Stjarnan - Tindastóll 97-103 | Stólarnir knúðu fram oddaleik Kári Mímisson skrifar 3. maí 2026 19:30 Stjarnan - Tindastóll Bónus Deild Karla Vor 2025 Vísir/Diego Tindastóll knúði fram oddaleik í seríunni gegn Stjörnunni með 97-103 sigri í Garðabænum í kvöld. Oddaleikur liðanna fer fram á miðvikudaginn og sigurvegarinn fer í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla í körfubolta. Stjarnan leiddi lengi vel og var mest þrettán stigum yfir í fyrri hálfleik en Tindastóll var sterkari á lokakaflanum. Óttast var að villuvandræði Tindastóls myndu hafa slæm áhrif á liðið en þrátt fyrir að hafa misst Taiwo Badmus og Adomas Drungilas út af tókst Stólunum að sigla sigrinum í höfn. Stjarnan með yfirhöndina í fyrri hálfleik Leikurinn fór vel af stað hér í kvöld þar sem bæði lið skiptust á að skora. Undir lok fyrsta leikhluta náðu heimamenn aftur á móti góðum kafla þegar liðið setti þrjár þriggja stiga körfur niður í röð og breytti stöðunni úr 17-20 í 26-20 en þannig var staðan eftir fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta tókst heimamönnum að slíta sig frá Stólunum með góðum sóknarleik og mjög sterkri vörn. Á sama tíma fór Tindastóll afar illa að ráði sínu en liðið hitti ekki nægjanlega vel á þessum tímapunkti ásamt því að hranna upp villunum. Staðan 55-46 þegar liðin héldu til búningsherbergja. Allt annað hjá Stólunum í seinni hálfleik Það var allt annað og betra Tindastóls lið sem mætti til leiks í seinni hálfleik. Dedrick Basile gjörsamlega tætti vörn Stjörnunnar trekk í trekk í sig. Varnarlega var liðið áfram að sanka að sér villum og það verður að segjast að fyrir loka leikhlutann leit þetta alls ekki vel út þrátt fyrir að munurinn hafi aðeins verið þrjú stig. Stólarnir slitu sig lausa Þrátt fyrir þessi villuvandræði tókst Tindastól að slíta sig frá heimamönnum strax í upphafi fjórða leikhluta þegar liðið náði mest átta stiga forystu. Það fór aftur á móti að halla á liðið þegar Taiwo Badmus og Adoms Drungilas voru báðir farnir út af með fimm villur. Á sama tíma voru þeir Dedrick Basile og Ragnar Ágústsson báðir með fjórar villur og ekki mikið sem mátti gerast. Stjarnan náði að minnka muninn og fékk tækifæri til að komast yfir en því miður fyrir Garðbæinga þá tókst það ekki og því ljóst að við erum á leið í Skagafjörðinn í oddaleik á miðvikudaginn. Stjörnur og skúrkar Dedrick Basile var í algjörum sérflokki í dag, sérstaklega í seinni hálfleik. Hann var með 31 stig, tók 13 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Davis Geks átti einnig góðan leik í kvöld en hann var með 24 stig. Þá steig Pétur Rúnar Birgisson upp í kvöld og var með mjög mikilvægt framlag fyrir sitt lið. Hjá Stjörnunni léku sjö leikmenn í kvöld, þar af sex yfir með yfir 27 mínútur. Seth LeDay var framlags hæstur hjá liðinu í kvöld. Hann var með 16 stig, 11 fráköst og 5 stoðsendingar. Því miður fyrir Stjörnuna þá meiddist hann eitthvað í kvöld, hann vissulega kláraði leikinn en spurningin er hvort hann verður heill fyrir oddaleikinn því án hans þá er vonin veik hjá Stjörnunni. Daniel Dolenc var áfram kaldur hjá Stólunum en það er erfitt að velja hann sem skúrk þegar hann leikur fimm mínútur. Drungilas nær sér í fimm villur á afar klaufalegan hátt og hann verður að fá þann stimpil í kvöld. Atvik leiksins Atvik leiksins verður að vera þetta augnablik þegar Pablo virðist hrinda Drungilas á Seth LeDay. Dómarar leiksins gáfu sér einhverjar sjö mínútur til að skoða þetta atvik og sammæltust um það í útsendingunni að þetta væri villa en í ljósi þess að þeir sjá það aðeins í skjánum gátu þeir ekki dæmt hana. Þá þótti þeim þetta of lítið fyrir óíþróttamannslega villu. Seth LeDay virtist í fyrstu sýn vera alvarlega meiddur en mætti aftur á völlinn skömmu seinna. Þá gleymist það líka að Pétur setur á sama tíma risa þrist fyrir Tindastól og kom þeim í fyrsta sinn yfir síðan í fyrsta leikhluta. Dómarinn Fyrir utan hvað þeir voru lengi að skoða þetta atvik með Pablo og Drungilas þá gerðu þeir þetta vel og komust vel frá þessu verkefni í kvöld. Stemning og umgjörð Úrslitakeppnin er alveg einstök sama hvaða lið eigast við. Umgjörðin stórkostleg hjá Garðbæingum í kvöld. Ég er ekki viss um það hvort hægt hafi verið að koma mikið fleirum fyrir hér í Ásgarði enda seldist upp á 19. mínútum. Gestirnir mættu vel í stúkuna eins og alltaf og létu vel í sér heyra eins og heimamenn. Það er bara áframhaldandi kvíðakast yfir þessu öllu saman Það var létt yfir Arnari Guðjónssyni, þjálfara Tindastóls þegar hann mætti til viðtals hjá Andra Má Eggertssyni eftir sigur liðsins gegn Stjörnunni nú í kvöld. Sigur þýðir að liðið hefur tryggt sér oddaleik í þessu einvígi en Stjarnan hafði ekki tapað á heimavelli síðan í október. Hvað var það sem gerðist? „Við skoruðum fleiri stig en þeir. Ég veit ekki hvernig við fórum að því en það munaði voðalega litlu í þessu öllu sama. Þetta var voðalega mikið fram og til baka. Davis Geks var góður, Pétur Rúnar var góður og setti nokkur stór skot. Mér fannst við sýna hugrekki í seinni hálfleik þegar á móti okkur blés.“ Arnar heldur svo áfram og segir „Þeir léku mjög vel í fyrri hálfleik og leystu svæðisvörnina frábærlega. Á sama tíma vorum við lélegir í maður á mann vörn. Við vorum að fá erfið skot og héldum okkur eiginlega bara inni í þessu á lyginni einni, með því að setja tvær erfiðar körfur í spjaldið og niður. Mér fannst fyrri hálfleikurinn hjá okkur í kvöld mjög slakur. Strax í upphafi seinni hálfleiks fannst mér við vera orðnir aðeins betri og sýndum mun meira hugrekki.“ Villuvandræði Tindastóls voru mikil í kvöld en á liðið missti bæði Adomas Drungilas og Taiwo Badmus út af með fimm villur, þá voru þeir Ragnar Ágústsson og Dedrick Basile báðir með fjórar villur undir lokin. Var farið að fara eitthvað um þig á þessum tímapunkti? „ Það er hreinlega bara búið að fara um mig frá því að leikur þrjú kláraðist. Við leystum þetta nógu vel til þess að þessi leikur vannst að lokum. Það var svona eiginlega heila málið.“ Daniel Dolenc spilaði aðeins fimm mínútur í kvöld, þú spilar áfram með Drungilas og Badmus eftir að þeir voru komnir með bæði þrjár og fjórar villur, treystir þú ekki Dolenc? „Hann var bara ekki góður í dag en kom samt inn á hér undir lokinn og gerði vel eftir að hafa setið í 60 mínútur. Ég setti hann inn á með tvær mínútur eftir af leiknum þegar allt var undir hjá okkur, þannig að já ég treysti honum.“ Spurður út í oddaleikinn á miðvikudaginn er Arnar stuttorður og segir: „Hvernig lýst mér á það? Það er bara áframhaldandi kvíðakast yfir þessu öllu saman.“ Baldur: Við þurfum að hitta á góðan leik Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, var að vonum ósáttur með tap sinna manna í kvöld gegn Tindastól þegar hann mætti í viðtal hjá Andra Má Eggertssyni. Hvað var það sem gerðist í kvöld? „Eiginlega bara Basile og Pétur Rúnar. Þeir gerðu það að verkum að við töpuðum hér í kvöld en þeir voru báðir frábærir. Sóknarleikurinn hjá okkur var góður á þessum í fyrri hálfleik ásamt því að okkur tókst að halda Basile niðri. Hann dregur þá inn í þennan leik aftur og gerir frábærlega.“ Hvað breytist þarna í seinni hálfleik hjá ykkur? „Það breytist í rauninni ekki neitt. Við urðum bara ógeðslega lélegir varnarlega. Einstakur varnarleikur hjá fullt af mönnum þarf að vera mikið betri því annars labbar bara Basile framhjá þér leggur þetta niður, sem að hann gerði ítrekað. Við höfðum ekki gæðin til að verjast því á þessu augnabliki.“ Hvernig blasir þetta atvik við þér þegar Seth LeDay meiðist í fjórða leikhluta og hver er staðan á honum? „Ég sé þetta atvik ekki og verð bara að taka því eins og það er. Ég veit ekki nákvæmlega hver staðan á Seth er eftir þetta. Einhverjir sögðu að hann hafði farið úr hnélið og aftur í hann en ég efast nú um að hann hefði komist aftur inn á völlinn ef það hafði gerst. Hann var augljóslega ekki heill eftir þetta en þetta er bara úrslitakeppni og menn fara bara í stríðs gírinn.“ Hvað er það sem gerist undir lokin sem gerir það að verkum að þið náið aldrei forystunni? „Þeir náðu þessum stoppum sem þurfti og fengu á sama tíma stóra körfu frá Geks. Ég verð smá að nefna Geks því við vörðumst honum ömurlega í þessum leik og ég veit ekki hvað menn eru að vinna með þarna inn á vellinum.“ Eruð þið að fara á taugum Baldur? „Nei nei, þetta er bara eins og þetta er. Við unnum tvo leiki sem voru jafnir. Tindastóll er frábært lið og við þurfum að hitta á góðan leik. Við þurfum líka að hitta á að þeir eigi ekki frábæran leik á rosalega mörgum stöðum, þá getum við unnið þá en það er í rauninni það sem gerðist í fyrstu tveimur leikjunum. Í leik þrjú eru þeir miklu betri en við og hér í kvöld er þetta leikur sem gat fallið báðu megin. Núna er það oddaleikurinn það sem allt er undir fyrir bæði lið og það verður stemning.“ Bónus-deild karla Tindastóll Stjarnan