Eru börnin okkar örugg á götum bæjarins? Björn Sighvatsson skrifar 7. maí 2026 08:30 Nýlega var hámarkshraði á stærri götum Hafnarfjarðar lækkaður úr 50 niður í 40km/klst. Þessari breytingu hefur almennt verið tekið vel enda eykst öryggi óvarðra vegfarenda og hávaða- og svifryksmengun minnkar einnig við lægri umferðarhraða. Í stærri götum innan íbúðahverfa, svokölluðum safngötum, er hámarkshraði 30km/klst og í flestum tilfellum virðist sá hraði vera viðeigandi. Þegar kemur að húsagötum þá lítur málið ekki eins vel út enda er hámarkshraðinn í þeim öllum 30km/klst, óháð aðstæðum í hverri götu sem geta verið mjög mismunandi. Lítum á tvær götur í Hafnarfirði sem báðar hafa hámarkshraðann 30 km/klst: Álfaskeið er skilgreind sem safngata. Hún er breið, með merkta miðlínu, upplýst og með ágætis útsýni í allar áttir. Gangstéttir eru báðum megin við götuna. Þarna er 30 km/klst hraði svo viðráðanlegur að nokkrum hraðahindrunum hefur verið komið fyrir til að halda hraðanum í skefjum. Nönnustígur er ein þrengsta húsagata Hafnarfjarðar. Gatan er svo mjó að það getur verið vandasamt að aka framhjá bílum sem lagt er í götunni ef um stærri bíla er að ræða eða ef bílum hefur ekki verið lagt þétt við jaðar götunnar. Húsin standa mörg við brún götunnar, enginn gangstétt er til staðar, og útsýni er mjög takmarkað. Eins og sést á myndinni er talan 30 máluð á götuna en ég vona að engum hafi dottið í hug að keyra götunna á þeim hraða. Það er augljóst að sami hámarkshraði á ekki við í Álfaskeiði og Nönnustíg. Þarna hefur einfaldasta leiðin verið valin og sama reglan látin gilda um allar götur í sama flokki án þess að skoða hvort sú ákvörðun sé eðlileg út frá öryggi vegfarenda eða óskum íbúa. Sjálfur bý ég í Kinnum sem er gamalt hverfi. Þar eru gangstéttir aðeins öðrum megin við flestar götur en aðrar eru gangstéttalausar. Hámarkshraðinn hér er 30km/klst og margir keyra hraðar. Mörgum íbúum hverfisins finnst þessi hraði vera of mikill og eru á þeirri skoðun að hann þyrfti að vera töluvert lægri, enda mikið um börn sem þurfa að þvera götur út frá heimili sínu. Notum þekkt hönnunarviðmið og spyrjum íbúa hvaða hraði þeim finnst eðlilegur í sinni götu. Gerum umhverfið öruggt fyrir alla vegfarendur, ekki síst börnin okkar. Höfundur er verkfræðingur og skipar 12. sæti hjá Viðreisn í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar