Borgar menning sig? Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar 14. maí 2026 07:51 BÍL stóð nýverið fyrir opnum kosningafundi í Tjarnarbíói þar sem frambjóðendur í Reykjavík voru spurðir út í framtíð lista, menningar og listmenntunar í borginni. Þar voru meðal annars lagðar fyrir spurningar um aðgengi að rýmum fyrir listsköpun, stöðu tónlistarskóla, listdansnáms og myndlistarnáms. Mikilvægi borgarsjóðs til menningarmála, hlutverk bókasafna og hvernig tryggja megi sanngjörn starfsskilyrði listafólks voru einnig til umræðu. Menningarborg verður ekki til af sjálfu sér Reykjavík státar af öflugu menningarlífi sem hefur mótað ímynd borgarinnar um áratugaskeið. Við erum þekkt fyrir tónlistina okkar, bókmenntirnar, sviðslistirnar, myndlistina og þann skapandi kraft sem gerir borgina einstaka. En sú staða verður ekki til af sjálfu sér heldur byggist á ákvörðunum, forgangsröðun og raunverulegri fjárfestingu í listafólki og innviðum. Samkvæmt menningarstefnu Reykjavíkur til ársins 2030 á borgin að vera eftirsóknarverður staður fyrir listafólk til að búa og starfa í. Til þess þarf að tryggja aðstæður sem gera listsköpun mögulega. Undanfarin ár hefur rýmum fyrir grasrótarstarfsemi hins vegar fækkað. Æfingarými, vinnustofur, tónleikastaðir og sýningarrými hafa víða horfið vegna hækkandi húsnæðiskostnaðar, þrýstings frá annarri atvinnustarfsemi og skorts á langtímahugsun í skipulagsmálum. „Rými koma með súrefni“ Án aðstöðu getur menningarlíf ekki dafnað. Grasrótin er undirstaða alls öflugs listalífs og þar verða nýjar hugmyndir til. Borg sem vill raunverulega kalla sig menningarborg þarf að skapa skilyrði fyrir listafólk til að vinna, æfa, skapa og miðla verkum sínum. Menning, listsköpun og listnám eiga ekki að vera forréttindi fárra heldur réttur allra. Til þess þarf aðgengi að vera raunverulegt og þátttaka að standa öllum til boða. Tryggja þarf jafnt aðgengi barna og ungmenna að tónlistarnámi, listdansnámi, myndlistarnámi og annarri listmenntun, óháð efnahag og búsetu. Öflugt og aðgengilegt listnám er mikilvægasti grunnurinn að fjölbreyttu menningarlífi og þar liggur fræið að þeirri sköpun, forvitni og samfélagsvitund sem við viljum rækta hjá komandi kynslóðum. Verndum tungumálið Við lifum á tímum hraðra tæknibreytinga og sívaxandi þróunar gervigreindar. Á slíkum tímamótum verður mikilvægara en nokkru sinni að ræða hvernig við viljum vernda og rækta það sem gerir menninguna okkar einstaka. Tungumálið sem er hluti af sjálfsmynd okkar, sögurnar sem við segjum og það hvernig við skiljum heiminn. Þar gegna bókasöfn lykilhlutverki og ekki síst skólabókasöfnin. Þau eru ekki aðeins staðir þar sem bækur eru geymdar heldur lifandi menningar- og menntastofnanir sem efla lestur, tungumál og gagnrýna hugsun. Í lögum er kveðið á um að allir grunnskólar skuli hafa skólabókasafn en gæði þeirra og umfang eru misjöfn. Víða fer fram öflugt starf en því miður eru líka dæmi um skólabókasöfn sem eru lítið meira en bókahillur á gangi án markvissrar lestrarhvatningar og faglegrar umsjónar. Í því felst skýr mismunun í aðgengi barna að lesefni, tungumáli og menningu. Ef við ætlum að standa vörð um íslenskuna, efla læsi og tryggja að komandi kynslóðir hafi sterka tengingu við eigið tungumál og menningu þá verðum við að fjárfesta í þessum grunnstoðum samfélagsins. Fjárfesting til framtíðar Fjárfesting í menningu skilar sér líka margfalt til baka. Hún eykur lífsgæði, styrkir samfélagslega samheldni og hefur jákvæð áhrif á hagkerfið, ferðaþjónustu og atvinnulíf. Mikilvægi listar og menningar verður samt aldrei eingöngu mælt í krónum og aurum, eða tölum yfir höfuð. Listir skapa samfélag. Þær mynda samheldni, auka lífsgæði og magna upp tilfinningu fyrir því að tilheyra. Þess vegna skiptir máli hvaða sýn frambjóðendur hafa fyrir Reykjavík. Viljum við borg þar sem listir og menning fá að blómstra? Borg þar sem ungt fólk hefur raunhæfan aðgang að listnámi? Borg þar sem listafólk hefur aðstöðu til að skapa og miðla sköpun sinni? Eða borg þar sem menning verður sífellt undir í forgangsröðuninni? Það sama á auðvitað við um sveitarfélög um land allt. JÁ var svarið Það var ánægjulegt að sjá hversu samstíga frambjóðendurnir voru þegar kom að mikilvægi lista, menningar og listmenntunar. Svör við öllum spurningunum voru játandi og viljinn til að styðja við menningarlífið virtist vera til staðar þvert á flokka. En stór loforð kalla líka á ábyrgð. Nú tekur við verkefnið að fylgja þeim eftir í verki. Það verður í höndum næsta meirihluta að standa við þau fyrirheit sem gefin voru og sýna með aðgerðum að menning sé raunverulegur forgangur, en ekki aðeins falleg orð í kosningabaráttu. BÍL sendi jafnframt spurningalista til allra oddvita á landsvísu þar sem spurt var um afstöðu framboðanna til menningar og listmenntunar í sveitarfélögunum. Svörin birtast jafnóðum á heimasíðu BÍL, bil.is, og hvetjum við alla kjósendur til að kynna sér stefnu þeirra áður en gengið er til kosninga. Að lokum vil ég hvetja alla til að nýta kosningarétt sinn. Það skiptir máli að vera upplýstur kjósandi, kynna sér stefnu flokkanna og afstöðu þeirra til þeirra mála sem skipta okkur máli. En þegar á kjörstað er komið eigum við líka að muna að kjósa með hjartanu. Höfundur er forseti BÍL - Bandalags íslenskra listamanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar