þegar minna en hundrað íbúðir voru í byggingu. Síðan fór eitt stórt nýbyggingarhverfi af stað og fjöldinn jókst hratt, en er að dragast verulega saman. Svona miklar sveiflur eru slæmar fyrir íbúa, verktaka og sveitarfélagið. Þar til viðbótar fór þessi uppbygging öll fram í jaðri byggðar þar sem lítil þjónusta var til staðar, með aukinni bílaumferð og meiri umferðartöfum. Öll eggin í sömu körfu Í Hafnarfirði var á tímabili nær öll áhersla á framkvæmdir í einu hverfi. Þegar framkvæmdir við rafmagnslínur töfðust hægði verulega á uppbyggingu. Þarna voru öll egg sett í sömu körfuna. Af hverju var ekki unnið með fleiri svæði samtímis til að dreifa áhættu og skapa meiri stöðugleika? Átta ár og enn enginn fluttur inn Hér í bænum eru mörg tækifæri til þess að byggja á svæðum þar sem eldri starfsemi er horfin á braut. Ný verkefni á slíkum reitum geta fært aukið líf í gróin hverfi sem styrkir þjónustu í þeim. En það er ekki nóg að sjá tækifæri. Það þarf vinnu, forgangsröðun og metnað til þess að koma þeim í framkvæmd. Fyrir átta árum voru kynntar metnaðarfullar hugmyndir um uppbyggingu við bæði Flensborgarhöfn og í Hrauni-vestur. Það hefur ennþá engin flutt inn í þessi hverfi. Okkar eigið Skuggahverfi Nýleg verkefni hljóta að vekja íbúa til umhugsunar. Í Hraun-vestur var fyrsta þróunarreitnum breytt þannig að gæðakröfur um dagsbirtu í íbúðum hurfu og hófleg byggð varð að átta hæða gímaldi þar sem sólin mun ekki skína í inngarð meirihluta árs. Það verður erfitt að vinna aftur traust íbúa þegar húsið fer að rísa og í ljós kemur hversu mikið var gefið eftir. Byggjum af skynsemi Lausnin er ekki að byggja af offorsi og án fyrirhyggju. Við þurfum að vanda undirbúning verkefna og skýra væntingar bæjarins þannig að uppbyggingaraðilar og lóðarhafar viti að hverju þeir ganga. Það kemur í veg fyrir að farið sé af stað með verkefni þar sem aðilar eru ósammála um hver niðurstaðan á að vera. Við þurfum að forgangsraða fjármunum bæjarins og vinnu starfsmanna í þau verkefni þar sem samstaða er um meginmarkmið. Einnig þarf að vanda undirbúning þannig að lykilspurningum sé svarað áður en formleg skipulagsvinna hefst. Með þeim hætti getum við unnið hraðar, tryggt betri gæði og skapað aukinn fyrirsjáanleika. Höfundur er áfangastjóri við Flensborgarskólann og skipar 2. sæti á lista Viðreisnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Árni Stefán Guðjónsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar