Er kominn tími til að leyfa milliakreinaakstur? Njáll Gunnlaugsson skrifar 12. maí 2026 22:01 Til að útskýra fyrst af hverju mótorhjólafólk spyr oft þessarar spurningar ætla ég að biðja lesendur þessarar greinar að setja sig aðeins í okkar spor. Hver þekkir ekki það að keyra í þeim umferðarþunga sem farinn er að einkenna Stór-Reykjavíkursvæðið? Sumar eru jafnvel farnir að veigra sér við að keyra þar á vissum tímum og ekki að undra. Sums staðar er umferðin á fjórum akreinum með allar gerðir ökutækja, og þegar hún gengur hægt freistast margir til að taka upp símann því miður. Hvernig haldið þið þá að okkur á óvörðu mótorhjólunum líði með bílana allt í kring, suma þeirra með augun niður á við? Fyrir okkur mótorhjólafólk er mesta hættan sú að klemmast á milli bíla í sömu akrein, og þar með erum við komin með ástæðuna fyrir því sem við viljum kalla milliakreinaakstur og ætti að leyfa hér sem annars staðar. Nú er enginn að tala um það að mótorhjólafólk vilji leyfa akstur á milli bíla hvar sem er, langt í frá. Það hefur stundum verið kallað „lane splitting“ á engilsaxneskri tungu sem er akstur milli akreina í venjulegri umferð. Það sem kallað er „lane filtering“ er hins vegar allt annar hlutur og getur vel átt við hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Mörg ríki Evrópu og þónokkur fylki í Bandaríkjunum eru farin að leyfa slíkan akstur. Venjulega er þá átt við að leyfa mótorhjólunum að þræða sig gegnum umferð sem er að keyra undir 20-30 km hraða. Sumir staðir ganga lengur en það eins og til dæmis borgin Barcelona. Þar er bókstaflega gert ráð fyrir sérstöku svæði fremst á ljósastýrðum gatnamótum, og þeim sem eru á tvíhjóla ökutækjum bókstaflega ætlað að færa sig fremst. Það sjá líka allir sem fylgst hafa með akstri við slík gatnamót, hvað það gengur vel enda mótorhjólin sneggri að taka af stað. Aukinheldur eru 50 mótorhjól fremst á gatnamótum margfalt fljótari að taka af stað en 50 bílar þar sem þau taka miklu minna pláss. Loks er margt sem mælir með milliakreinaakstri fyrir mótorhjólafólk, sem sér þannig betur fram á veginn og hvað bílar sitt hvoru megin við það ætla sér fyrir. Einnig eiga bílstjórar frá hlið erfiðara með að sjá mótorhjól milli bíla í sömu akrein. En hver er staðan hér á Íslandi? Í 23. grein umferðarlaga stendur að aka skuli vinstra megin framúr ökutæki. Ennfremur er tekið þar fram að sé ekið framúr reiðhjóli eða léttu bifhjóli skal hliðarbil vera að lágmarki 1,5 metrar. Að því gefnu sést fljótt að búið er að útiloka þá umferðarhópa frá milliakreinaakstri, en þá stendur ennþá eftir þeir sem aka um á mótorhjólum með 125 rsm vél eða yfir. Þó er það aðallega fyrsta málsgrein 45. Greinar umferðarlaga sem setur mótorhjólafólki stein í götu varðandi milliakreinaakstur. Þar segir að bifhjóli megi ekki aka í sömu akrein og önnur ökutæki, nema það sé samhliða öðru bifhjóli. Þar stendur ennfremur að hámarkshraði megi ekki vera yfir 50 km á klst til að það sé leyfilegt. Til að hægt sé að leyfa milliakreinaakstur þarf að breyta þessari grein laganna. Gera mætti það með þessum hætti:Bifhjóli má aka samhliða öðru ökutæki í sömu skrein, öðru en tvíhjóla, ef umferðarhraði er ekki yfir 30 km á klukkustund, og aðstæður leyfa slíkt. Við framúrakstur við þær aðstæður falla ákvæði 18 og 23 greinar, um að aka skuli vintra megin framúr, niður og framúrakstur leyfður báðu megin svo lengi sem að hraði bifhjólsins fer ekki yfir 30 km á klst. Eflaust þyrfti fleira að koma til svo hægt sé að auka öryggi bifhjóla, sem og annarra vegfarenda. Leitast þyrfti eftir því að auka fjarlægð stöðvunarlínu frá gatnamótum um 2-3 metra. Við það skapast pláss fyrir bifhjólin en einnig eykur það útsýni á gangandi og hjólandi umferð við gatnamótin. Loks þurfa aðrir vegfarendur að átta sig á þeirri staðreynd að tillaga um milliakreinaakstur er ekki sett fram til að létta okkur mótorhjólafólki lífið, heldur til að auka öryggi bifhjóla í borgarumferð. Mögulega yrði það líka til þess að fleiri notuðu bifhjól innanbæjar, sem léttir þannig aðeins á umferðinni og er öllum til góða. Höfundur er bifhjólakennari síðan 1998. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umferðaröryggi Bifhjól Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen Skoðun Skoðun Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar