Það sem hentar að bíða með þar til eftir kosningar í Kópavogi! Theódóra Þorsteinsdóttir skrifar 12. maí 2026 11:21 Fyrir stuttu óskaði ég eftir því að fá upplýsingar um stöðuna á Barnaskóla Kársness á dagskrá bæjarráðs. Ég fékk engin skrifleg gögn. Á fundinum kom hins vegar fram að Kópavogsbær hefði reynt að kyrrsetja eignir ítalska verktakans á Ítalíu. Það gekk ekki, því ítalski verktakinn er í einhvers konar fjárhagslegri endurskipulagningu og ekki hægt að ganga að eignum hans til tryggingar fyrir bótum. Barnaskólinn átti að kosta 3,2 milljarða árið 2021 en kostnaðurinn er nú að nálgast 9 milljarða. Ég er algjörlega handviss um að ef þetta mál væri í Reykjavík væri allt brjálað, enda er framúrkeyrslan gríðarleg. Til dæmis fór Bragginn 257 milljónum fram úr áætlun, en Kársnesskóli hefur farið milljörðum fram úr miðað við það tilboð sem tekið var í skólann og þann kostnað sem skólinn átti að bera. Þegar ákveðið var að rifta samningnum var búið að greiða verktakanum 1,5 milljarð og verkið átti þá að vera um það bil hálfnað. Kópavogsbær ákvað að bjóða verkið ekki út aftur, heldur voru undirverktakar meira og minna settir á tímakaup. Það er auðvitað brjálsemi. Bæjarfulltrúar fengu upplýsingar um að krafan á ítalska verktakann ætti að liggja fyrir í nóvember 2025. Síðan var talað um mars og svo mánaðamótin apríl/maí. Enn hafa engar upplýsingar um kröfuna komið fram. Hvað veldur? Hvað tefur? Allt bendir til þess að Kópavogsbær fái tjónið ekki bætt að fullu og óvissa er uppi um hvort einhverjar bætur fáist yfirleitt. Það hefur háttað þannig til á þessu kjörtímabili að öll stóru verkefnin sem þessi meirihluti snertir fara í skrúfuna. Meirihlutinn fékk upp í hendurnar nýtt hverfi til úthlutunar. Fyrsti áfangi var strax kærður og ákvörðunin um úthlutun var felld úr gildi, þar sem hún fór í bága við jafnræðisreglu og réttmætisreglu stjórnsýslulaga. Enn ekki hvað! Nú er enn eitt dómsmálið í boði Sjálfstæðisflokks og Framsóknar farið í gang. Nýverið lögðu þau síðan af stað með samkeppnisviðræður um byggingu nýrrar stúku fyrir HK. Kostnaðaráætlunin er 2,2 milljarðar. Strax er komin kæra frá Ístaki og samningsgerð hefur verið stöðvuð. Kærunefnd metur nú málið og lætur í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu Kópavogsbæjar. Það verður fróðlegt að sjá hvernig Kópavogsbær ætlar að svara þeim alvarlegu athugasemdum sem komið hafa fram um ferlið. Svo má ekki gleyma því að Kópavogsbær hefur tekið inn um 10 milljarða í sölu lóða á þessu kjörtímabili. Þess vegna líta mælikvarðarnir betur út. Þegar einskiptis lóðasala er tekin út úr uppgjöri ársins 2025 er Kópavogsbær rekinn með 400 milljóna króna halla. Staðan er þannig að annaðhvort þarf að koma til lántaka eða lóðasölu til þess að skila rekstrinum á núlli. Kjörnir fulltrúar sem vilja geta sagt að þetta sé „besta rekstrarár í 18 ár þrátt fyrir miklar fjárfestingar“ hafa því ríkan hvata til að selja allar lóðir til hæstbjóðenda. Með þessari aðferð getur lóðakostnaður numið 12–16 milljónum króna á hverja íbúð áður en tekið er tillit til lögbundinna gjalda og byggingarkostnaðar. Það bitnar á ungu fólki og tekjulægri fjölskyldum sem eiga sífellt erfiðara með að komast inn á íbúðamarkaðinn. Já, og svo má bæta því við að meirihlutinn hefur hækkað gatnagerðargjöld um 140% á kjörtímabilinu. Þannig að þetta meinta „besta rekstrarár í 18 ár“ og þessar „miklu fjárfestingar“ eru ekkert annað en álögur á ungt fólk og framúrkeyrsla í opinberum framkvæmdum. Höfundur er oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn Kópavogsbæjar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Theódóra S. Þorsteinsdóttir Mest lesið Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar