Börnin í Laugardalnum eiga betra skilið Bjarni Fritzson skrifar 13. maí 2026 08:42 Flestir landsmenn líta á Laugardalinn sem Mekka íþrótta á Íslandi og ég er svo sannarlega einn af þeim. Á mínum yngri árum átti ég mér þann draum að hlaupa inn á troðfullan Laugardalsvöllinn og spila fyrir hönd þjóðarinnar. Þessa senu spilaði ég oft í huganum á mér einn út á velli og undantekningarlaust var það Bjarni Fel sem kynnti mig inn. „Og númer 4! Bjarni Fritzson!" Þó ég hafi ekki náð hlaupinu inn á Laugardalsvöllinn má nú eiginlega segja að æskudraumurinn hafi ræst. Því í næsta mannvirki við hliðina á, sjálfri Laugardalshöllinni, var ég kynntur inn í landsleik. Þó Bjarni Fel hafi verið búinn að leggja míkrófóninn á hilluna, var augnablikið töfrum líkast og Laugardalurinn festi sig í sessi sem íþróttahverfi landsins í mínum huga. En fólkið sem býr í Laugardalnum deilir fæst sýn minni. Þrátt fyrir þessi mikilfenglegu mannvirki og sögu, er aðstaða til íþróttaiðkunar fyrir krakkana í hverfinu langt frá því að vera ásættanleg. Það vantar íþróttahús við skólana, íþróttafélögin fá takmarkaðan tíma í Höllinni til æfinga og krakkarnir missa fleiri tugi daga til íþróttaiðkunar sökum viðburðahalds í Höllinni. Ofan á þetta er komið fram við iðkendur eins og hverja aðra gesti í Laugardalshöll. Þeir rétt fá að drepa niður fæti á parketið á sínum æfingatímum í Höllinni og hafa enga félagsaðstöðu innan hennar. Kosningar eftir kosningar hefur íbúum í Laugardalnum verið lofað að tilkoma Þjóðarhallarinnar muni leysa allan þeirra vanda. Alveg eins og íbúum í Reykjavík er lofað að Borgarlínan muni bjarga deginum. En börnin í Laugardalnum eiga betra skilið en einhver framtíðarloforð. Þau þurfa alvöru lausnir STRAX. Höfundur skipar áttunda sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarni Fritzson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Flestir landsmenn líta á Laugardalinn sem Mekka íþrótta á Íslandi og ég er svo sannarlega einn af þeim. Á mínum yngri árum átti ég mér þann draum að hlaupa inn á troðfullan Laugardalsvöllinn og spila fyrir hönd þjóðarinnar. Þessa senu spilaði ég oft í huganum á mér einn út á velli og undantekningarlaust var það Bjarni Fel sem kynnti mig inn. „Og númer 4! Bjarni Fritzson!" Þó ég hafi ekki náð hlaupinu inn á Laugardalsvöllinn má nú eiginlega segja að æskudraumurinn hafi ræst. Því í næsta mannvirki við hliðina á, sjálfri Laugardalshöllinni, var ég kynntur inn í landsleik. Þó Bjarni Fel hafi verið búinn að leggja míkrófóninn á hilluna, var augnablikið töfrum líkast og Laugardalurinn festi sig í sessi sem íþróttahverfi landsins í mínum huga. En fólkið sem býr í Laugardalnum deilir fæst sýn minni. Þrátt fyrir þessi mikilfenglegu mannvirki og sögu, er aðstaða til íþróttaiðkunar fyrir krakkana í hverfinu langt frá því að vera ásættanleg. Það vantar íþróttahús við skólana, íþróttafélögin fá takmarkaðan tíma í Höllinni til æfinga og krakkarnir missa fleiri tugi daga til íþróttaiðkunar sökum viðburðahalds í Höllinni. Ofan á þetta er komið fram við iðkendur eins og hverja aðra gesti í Laugardalshöll. Þeir rétt fá að drepa niður fæti á parketið á sínum æfingatímum í Höllinni og hafa enga félagsaðstöðu innan hennar. Kosningar eftir kosningar hefur íbúum í Laugardalnum verið lofað að tilkoma Þjóðarhallarinnar muni leysa allan þeirra vanda. Alveg eins og íbúum í Reykjavík er lofað að Borgarlínan muni bjarga deginum. En börnin í Laugardalnum eiga betra skilið en einhver framtíðarloforð. Þau þurfa alvöru lausnir STRAX. Höfundur skipar áttunda sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar