Innlent

Loka­tölur í Ölfusi: Sjálf­stæðis­menn bæta við sig manni

Ritstjórn skrifar
Ný bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss.
Ný bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss. vísir/sara

Sjálfstæðismenn unnu mikinn kosningasigur í Ölfusi í sveitarstjórnarkosningunum í dag. Sjálfstæðismenn bættu við sig manni og eru nú með fimm fulltrúa í sjö manna sveitarstjórn.

Á kjörskrá í Ölfusi eru 2.212 manns, en þar er meðal annars að að finna Þorlákshöfn.

Svona fóru kosningarnar:

  • S listi - Samfylking og félagar 30,7 prósent og tvo fulltrúa
  • D listi – Sjálfstæðisflokkurinn 69,3 prósent og fimm fulltrúa

Í sveitarstjórnarkosningunum 2022 náði Sjálfstæðisflokkurinn hreinum meirihluta og var Elliði Vignisson ráðinn í embætti bæjarstjóra.

Eftirfarandi fulltrúar eiga sæti í sveitarstjórn Ölfuss: 

  • Grétar Ingi Erlendsson (D)
  • Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir (D)
  • Gestur Þór Kristjánsson (D)
  • Erla Sif Markúsdóttir (D)
  • Guðlaug Einarsdóttir (D)
  • Gunnsteinn R Ómarsson (S)
  • Berglind Friðriksdóttir (S)

Hér má sjá lokatölur:

Á kjörskrá í Ölfusi eru 2.212 manns. Vísir


Tengdar fréttir

Lokatölur úr Fjalla­byggð: Meirihlutinn heldur velli

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig einum fulltrúa frá síðustu kosningum og er með þrjá. Nýr listi, Listi fyrir heildina fær tvo. Listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar fær einnig tvo. Jafnaðarmannafélagið og Sjálfstæðisflokkur mynda í dag meirihluta og heldur hann velli samkvæmt þessu.

Lokatölur í Suður­nesja­bæ: Samfylkingin stærst

Listi Samfylkingar og óháðra fær þrjá bæjarfulltrúa í Suðurnesjabæ og listi Framsókn tvo samkvæmt lokatölum í sveitarstjórnarkosningum. Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkur fá tvo fulltrúa hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×