Tækifærin sem liggja í höfn: Stóra innviðamálið sem gleymist í kosningabaráttunni Alexandra Jóhannesdóttir skrifar 12. maí 2026 23:01 Mikið hefur verið rætt um innviði í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna sem framundan eru. Sterkir innviðir skipta öllu máli til að skapa og viðhalda góðu samfélagi. Frambjóðendur tala um vegi, skóla, leikskóla og húsnæðismál. En það er einn innviðaflokkur sem lítið er talað um — hafnirnar okkar. Sem hafnar- og sveitarstjóri á Skagaströnd til átta ára og varaformaður Hafnasambands Íslands, sé ég daglega hversu stóru hlutverki hafnir gegna í samfélögum um allt land. Þær eru ekki aðeins þjónustumiðstöðvar fyrir skip og atvinnulíf — þær eru hjarta margra byggðarlaga. Stóra bilið á milli fjárfestingarþarfar og áætlaðra framlaga úr Hafnabótasjóði Hafnir skapa atvinnu og verðmæti, styrkja byggðafestu og gegna mikilvægu hlutverki í öryggis- og varnarmálum samfélagsins. Jafnframt fela þær í sér fjölmörg framtíðartækifæri, ekki síst í tengslum við orkuskipti. Dæmi um það má sjá í höfnum í Rotterdam, Esbjerg og Singapore, sem hafa þróast í mikilvægar miðstöðvar endurnýjanlegrar orku og grænna orkulausna. Til þess að við getum eflt íslenskar hafnir í takt við alþjóðlegar kröfur er óhjákvæmilegt að fjárfesta í nauðsynlegu viðhaldi og ráðast í nýframkvæmdir. Nýleg greining Hafnarsambands Íslands á fjárfestingaþörf íslenskra hafna næstu árin sýnir að þörf er á yfir 100 milljarða króna fjárfestingu til ársins 2040 vegna viðhalds, endurnýjunar mannvirkja, dýpkunar, varnargarða, orkuskipta og uppbyggingar sem fylgja breyttum kröfum nútíma samfélags. Þrátt fyrir að þessar upplýsingar liggi fyrir gerir tillaga að Samgönguáætlun 2026-2040 eingöngu ráð fyrir um 21 milljarði króna til Hafnabótasjóðs fyrir sama tímabil. Það dugir einfaldlega ekki til. Bætt aðstaða, dýpkun og endurnýjun mannvirkja Það er mikilvægt að þær sveitarstjórnir sem nú eru að taka við stjórnartaumunum leggist á eitt í samtali við ríkið og berjist fyrir því að auknir fjármunir renni til hafna landsins. Markviss fjárfesting í hafnainnviðum styrkir ekki aðeins rekstraröryggi og flutningsgetu heldur skapar ný tækifæri til verðmætasköpunar um land allt. Með bættri aðstöðu, nauðsynlegum dýpkunum og endurnýjun mannvirkja skapast líka skilyrði fyrir auknar strandsiglingar innanlands. Dýpkun hafna er forsenda þess að hægt sé að halda lífæðum byggðanna opnum. Ef fiskiskipin, sérstaklega uppsjávarskipin, komast ekki í höfn eru forsendur landsvinnslu við þá höfn brostnar. Nýtt líf Í mörgum samfélögum vítt og breitt um landið standa fasteignir og mannvirki á eða í grennd við hafnarsvæði sem áður tengdust öflugri útgerð eða annarri hafsækinni starfsemi. Margar þessara bygginga hafa nú misst upprunalegt hlutverk sitt og standa vannýttar, þrátt fyrir að í þeim felist verðmæt tækifæri til nýrrar atvinnuuppbyggingar, nýsköpunar og menningarstarfsemi. Nærtæk eru vel heppnuð dæmi um slíka umbreytingu. Má þar nefna hús Sjávarklasans í Reykjavík, sem áður hýsti fiskvinnslu en hefur verið breytt í öfluga miðstöð nýsköpunar í bláa hagkerfinu. Einnig Frystiklefann í Snæfellsbæ, margverðlaunað menningarsetur og hostel á Rifi sem starfar í uppgerðu frystihúsi, Breið nýsköpunarsetur á Akranesi sem áður var fiskiðjuver, auk Biopol sjávarlíftækniseturs og Vörusmiðjunnar á Skagaströnd sem blómstra í gömlu frystihúsi steinsnar frá höfninni. Þessi verkefni sýna að með framsýni og markvissri uppbyggingu geta fleiri slíkar fasteignir öðlast nýtt líf, með verulegum ávinningi fyrir þau samfélög sem í hlut eiga. Miðstöðvar atvinnu, nýsköpunar, orkuskipta og uppbyggingar Hafnir eru ekki aðeins mikilvægar fyrir einstök sveitarfélög heldur fyrir allt hagkerfið, útflutningstekjur landsins, samkeppnishæfni atvinnulífs og byggðastefnu Íslands. Með því að ráðast í markvissar aðgerðir getum við minnkað kolefnisspor samgangna, stutt við græn orkuskipti og aukið samkeppnishæfni íslenskra hafna í alþjóðlegu samhengi. Fjárfesting í höfnum er ekki aðeins hefðbundið viðhaldsverkefni heldur framsýn fjárfesting í verðmætasköpun, sjálfbærni og öryggi Íslands. Við þurfum að hugsa hafnirnar sem hluta af stærri framtíðarsýn fyrir landið okkar. Nú þegar nýjar sveitarstjórnir eru að taka við víða um land er rétti tímapunkturinn til að setja hafnamálin í forgrunn. Með góðu og jákvæðu samtali milli ríkis og sveitarfélaga, þar sem fulltrúar hafna eiga raunverulegt sæti við borðið, getum við byggt upp öflugra hafnakerfi sem þjónar bæði samfélögum landsins og atvinnulífi til langs tíma. Við stöndum á tímamótum þar sem ákvarðanir dagsins í dag móta samkeppnishæfni landsins til framtíðar. Hafnirnar skipta þar lykilmáli. Nýtum þetta tækifæri. Höfundur er sveitarstjóri í Sveitarfélaginu Skagaströnd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skagaströnd Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar