Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar 13. maí 2026 14:33 Nýverið gerði Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) könnun um skipulags- og búsetuóskir Íslendinga. Þar kemur m.a. fram að 84,3% svarenda Kópavogs telja að tvö eða fleiri bílastæði á hverja íbúð eða eign sé hæfilegur fjöldi bílastæða. Er spurt var hversu hlynntur eða andvígur svarandinn væri þéttingu byggðar í nánasta nærumhverfi við heimili sitt má sjá að einungis 17% Kópavogsbúa eru hlynnt eða mjög hlynnt. Þessar tölur gefa augaleið að töluverður minnihluti íbúa Kópavogs er að óska eftir þeirri þéttingu sem keyrt hefur verið á síðustu ár í bænum. Samkvæmt aðalskipulagi Kópavogs til ársins 2040 má sjá að á svokölluðum þróunarsvæðum er hvergi gert ráð fyrir tveimur bílastæðum á íbúð. Aftur á móti er gert ráð fyrir á flestum stöðum tveimur hjólastæðum á íbúð. Er það áhugavert í ljósi þess að í fyrrnefndri könnun kváðust 7% íbúa í Kópavogi hjól vera sinn daglega ferðamáta. Á sama tíma kváðust 80% notast við einkabíl. Höfundur veltir því fyrir sér fyrir hvern er verið að byggja? Samkvæmt framangreindri könnun og samræðum við íbúa síðustu vikur hefur nánast enginn áhuga á þessari þróun. Óneitanlega fær maður það á tilfinninguna að markmið þessarar byggðastefnu sé að knýja fólk til að hætta að notast við einkabíl og notast við Borgarlínu sem mun hugsanlega koma einhvern tímann. Fram að því skal vera gert eins erfitt og mögulegt er að notast við einkabíl. Höfundur metur því að meirihlutinn í Kópavogi sé því miður kominn á sömu vegferð og yfirvöld í Reykjavík. Eða að byggt er eins og stjórnmálamönnum finnst að byggð eigi að vera en ekki í samræmi við vilja íbúa. Afleiðingar af þessari stefnu eru að eignir seljast verr því fólk vill ekki þessar eignir. Þá eru bílastæði seld dýrum dómi. Það eitt nægir að skoða fasteignaauglýsingar en þar er tekið fram með hástöfum að bílastæði fylgi íbúð enda jafn sjálfsagður hlutur orðinn að lúxus sem ekki er sjálfsagður. Miðflokkurinn hafnar þessari þróun. Bílastæði eiga ekki að vera lúxusvara og bílastæðakvíði á ekki að vera hluti af daglegu lífi. Það á ekki að vera vandkvæðum háð að fá einhvern í heimsókn til þín eða halda barnaafmæli. Miðflokkurinn vill tryggja tvö bílastæði á íbúð og byggja í samræmi við vilja íbúa. Ef þú vilt það líka, settu X við M þann 16. maí nk. Höfundur skipar 5. sæti á lista Miðflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun Skoðun Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar