Valur - FH 27-26 | Valur er Íslandsmeistari eftir sigur gegn FH í oddaleik Þorsteinn Hjálmsson skrifar 7. maí 2026 18:46 Valur er Íslandsmeistari árið 2026! vísir / diego Valur er Íslandsmeistari í handbolta 2026. Varð það ljóst eftir eins marks sigur gegn FH í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn fyrir framan troðfulla N1-höll, þar sem löngu var orðið uppselt. Lokatölur 27-26 í æsispennandi leik. Valur vann fyrsta leikinn, þriðja leikinn og fimmta leikinn á heimavelli á Hlíðarenda. Valsmenn urðu þar með Íslandsmeistarar í 25. sinn og í fyrsta sinn síðan 2022. Óvænt tíðindi bárust fyrir leikinn, en þau voru að Magnús Óli Magnússon, skytta Vals, var í leikmannahópi heimamanna en hann varð fyrir slæmu höfuðhöggi fyrir viku síðan í þriðja leik einvígisins. Var hann þá borinn út á börum og sendur með sjúkrabíl frá Hlíðarenda. Magnús Óli byrjaði leikinn í vinstri skyttunni og skoraði fyrsta mark leiksins. Fylgdust liðin að í markaskori fyrstu tíu mínútur leiksins og var staðan 5-5. Eftir það fóru Valsmenn á flug. Komu heimamenn stöðunni í 10-6 á næstu sex mínútum og þá hafði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, séð nóg og tók leikhlé. Magnús Óli var staðráðinn í að spila oddaleikinn og lét höfuðhögg ekki stoppa sig. vísir / diego Skilaði leikhléið litlu öðru en því að Færeyingurinn Bjarni Í Selvindi mætti til leiks hjá Val og skoraði tvö góð mörk fyrir heimamenn. Sigursteinn neyddist því að taka annað leikhlé á 22. mínútu í stöðunni 13-7 fyrir heimamönnum. Ekki stóð steinn yfir steini í sóknarleik FH og virtust helstu byssur FH vera ragar þegar þær mættu varnarmúr Vals. Héldu Valsmenn forystu sinni í sex marka mun á næstu mínútum og hefði sú forysta hæglega getað verið meiri, þar sem liðið klikkaði nokkrum dauðafærum. FH-ingum tókst þó að skora tvö snögg mörk fyrir hálfleiksflautið og því fjögurra marka munur á liðunum í hálfleik, 16-12. Valur leiddi með fjórum mörkum í hálfleik. visir / diego FH-ingar komu beittir til leiks í seinni hálfleik og hófust strax handa við að vinna niður forskot heimamanna. Skilaði það feykilega miklum árangri því þegar korter var eftir af leiknum var staðan orðin jöfn, 19-19. Næstu mínútur fylgdust liðin að í markaskori þar til Valur náði yfirhöndinni og kom sér í tveggja marka forystu. Staðan 24-22 og níu mínútur eftir. Arnór Snær Óskarsson var markahæstur í oddaleiknum með 9 mörk. VÍSIR / DIEGO Tókst heimamönnum að viðhalda þeirri forystu fram að lokamínútu leiksins. Skoraði þá Jón Bjarni Ólafsson sitt fjórða mark í leiknum af línunni fyrir FH og munurinn orðinn að einu marki. Í næstu sókn náði Gunnar Róbertsson í víti fyrir Val og fór Arnór Snær á vítalínuna og gat gulltryggt sigur Vals. Daníel Freyr Andrésson varði hins vegar vítið, líkt og hann gerði í síðasta leik í Kaplakrika á lokarandartökunum. Daníel Freyr varði víti og hélt FH á lífi. vísir / diego FH fékk því eina lokasókn með 25 sekúndur á klukkunni. Hún gekk þó ekki betur en svo að Garðar Ingi Sindrason þurfti að fara í algjört neyðarskot sem hitti ekki markið. Eins marks sigur Vals því í höfn og titilinn í höfn. FH laut í lægra haldi. Atvik leiksins Verðlaunaafhendingin á heima hér. Félagarnir Agnar Smári Jónsson og Róbert Aron Hostert, sem var að leika sinn síðasta leik á ferlinum, tóku við bikarnum og komu honum á loft og ætlaði þakið af húsinu í kjölfarið. Stór stund fyrir Valsara, en Valur hefur ekki orðið Íslandsmeistari á heimavelli síðan 1998 í handbolta karla. Agnar Smári Jónsson og Róbert Aron Hostert tóku við bikarnum. vísir / diego Stjörnur og skúrkar Arnór Snær Óskarsson var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar og var markahæstur í oddaleiknum með níu mörk. Af mörgum ólöstuðum þá var besti leikmaður vallarins í liði FH. Ómar Darri Sigurgeirsson var frábær og algjör prímusmótor í sóknarleik FH og hjó oft á hnútinn þegar mest á reyndi. Níu mörk frá honum. Frábært tímabil hjá þessu ungstirni sem var lítt þekktur fyrir tímabilið. Arnór Snær var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar. Svo á Valsliðið allt bara heima hér sem stjarna leiksins. Þetta er vel smurð vél, lið sem heldur alltaf sínu striki sama hvað á bjátar og fer í gegnum hverja raunina á fætur annarri. Kannski enginn einn skúrkur, en þegar skammt var eftir af leiknum töpuðu gestirnir boltanum tvisvar mjög klaufalega, fyrst var lína dæmd á Jón Bjarna og svo tók liðið vitlausa miðju. Hrikalega dýrir tæknifeilar sem