Besta deildin áfram á Sýn Sport Boði Logason skrifar 13. maí 2026 11:30 Birgir Jóhannsson og Eiríkur Stefán Ásgeirsson handasala hér samninginn. Sýn Sýn og Íslenskur Toppfótbolti (ÍTF) hafa undirritað samning um eins árs framlengingu á sýningarrétti frá leikjum í Bestu deild karla og Bestu deild kvenna til loka ársins 2027. Framlengingin tryggir órofið samstarf aðila á meðan viðræður um nýjan langtímasamning halda áfram á milli aðila.
Í tilkynningu segir að Sýn hafi sent út beint frá efstu deildum íslensks fótbolta samfellt í 29 ár og að framlengingin endurspegli þann trausta grunn sem samstarfið hvílir á, sem og einlægan vilja beggja aðila til áframhaldandi samvinnu. Auk beinna útsendinga frá leikjum í efstu deildum karla og kvenna sinnir Sýn Sport ítarlegri dagskrárgerð og vandaðri umfjöllun um íslenskan fótbolta. „Bestu deildirnar hafa tekið umtalsverðum framförum á undanförnum árum og þróunin heldur áfram af fullum krafti. Áhorfendum á völlum hefur fjölgað jafnt og þétt, staða Íslands á styrkleikalista UEFA hefur styrkst og íslensk lið hafa náð eftirtektarverðum árangri í Evrópukeppnum. Sýn Sport er leiðandi íþróttamiðill á Íslandi og hvergi er umfjöllun um íslenska knattspyrnu jafn ítarleg og vönduð. Framleiðsla í kringum leiki hefur þróast hratt á síðustu árum og fram undan eru spennandi tímar, ekki síst í ljósi örrar tækniþróunar,“ segir í tilkynningunni. „Bestu deildirnar skipa veigamikinn sess í dagskrá Sýnar Sports og samningurinn er mikilvægur áfangi í löngu og farsælu samstarfi Sýnar og íslenskrar knattspyrnu. Það er afar ánægjulegt að aðilar hafi skapað sér svigrúm til að móta nýjan langtímasamning, sem verður vonandi til heilla fyrir áskrifendur Sýnar Sports og íslenska knattspyrnu til framtíðar,“ er haft eftir Eiríki Stefáni Ásgeirssyni, íþróttastjóra Sýnar. Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri ÍTF, segir að samstarfið hafi verið afar farsællt frá fyrsta degi. „Aðilar hafa unnið vel saman, ekki síst við skipulag Íslandsmótsins og tímasetningar leikja, sem skiptir sköpum fyrir bæði áhorfendur og félögin. Vörumerkið Besta deildin hefur sömuleiðis vaxið með eftirtektarverðum hætti og umfjöllun Sýnar á þar drjúgan þátt. Markaðstekjur ÍTF hafa einnig aukist ár frá ári og það er ekki síst að þakka því framúrskarandi samstarfi sem við höfum byggt upp við Sýn,“ segir Birgir í tilkynningunni. Vísir er í eigu Sýnar.
Besta deild karla Besta deild kvenna Sýn Fótbolti Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Fótbolti Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Fleiri fréttir Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Ísland - Tyrkland | Svara strákarnir fyrir Serbatapið? Aston Villa - Arsenal | Meistararnir í Birmingham Breiðablik - Stjarnan | Grannaslagur í Kópavogi Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Keppti langt fram á nótt og tapaði fimmtánda leiknum í röð Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Einn sá besti snýr aftur Kastaði upp og í tárum eftir tapið Settur til hliðar vegna ákæru Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Dagskráin í dag: Meistararnir gegn Villa og grannaslagur í Kópavogi Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjá meira