kostuðu liðið að lokum. Dómarar Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson höfðu í nægu að snúast, en komust vel frá sínu. Fóru nokkru sinnum í VAR en komu ávallt til baka með enga ákvörðun eða dóm í farteskinu. Stoppa þurfti einnig leikinn oft vegna confetti sprengja og svo bilaði leikklukkan í upphafi síðari hálfleiks. Erilsamur leikur fyrir dómara leiksins. Stemning og umgjörð Rúmum klukkutíma fyrir leik var múgur og margmenni mætt að Hlíðarenda, enda löngu orðið uppselt á leikinn. Stuðningsmannasveitir beggja liða komu sér vel fyrir tímanlega fyrir leik og létu vel í sér heyra og var hávaðinn gríðarlegur þegar flautað var til leiks. Strætóskýlið, stuðningsmannasveit Vals, bauð t.a.m. upp á hvorki meira né minna en fimm trommuleikara. Annars stóðu Valsmenn hrikalega vel að allri umgjörð varðandi þennan leik og ekki betur séð en að allir gestir N1-hallarinnar hafi fengið að njóta viðburðarins til fullnustu. Valur hafði ekki fagnað Íslandsmeistaratitli á heimavelli í 28 ár. Viðtöl „Gott að við áttum þetta forskot“ „Tilfinningin er ólýsanleg. Þetta er bara draumur, ég elska þetta,“ sagði Þorgils Jón Svölu Baldursson þegar Íslandsmeistaratitillinn var í höfn. Þorgils Jón verst árás FH. vísir / diego Valur hafði ekki orðið Íslandsmeistari á heimavelli sínum síðan 1998 en Þorgils segir sætt að geta fagnað með stuðningsmönnum liðsins á Hlíðarenda. „Já það er svoleiðis? Það er geðveikt. Stútfull höll hérna og þvílíka stemningin að fagna þessu hér.“ Þorgils Jón sækir að marki FH. vísir / diego Valur missti niður sex marka forystu í þessum leik en stóð samt uppi sem sigurvegari. „Við vorum klaufar, að fá tvær mínútur og svona, ég meðal annars. En þá var gott að við áttum þetta forskot og höfðum efni á þessum klaufalegu mistökum.“ Valur varð bæði deildar- og bikarmeistari á þessu tímabili og Þorgils gæti varla verið sáttari. „Ég er mjög sáttur með tímabilið, þetta eru tveir titlar af þremur og maður getur varla verið sáttari, þó maður hefði auðvitað viljað bikarinn. Það var súrt að tapa því í tvöfaldri framlengingu og vító á móti Haukum, en núna er ég bara fáránlega sáttur.“ „Því miður þá vorum við einu marki lélegri í dag“ Sigursteinn var svekktur með tapið en þakkaði Valsmönnum vel fyrir einvígið. vísir / diego Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var að vonum sár svekktur eftir tap kvöldsins í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. FH-ingar háðu hetjulega baráttu á lokakaflanum til þess að brjóta Val á bak aftur, en í fyrri hálfleik hafði Valur sex marka forystu. Það tókst þó ekki þrátt fyrir að lokasókn leiksins hafi fallið í skaut FH. Sigursteinn hóf viðtalið eftir leik á að óska andstæðingi sínum til hamingju. „Vil byrja að óska Valsmönnum til hamingju, ótrúlegt einvígi tvö frábær lið og þeir voru aðeins betri en við í dag, það munaði ekki miklu.“ Því næst fór Sigurstein yfir gang mála í þessum oddaleik. „Við mætum illa inn í þennan leik og það er bara mjög leiðinlegt að svo sé en að því sögðu er ég mjög ánægður með karakterinn í mínu liði. Hvernig það vinnur sig úr erfiðum stöðum og við sýndum okkar rétta andlit allavegana í seinni hálfleik, en því miður þá dugði það ekki.“ Aðspurður hvað hafi skorið úr um úrslitin þá sagðist hann ekki geta nefnt eitt, enda margt sem týnist til þegar rýnt sé í leikinn. „Það er hægt að tína það saman. Þessi sókn og hin vörnin o.s.frv. einhver dómur og eitthvað svoleiðis, en svona eru þessir leikir og bara því miður þá vorum við einu marki lélegri í dag.“ Að lokum var Sigursteinn beðinn um að gera upp tímabilið hjá FH, sem hefur verið glæsilegt þrátt fyrir titlaleysi. „Við erum að mörgu leyti ánægðir með tímabilið þó að maður sjái það kannski ekki alveg í kvöld, en við erum búnir að taka stór skref. Það voru margir sem hættu síðasta sumar og ungir menn komu inn og fengið stærra hlutverk og tekið það. Að sama skapi líka frábærir menn sem eru búnir að vera í okkar liði lengi og hafa passað upp á okkar æfingar kúltúr og hvernig við gerum hlutina. Það er bara mjög heilbrigt og gott umhverfi. Handboltinn hjá FH er á góðum stað. Frábær stuðningur áhorfenda og að baki þessu er náttúrulega ótrúleg vinna ótrúlega margra sjálfboðaliða og stjórnarmanna. Það er bara þetta sem þarf til til að vera með gott lið og FH er svo sannarlega á góðum stað hvað handbolta varðar. En mikið ofboðslega er þetta samt svekkjandi í kvöld,“ sagði Sigursteinn að lokum. Olís-deild kvenna Valur FH